Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 4
Sundmót í Bolungarvík
Guömundur Gíslason
Nú fyrir skömmu er ég var á
ferð vestur á ísafirði á leið minni
til Suðureyrar áþing HVÍfrétti ég
af sundmóti í Bolungarvík. Því
brá ég mér þangað og náði að
fylgjast með síðustu greinunum.
En á móti þessu kepptu auk Bol-
víkinga, Vestri frá Isafirði, Umf.
Grettir frá Flateyri og KR úr
Reykjavík. Er mótið var búið náði
ég að spjalla aðeins við Huga
Harðarson þjálfara Bolvíkinga og
nokkra af yngstu keppendunum.
Hugi Hcnöcnson
Hvað ertu búinn að vera hérna
lengi?
Síðan haustið 1983.
Hvað kom til að þú fórst hing-
að?
Bara að prófa eitthvað nýtt. Ég
var kominn með aðal þjálfara-
stöðuna á Selfossi, og á Aldurs-
flokkamótinu 1983 fékk ég nokk-
ur tilboð. M.a. frá KR. Sundfélagi
Hafnarfjarðar, Vestmannaeying-
um og svo Bolvíkingum. Og leist
mér best á það, því hér er besti
efniviðurinn.
Hvernig er vinnutími þinn?
Yfir vetrartímann er það frá kl.
6.00 á morgnana til 8.00 við þjálf-
un, og svo frá kl. 9.00 til 18.00 við
verslunarstörf. Svo aftur upp í
laug frá 18.30 til 20.00 við þjálfun
og eftir það æfi ég sjálfur.
Voru mikil viðbrigði að koma
hingað frá Selfossi?
Já það má segja það, en mér
var vel tekið er ég kom. Hér er
mjög gott og vingjarnlegt fólk.
Eru margir sundmenn hérna á
landmœlikvarða?
Já! Við erum með mjög mikið
af efnilegu sundfólki, og þar af
tvo sem eiga um 12—14 íslands-
met í sínum aldursflokki. Og svo
unnum við Aldursflokkamótið
síðast, öllum á óvart.
Hvernig er aðstaðan hérna?
Hún er mjög góð, við höfum 16
m. innilaug sem er betra en 25 m.
útilaug. Það versta við þetta er að
við fáum ekki að nota laugina
nema rúman klukkutíma á kvöld-
in, en þyrftum að nota hana mun
lengur. Yngri flokkarnir eru þó á
daginn eftir skólatíma.
Er mikill áhugi á sundi?
Já mjög mikill myndi ég segja.
Er stutt vel við bakið á ykkur?
Já, bæði af fyrirtækjum og
einstaklingum. Við erum nú í
sumar að fara til Hollands í
æfingabúðir með um 25—30
manns. Það er fjármagnað að
mestu leyti með áheitum og
stuðningi frá einstaklingum og
fyrirtækjum. Mót eru líka mjög
vel sótt hér, mun betur en í
Reykjavík.
Að lokum œtlarðu að vera
hérna áfram?
Já, fram yfir Aldursflokkar
mótið, en þar ætlum við að halda
titlinum. Ég er sarnt ekki búinn
að ákveða hvert ég fer eða hvað ég
geri.
4
SKINFAXl