Skinfaxi - 01.04.1985, Blaðsíða 15
SvíþjódŒ
íeiö
Dagana 17.—21. apríl var fund-
ur hjá NSU og námskeið, í Lin-
köping í Svíþjóð. Þangað fóru frá
UMFI Pálmi Gíslason, Sigurður
Geirdal og Guðmundur Gíslason.
Á námskeiðinu var einkum rætt
um samskipti hinna norður-
landaþjóðanna við ríki í Afríku
og þá helst Tanzaníu og
Nigaragua. Þá var líka rætt um
ferðakostnað innan norðurlanda,
og fannst mönnum heldur dýrt
fyrir Islendinga að ferðast til út-
landa. Voru móttökur og allur
viðgjörningur mjög góður, en þó
fannst okkur skrýtin tímasetning
á matmálstímum. Þvi kvöldverð-
ur var kl. 17.00 og svo var ekkert
snætt fyrr en kl. 8.00 næsta morg-
un, en við lifðum þetta nú af þó
við fitnuðum ekki i ferðinni.
Eitthvaö hefur Siggi gert af sér.
Athugasemd
í Skinfaxa blaði UMFÍ 1. tbl.
1985 er spurningaþáttur. Ein
spurningin er „Hvar var fyrst
stofnað ungmennafélag á ís-
landi?“ Svar blaðsins er „Á Akur-
eyri 1906“. Þetta hefur sést áður,
en er jafn hæpinn sannleikur eigi
að síður. Skulu færð hér nokkur
rök að því: Frá stofnun UMFÍ
hafa verið í því félög sem stofnuð
eru fyrir 1906. Skulu dæmi nefnd
hér úr héraði og má vera að svo sé
víða.
1. í Bárðardal er stofnað ung-
mennafélagið Eining árið 1892.
2. í Reykjadal er stofnað 1904
ungmennafélagið Efling.
Bæði þessi félög stóðu að stofn-
un HSÞ og starfa þar enn, og
fylgdu eðiliega HSÞ í UMFÍ. En
sagan er lengri. Faðir minn sagði
mér að þegar hann var í Laxárdal
árin 1874—1893 hafi verið þar
ungmennafélag. Því miður spurði
ég ekki frekar um félagið, en nú á
síðari árum hef ég leitað fregna af
þessu félagi. Jú félagið hafði verið
til en fregnir fáar. Síðasta fregn
um félagið var frá 1902. Þá gefur
félagið húsbyggingarsjóð er það
átti til byggingar brúar á Laxá hjá
Brettningastöðum. Meiri sögn um
félagið er ekki í minnum manna
og ritað mál um félagið fannst
ekki, utan böggul í dóti föður
míns sem nú er kominn á Skjala-
safnið á Húsavík. í bögglinum var
eitt blað af Laxdæling sem félagið
hafði gefið út, sjöunda blaðið það
árið, ártalið man ég ekki. í böggl-
inum voru líka margar ritgerðir á
lausum blöðum. Þetta sannar
sögu föður míns um ungmennafé-
lag í Laxárdal á timabilinu
1874—93. Jafn augljóst er að saga
ungmennafélaganna er ekki öll
eða rétt sögð ef hún er talin hefjast
með félagi 1906.
Glúmur Hólmgeirsson
Athugasemd ritstjóra
Er ég lét þessa umræddu spurn-
ingu ásamt svari í síðasta blað fór
ég eftir því sem er alltaf gengið út
frá og er skráð á fleiri en einum
stað, að fyrsta ungmennafélagið
var stofnað 1906 á Akureyri.
SKINFAXI
15