Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1959, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.11.1959, Blaðsíða 3
£kihjfaxi Tímarit U.M.F.Í. iiistaffli — , , ,i 4. hefti 1959 • 1 11 Utgefandi: Sambandsstjórn lf; Ungmennafélags Islands. || Reykjavík. Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð. Ritstjóri: Guðm. Gíslason Hagalín. Pósthólf 1342. Sími 50166. , Félagsprentsmiðjan h.f. „FRJÁLSIR MENM ÞEGAR ALDIU REMA“ Ábyrgð einstaklingsins. Ekki mundi það vera nema að vonum, þótt íslendingum væri ærið sárt um sjálf- stæði lands og þjóðar, svo lengi sem erlend liagsmunasj ónarmið, erlent þekkingar- leysi, erlent tómlæti og erlendur valda- hroki háði eðlilegri þróun menningar-, fjárhags- og atvinnulífs liér á landi. Ungmennafélagar stóðu fremstir undir merkjum forystumanna íslenzkra baráttu- sveita á fyrstu áratugum þessarar aldar, þá er lokasóknin var liáð til sjálfstæðis og síðan fullveldis, og enn samþykkja þeir á þingum sínum tillögur, sem til þess henda, að þeir telji sig skylda að vera vöku- menn á varðbergi íslenzks þjóðernis og sjálfstæðis. Á hverjum borgara í lýð- ræðisþjóðfélagi hvílir þung ábyrgð, livar sem hann gengur að kjörborði eða kemur fram sem fulltrúi stærri eða smærri félagslegra heilda, en { krafti þeirra hug- sjóna, sem ungmennafélögin liafa jafnan lælgað sig, livílir þyngri ábyrgð og skylda á herðum hvers einstaklings, er gengið hef- ur undir merki þeirra, en á þeim ung- mennum þessa lands, sem ekki liafa heit- ið að lialda á loft slíku merki. Sá trúnaður, sem þj óðfélagsborgaranum er sýndur með því að veita honum kosning- arrétt og kjörgengi, án tillits til annars en aldurs, grundvallast á þeirri hjörtu trú á mannlegt eðli, að bætt uppeldi, aukin fræðsla og mannsæmandi lífskjör fái smátt og smátt aukið þroska þegnanna, vitsmunalegan og siðferðilegan og gert þá færa um að taka skynsamlega og ábyrga þjóðfélagslega afstöðu — og að þeir telji sér skylt að leiða sjálfir sjálfa sig i stað

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.