Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1959, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.11.1959, Blaðsíða 27
SKINFAXI 123 bindi eða 2.3 bindi á hvern íbúa í landinu. Árið 1956 voru lánuð samtals 338.358 bindi eða 2 bindi á íbúa. Lánþegar bæjar- og héraðsbókasafna voru alls 9994 og sveitarbókasafna 6209 eða alls 16.203, og eru það 9.7% af allri þjóðinni, en nú ber að taka tillit til þess, að yfirleitt kaupir ekki nema einn maður á hverju heimili láns- skirteini, svo að notendur safnanna eru í raun- inni miklu fleiri en hér kemur fram. Árið 1956 var skráð notendatala 14.505, og hefur notend- um því fjölgað um 1698. Árið 1957 fékk hver notandi lánuð að meðaltali 30.4 bindi, en árið áður 30.6. ★ G JAFABÓK Kona ein sænsk, sem gift var íslenzkum manni, var, eins og margar konur fæddar og uppaldar hjá frændþjóðum okkar, mun meira gefin fyrir guðsorðabækur en tíðast er um íslenzkar konur. Hún hét María. Maria var bezta kona, en enginn spekingur að viti. Þegar hún var orðin öldruð, missti hún bónda sinn. Hún bjó svo ein út af fyrir sig og las guðsorðabækur sér til hugsvöl- unar. Eitt sinn sagði hún vinkonu sinni, að sig langaði mikið til að lesa bók eftir hann séra Engström, sem hefði verið prestur í átthögum hennar. Hann hefði gefið út bók, sem mjög hefði verið látið af. Nú leið og beið, unz vinkona hennar kom til hennar dag einn með bók. „Hérna er nú bókin eftir hann Engström," sagði hún. Og gamla konan ljómaði og þakkaði vinkonu sinni gæzku hennar og örlæti. Eftir vikutíma kom hún svo enn í heimsókn og spurði, hvernig frú Maríu likaði bókin. Sú gamla brosti og sagði: „Hún er lireinasta afbragð. Ef ég liefði ekki vitað, að þetta væri guðsorðabók, þá hefði ég hreinlega hlegið mig máttlausa. Það getur verið skemmtilegt, Guðsorðið, rétt eins og það, sem veraldlegt er.“ Bókin var þá ein af smásagnasöfnum spé- fuglsins mikla, Alberts Engströms. Forseti U.IU.F.I. verður þjóðgarðsvörður Séra Eiríkur Eiríksson og ASalsteinn Sigmundsson. Séra Eiríki Eiríkssyni á Núpi hefur ver- ið veitt embætti þjóðgarðsvarðar, og má ætla, að hann verði einnig prestur Þing- vallaprestakalls. Mun liann ekki taka við embætti þj óðgarðsvarðar fyrr en á vori komanda, þar eð hann hefur nú ærnum störfum að gegna sem skólastjóri Héraðs- skólans á Núpi, en þar eru fleiri nem- endur í vetur en nokkru sinni áður eða um 140, þó að fjölmörgum væri neitað um skólavist, sem um hana sóttu. Skinfaxi óskar séra Eiríki allra heilla í hinu nýja ábyrgðar- og virðingarstarfi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.