Skinfaxi - 01.07.1959, Side 21
SKINFAXI
85
erfiðu dagsverki og margir um langan
veg.
XJngmennasamb. Eyjaf jarðar: Fimmtu-
daginn 23. júlí var fundur haldinn á Ak-
ureyri. Þar mætlu 15 fulltrúar frá 10 fé-
lögum af 14. Einnig komu fundarmnn
þar að loknum annasömum degi og sum-
ir frá fjarlægum félögum.
Ungmennasamband Norður-Þingey-
inga: Sunnudaginn 26. júli flutti ég er-
indi á íþróttamóti í Ásbyrgi. Yeður var
með fádæmum fagurt og fjölmenni mik-
ið. Það var unaðslegt að sjá unga fólkið
að drengilegum leik i þessum gróðursæla,
fagra og mikilúðlega hamrasal, sem er
einhver fegursti samkomustaður á ís-
landi. Siðar um daginn ræddi ég við hér-
aðsstjórann og nokkra forystumenn ung-
mennafélaganna
Ungmennasamb. Skagaf jarðar: Þriðju-
daginn 28. júli var fundur á Sauðárkróki.
Þar komu til fundar 18 fulltrúar frá 8
félögum af 12. Einnig komu á fundinn sr.
Eiríkur J. Eiriksson, sambandsstjóri U.
M.F.Í. og Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi. 1 lok fundarins flutti sambandsstjóri
snjalla ræðu til fundarmanna. — Það
sama má segja um þennan fund og hina,
að fundarmenn létu ekki annir, erfiði og
langan veg aftra sér frá fundarsókn.
, Á fundunum var að sjálfsögðu rætt
um störf ungmennafélaganna og' áhuga-
mál. Reynt var að gera sér grein fyrir,
hvernig hægt væri að bæta starfið og
auka. Á öllum fundunum ríkti góður á-
hugi og sumum mikill. Það var einróma
álit allra fundanna, að slíkir fundir væru
mjög' gagnlegir og Hklegir (il þess að
vekja áhuga og treysta sambandið milli
stjói'nar U.M.F.Í., héraðssambandanna
og félaganna. Að loknu þessu ferðalagi
er ég sannfærðari en áður um gagnsemi
ungmennafélaganna fyrir byggð sína og
menningu þjóðarinnar. Ég þakka öllum,
sem komu á fundina og þó sérstaklega
héraðsstjórunum, sem hvöttu stjórnir fé-
laganna mjög til að sækja fundina og
veittu mér annan greiða.
2. Heimsókn til Ungmennasambands
Borgarf jarðar og Héraðssambands
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu.
Seinni hluta ágústmánaðar boðaði ég
til funda sambandsstjórnir og félaga-
stjórnir sambandanna. Miðvikud. 19. ág.
fór ég með Akraborg' til Borgarness og
liélt þar fund um kvöldið. Fundarmenn
voru 10 frá 6 félögum af 14. Þurrkur var
í byggðum Borgarfjarðar þenna dag og
dró það nokkuð úr fundarsókn, því víða
var hey úti. Sérstaklega ber því að þakka
þeim áhugann, sem komu til fundar.
Laugard. 22. ágúst var fundur haldinn
að Görðum á Snæfellsnesi. Þar komu til
fundar 18 fulltrúar l'rá 8 félögum af 11.
Stjórnarmenn sumra félaganna voru ekki
lieima eða i atvinnu utan sveitar. Fund-
urinn var mjög ánægjulegur. Gott íþrótta-
starf er hjá ungmennafélögum i Héraðs-
sambandi Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu, enda hefur sambandið liaft fastan
kennara og ötulan mjög.
Mikill áhugi ríkti á báðum þessum
fundum um málefni ungmennafélaganna.
Töldu fundannenn æskilegt að treysta
sambandið sem bezt milli stjórnar U.M.
F.í. og héraðssambandanna. Ég þakka
héraðsstjórum heggja sambandanna fyr-