Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.11.1959, Qupperneq 24

Skinfaxi - 01.11.1959, Qupperneq 24
120 SKINFAXI □ □ □ /fl//ff/7//f LANDSMÚT U.M.F.I. Sambandsstjórn U.M.F.l. hefir falið Hér- aðssambandi Suður-Þingeyinga að lialda landsmótið 1961. Verður mótið haldið að Laugum í S.-Þingeyjarsýslu, en þar er góð- ur íþróttavöllur og sundlaug, og aðrar að- stæður ágætar til þess að lialda stórmót. Framkvæmdanefnd hefir verið kjörin til þess að sjá um undirbúning og fram- kvæmd mótsins, og er liún þannig skipuð: Frá Héraðssamhandi Suður-Þingeyinga: ,Öskar Ágústsson, Þorsteinn Glúmsson, Friðgeir Björnsson og Þráinn Þórisson. Frá sambandsstjórn U.M.F.I.: Ármann Pétursson. í síðasta hefti Skinfaxa var getið sam- þykkta síðasta sambandsþings varðandi landsmótið, m. a. þeirra íþróttagreina, sem þingið lagði til að keppt yrði í á mótinu. Tillögur til breytinga þurfa að berast sam- bandsstjórn fyrir næsta sambandsráðs- fund. Ákveðið hefur verið að svæðakeppni í knattspyrnu og liandknattleik kvenna fari fram sumarið 1960, og skal þátttaka til- kynnast fvrir 1. maí 1960 til Óskars Ágústssonar íþróttakennara, Laugum, S.- Þing., eða skrifstofu U.M.F.I., Reykjavik. Svæðakeiipninni verður bagað þannig, að landinu verður skipt í sex keppnissvæði: 1. svæði: Vestfirðir, nema Strandasýsla og Austur-Barðastrandarsýsla. 2. svæði: Strandasýsla og Húnavatns- sýslur. 3. svæði: Skagafjarðar-, Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. 4. svæði: Austfirðir og Austur-Skafta- fellssýsla. 5. svæði: Árnes-, Rangárvalla- og Vest- ur-SkaftafelIssýsla, Keflavik, Kópavogur og Kjósarsýsla. 6. svæði: Borgarfjarðar-, Mýra-, Snæ- fells- og Hnappadalssýsla, Dalasýsla og Austur-Barðastrandarsýsla. Stjórn liéraðssambands hvers svæðis mun ákveða keppnisstað og tíma í sam- ráði við framkvæmdanefnd landsmótsins. Verður keppnin útsláttarkeppni og leik- tími í knattspyrnunni 2x30 mínútur en handknattleik kvenna 2x15 minútur. Síð- ar verður tilkynnt um tilliögun úrslita- keppninnar. Um önnur atriði varðandi íþróttir, hóp- sýningar, starfsíþróttir og þjóðdansa verð- ur rætt í næstu heftum Skinfaxa. Þá verð- ur einnig getið þeirra þátta mótsins ann- arra, sem ákvarðanir hefur verið liægt að taka um. Ármann Pétursson.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.