Skinfaxi - 01.04.1985, Blaðsíða 30
Fréttii crf þingum
Þing USAH
68. ársþing USAH var haldið á
Blönduósi þann 17. feb. s.l. í um-
sjá Umf. Vorðboðans. Þingið var
fjölsótt, enda voru þar mætt öll
fimm ungmennafélög sambands-
ins með fullskipað lið. Gestir
þingsins voru Pálmi Gíslason og
Guðmundur Haukur Sigurðsson
frá UMFÍ og Sveinn Björnsson og
Hermann Guðmundsson frá ISÍ.
Stjórnin lagði fyrir þingið
vandaða ársskýrslu ásamt afreka-
skrá í frjálsum íþróttum. Kom þar
fram að starfið á liðnu ári hafði
verið með hefðbundnum hætti,
blómlegt á flestum sviðum, en
hæst bar óvenju góður árangur
frjálsíþróttaliðs á Landsmóti, en
þar lenti það í fimmta sæti. Fjöldi
tillagna var samþykktur á þinginu
um hin margvíslegustu mál, m.a.
um íþróttir, ungmennabúðir,
skógrækt o.fl.
Á þinginu var lýst kjöri íþrótta-
manns ársins hjá USAH. Titilinn
hlaut að þessu sinni Sólveig
Stefánsdóttir Umf. Geislum, en
hún kom sá og sigraði á sinu fyrsta
keppnissumri í frjálsum íþróttum
og bætti sýslumet í öllum lengri
hlaupum verulega.
í matarhléi sæmdi Pálmi Gísla-
son fráfarandi formann USAH
Valdimar Guðmannsson starfs-
merki UMFÍ. Valdimar tók við
formennsku á miðju s.l. ári þegar
Björn Sigurbjörnsson flutti burt
úr héraðinu. Nýr formaður
USAH var kjörinn Stefán Haf-
steinsson Blönduósi.
Guðm.H.
Ársþing USÚ
Ársþing USÚ var haldið að
Holti, Mýrum laugardaginn 6.
apríl.
Geir Þorsteinsson form. USÚ
setti þingið með stuttri yfirlits-
ræðu um síðasta starfsár USÚ,
en að sumu leiti hefur þetta verið
nokkuð erfitt ár.
Um 20 fulltrúar frá 7 félögum
mættu til þings og gengu þingstörf
vel.
Tillögur sem samþykktar voru á
þinginu fjölluðu m.a. um bætta
íþróttaaðstöðu á svæði USÚ,
þjálfaramál, fræðslumál, móta-
hald USÚ, átak í skógrækt, aukna
upplýsingamiðlun af störfum
sambandsins og svo tillögur um
fjármál.
Eitt nýtt félag gekk í USÚ á
þessu þingi, en það var Skotfélag-
ið á Höfn í Hornafirði.
Geir Þorsteinsson gaf ekki kost
á sér til áframhaldandi formanns-
starfa og var Svava Arnórsdóttir
kosin formaður sambandsins.
Sigurður Geirdal sótti þingið af
hálfu UMFÍ. S.G.
Þing U.M.S.E.
Þing UMSE var haldið í Þela-
merkurskóla í febrúar s.l. Þar voru
mörg mál rædd þó einkum mál-
efni hinna ýmsu íþróttagreina. Þá
var nokkuð fjallað um skógrækt
og sumarbúðir. Sigurgeir Hreins-
son gaf ekki kost á sér áfram, sem
formaður og var Daníel Björnsson
kosinn í hans stað. Að hálfu
UMFÍ sóttu þingið Sigurður Geir-
dal og Guðmundur Gíslason og
frá Í.S.Í. Jón Ármann Héðinsson.
61. áisþing UMSK
Þingið var haldið í Kópavogi 10.
feb. s.l. í umsjá Umf. Breiðabliks.
Kristján Sveinbjörnsson flutti
skýrslu stjórnar, en ýmis stór verk-
efni einkenndi þetta starfsár hjá
UMSK. Þar bar hæðst landsmót-
ið, Gaukurinn ’84 og húsnæðis-
mál.
Þingið sóttu um 30 fulltrúar frá
9 aðildarfélögum, auk gesta frá
UMFÍ, ÍSÍ, FRÍ og heimaaðilum.
Svanhildur Kristjónsdóttir var
útnefnd afreksmaður UMSK ’84,
Jón Ingi Ragnarsson félagsmála-
maður UMSK ’84 og einnig var
Ólympíuförum UMSK afhent sér-
stök viðurkenning þeim: Jóni Pét-
urssyni og Gunnlaugi Jónssyni
(siglingar) og Brynjari Kvaran
(handknattleikur).
Af helstu tillögum sem þingið
samþykkti má nefna tillögur um
skógrækt, útbreiðslustarf, félags-
málafræðslu, útihátíð, landsmóts-
umsókn v/landsmóts 1990, um
Getraunir, LOTTO o.fl.
Á þinginu sæmdi Pálmi Gísla-
son formaður UMFI Axel Jóns-
son gullmerki UMFÍ.
Kristján Sveinbjörnsson form.
UMSK gaf ekki kost á sér til end-
urkjörs og var Katrín Gunnars-
dóttir kjörin formaður sambands-
ins.
Þing UMSB
Þing UMSB var haldið að
Varmalandi 23. febr. s.l. og var vel
sótt eða 52 fulltrúar mættir.
Formaður sambandsins Þórir
Jónsson setti þingið og bauð full-
trúa og gesti velkomna. Tilnefndi
starfsmenn og flutti síðan yfirlits-
ræðu um störfin á liðnu ári.
30
SKINFAXI