Skinfaxi - 01.04.1985, Blaðsíða 6
Hefurðu unnið til verðlauna?
Já, ég hef unnið fimm.
Einhver í dag?
Já, silfur fyrir bringusund. Ég
keppti Iíka í skriðsundi, en ekki í
flugsundi núna. En hef bara einu
sinni keppt í flugsundi þar sem
voru verðlaunapeningar, og ég
vann einn.
Passarðu verðiaunagripina þína
vel?
Já, ég geymi þá í herberginu
mínu.
Þekkir þú Skinfaxa?
Á frúnni í
glímukeppni
Sömu helgi og þing H.S.Þ. var
haldið þurftu glímumenn þess að
skreppa til Reykjavíkur á glímu-
mót. Eitthvað gekk erfiðlega með
flug þann dag sem farið var, og
voru keppendur orðnir úrkula
vonar um að komast suður vegna
seinkunar á flugi. En þegar
„neyðin er stærst er hjálpin
næst“, segir einhvers staðar,
þannig var það i þetta skipti. Þvi
er glímumenn voru farnir að af-
skrifa það að komast suður birtist
Ómar Ragnarsson á flugvellin-
um, en hann hafði verið að
skemmta í Sjallanum kvöldið
áður og var að fara suður. Hann
kvað það alveg sjálfsagt að taka
glímumennina með sér í frúna, og
komust þeir á mótið og stóðu sig
með glæsibrag og unnu mótið.
Það eru ekki allir sem fara á
frúnni til keppni, en kannski er
það best af árangur á að verða
góður.
Já, hann er keyptur heima hjá
mér.
Á mótinu voru veittir bikarar
fyrir bestu afrek í hverjum flokki,
og hlutu eftirtalin bikar.
Tátur
Erna Jónsdóttir UMFB
Hnokkar
Þór Pétursson Vestra
Meyjar
Heiðrún Guðmundsdóttir
UMFB
VeiStu
svarið?
1. Hvað heitir fyrsta bókin er
kom út eftir Halldór K. Lax-
ness?
2. Hvaða ár varð Danakonungur
einvaldur á íslandi?
3. Hvert er hæsta fjall í Austur-
landskjördæmi?
4. Hver fann upp og fullgerði
fyrstu ljósaperuna?
5. Til er tungumál er heitir
Mandarín. í hvaða landi er það
talað?
ó.Hvað er 60 ára brúðkaupsaf-
mæli nefnt?
7. Hver er minnstur hérlendra
fugla?
8. Hver er stærsta lífvera jarðar-
innar?
9. Hvert er lengsta fljót jarðar-
innar?
lO.Hvað þýðir mannsnafnið
Glúmur?
Svör á bls. 13.
Strákar
Guðmundur Arngrímsson
UMFB
Telpur
Hildur K. Aðalsteinsdóttir
UMFB
Drengir
Hannes M. Sigurðsson UMFB
Konur
Helga Sigurðardóttir Vestra
Karlar
Símon Þ. Jónsson UMFB
Þess má að lokum geta að Bol-
vikingar unnu 13 greinar af 16.
Tœknimál
Nú er nýútkomið 1. tbl. 2. árg.
Tæknimála. Blað þetta er mjög
vandað í alla staði. Meðal efnis
eru greinar eftir Ágúst Ásgeirsson
um þjálfun millivegalengda- og
langhlaupara í Portúgal, grein um
hoppstökk, um gildi þeirra fyrir
snerpu og hraðþjálfun. Þá er
einnig grein eftir Jón Diðriksson
um gildi upphitunar, o.fl. Blað
þetta er prýtt fjölda mynda og
línurita og á vissulega erindi til
allra frjálsíþróttamanna og þjálf-
ara og þá sem á annað borð vilja
og þurfa að fylgjast með því sem
efst er á baugi í þjálfun frjáls-
íþróttamanna. Áskriftarverð er
kr. 300,00 og koma út 4 blöð á ári.
ó
SKINFAXI