Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 7
Ungmenna
vika NSU 1985
„Vikan“ verður að þessu sinni í
Kannonkoski í Finnlandi dagana
21,—28. júlí.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast i síðasta lagi í fyrstu vik-
unni i júní. Áætlað er að á vikuna
komi rúmlega 80 þátttakendur.
Tilkynningar hafa þegar borist
sem hér segir:
Noregur 19 þátttakendur
Færeyjar 10 þátttakendur
ísland 10—15 þátttakendur
SDU 15—20 þátttakendur
Finnland, Svíþjóð, Danmörk
væntanlegt á næstu dögum.
Meðal viðfangsefna á dag-
skránni má nefna:
1. Tónlist þrír mism. hópar.
2. Föndur m.a. keramik — jurta-
litun — tréföndur o.fl.
3. Útivist — veiðiferðir — brim-
bretti — knattleikir — leikir
— videovinna.
4. Annað. Skoðunarferðir —
rokkhátíð — heimsókn til
fjölskyldna, Nicaragua kvöld
— þróunarlandakvöld —
diskótek — kvikmyndasýns-
ingar — guðsþjónusta —
dansleikir.
Frá heimsókn til DDGU 1981.
5. Umræður um ferðamál, ferða-
kostnaður ungs fólks innan
Norðurlandanna.
Áætlað verð er 900 Fkr. eða um
5.800 íkr.
Búið verður í skólastofum ef
með þarf en annars í nemenda-
vistum.
Þátttakendur eru beðnir að
taka með eða senda áður, þá tón-
list sem vinsælust er (rokk/popp)
í hverju landi og einhverjar uppl.
um samtökin sem þeir koma frá,
og gjarnan einhver hljóðfæri og
söngbækur. Svefnpoka skal taka
með.
Reiknað er með gesti — gestum
frá Ungmennasamtökum Sama
(en þeir hafa með sér samtök sem
nær yfir þrjú lönd — þetta eru
8—10 félög með um 1200 félög-
um).
Ferðamáti islensku þátttakend-
anna er í athugun, en reynt verður
að koma þeim í bil með Norð-
mönnum o.fl. frá Osló.
Rætt hefur verið við Freygarð
Þorsteinsson einn af þátttakend-
um frá síðustu „viku“ um að taka
að sér fararstjórn.
S.G.
Norrœn
ungbœndavika
Dagana 28. feb. til 4. mars var
haldin á Akureyri Norræn ung-
bændavika. Þátttakendur voru
frá Danmörku, Svíþjóð, Finn-
landi, Noregi og íslandi alls 26
þátttakendur. Búið var í Hrafna-
gilsskóla og voru allir fyrirlestrar
þar. Þá var farið um nærliggjandi
héruð og ýmislegt skoðað eins og
t.d. skinna og ullarverksmiðjan á
Akureyri, einnig var refabú skoð-
að, og síðast en ekki síst var farið
í heimsókn til kúa- og fjárbænda.
Þótti þessi vika hafa tekist með
miklum ágætum í alla staði, og
voru menn mjög ánægðir með þá
fyrirlestra sem fluttir voru.
Tvær aö spjalli.
SKINFAXI
7