Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1959, Page 17

Skinfaxi - 01.11.1959, Page 17
SKINFAXI 113 Hún fleygir bókunum á skrifborðið. Ég set þær á sinn stað í skápinn. Þegar ég rétti mig upp, er hún setzt í skrifborðsstól- inn og tekin að hamra á vélina. Hún snýr sér brosandi í áttina til mín og segir: „Ekki lót vél, pabbi. Hún e agalea fi-in.“ Hún er það, og liún hefur kostað mig þrjú þúsund krónur. Eg tek telpuna í fang- ið og set hana á gólfið. Ég skrifa. Hún klifrar upp á hnéð á mér. Ég set hana aftur á gólfið. Hún skríður undir skrif- borðið, stingur höfðinu upp á milli hnjánna á mér, brýzt um, losar handlegg- ina úr klípunni og hamrar með hnefun- um á vélina. „Langar þig til að ég skelli í endann á þér ?“ spyr ég. Hún lítur íhugandi á mig. „Ne-e-ei, heldur gella pabba.“ Þetta barn, sem ég á sjálfur, er ekki til neins að beita likamlegri refsingu. Ég hef barið hana. Líkamleg refsing hefur þau áhrif á hana, að hún fyllist heift og hug- kvæmri hefnigirni. Hún umhverfist óhugn- anlega. Flenging er fjarstæða. Hótun mín var vanhugsuð. Barnið brosir. Flengdu mig bara, les ég í þessu brosi. Ég set hana af ljúfri varygð á gólfið, fæ henni pappírskörfuna til að leika sér að, hjálpa henni meira að segja til að livolfa öllu ruslinu úr körfunni á gólf- áhreiðuna. Ilún sekkur sér niður í leik sinn, og ég sekk mér niður í endurminn- inguna um mína bernsku. Þar leita ég að dæmum, sem sýni, að ég hafi verið ag- aður. Nú er það staðreynd, að ég fékk fyrirmyndaruppeldi, svo ekki er fljótgert að finna það, sem ég leita að, því vitanlega er líftaug góðs uppeldis að sá, sem agað- ur er, hafi ekki hugmynd um það. En leit mín í heimi tuttugu, þrjátíu ára gamalla minninga heillar mig. Ég veit varla af telpunni. ,Ósjálfrátt ýti ég henni frá mér, þegar hún gerist ágeng, eins og gegnum svefnmók lieyri ég að hún veltir um koll tóbakshorðinu og þykist vera að negla með pípuhausunum, — að hún tekur alla svæflana af dívaninum og hleður þeim undir skrifborðið, leggur þá á fæturna á mér, — ég finn þetta, og ég veit, að þetta er tilraun þessarar litlu júngfrúar til eins Ivonar æðri tegundar af óþægð. En ég er of heillaður------ Þegar ég var um það hil tíu ára, bjugg- um við um skeið í þorpi einu uppi í sveit. Þá er það dag einn, að ég vil alls ekki horða miðdegismatinn. Ég lialla mér aft- ur á bak á stólnum með hendur í vösum, horfi niður fyrir mig og ranghvolfi aug- unum. Innvortis sver ég þess dýran eíð, að þó að gengið verði næst lífi mínu, skuli enginn fá ofan í mig saltfiskinn. Nú hljóðn- ar yfir föður mínum, og ég finn, að liann lítur á mig. Og svo ógurlega fúll sem ég er, vaknar hjá mér áköf eftirvænting. — Faðir minn hefur aldrei harið mig. Samt sem áður ber ég fyrir lionum afar mikla virðingu, finn það nú eins og endranær. Ég finn á mér, að hann nmni sigra mig. En á hvern hátt? Hann lýtur höfði og ávarpar mig með nafni. Ég lit upp, en gæti þess, að ólundin hverfi ekki úr augnaráðinu. „Þú vilt hreint ekki horða sallfisk?“ Ég hristi höfuðið. Faðir minn er hnugg- inn á svip. Stórleitt andlitið er þrungið al- vöru. Mér líður miður vel. „Það þykir mér mjög leitt,“ segir hann. „En ekki er lil neins að vera fárast um þetta. Komdu hingað til mín.“

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.