Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 16
Slcákþáttur
Alþjóðleg skákmót á íslandi
voru að jafnaði haldin einu sinni á
tveggja ára fresti þar til í fyrra, að
brá til betri vegar. Þá voru alþjóð-
legu mótin hér fjögur og í ár verða
þau a.m.k. jafnmörg. Og nú fá
íbúar höfuðborgarsvæðisins ekki
einir að njóta listarinnar. Jóhann
Þórir Jónsson, ritstjóri tímaritsins
Skákar, tók af skarið og skipu-
lagði mót í Grindavík fyrir réttu
ári og síðan hefur hann staðið fyr-
ir mótum í Neskaupstað, á Húsa-
vik og i Borgarnesi og í maí er fyr-
irhugað mót í Vestmannaeyjum.
Mótin hata þannig tekið við af
helgarmótunum, sem fóru eins og
eldur í sinu um landið.
Það yljar alltaf íslendingnum
um hjartarætur að heyra minnst á
land og þjóð úti í heimi eða lesa
um afrek landans á prenti. í
erlendum skáktímaritum hefur
verið borið mikið lof á þau al-
þjóðamót sem hér hafa verið hald-
in. Aðstæður rómaðar og fram-
kvæmd þótt snuðrulaus. Skákir
frá mótunum lifa svo áfram og
þeirra er getið um ókomin ár,
t.a.m. í byrjanabókum og þá er
jafnan nefnt hvar og hvenær skák-
in er tefld.
í byrjanabókum framtíðarinn-
ar má búast við að Húsavíkurbæ
verði minnst, einkum í þeim bók-
um sem fjalla um spænska leik-
inn. Séra Lombardy hristi þar
fram úr hempunni nánast óþekkt-
Húsavíkurafbrigöi
af spönskum leik
an leik snemma tafls í þessari vin-
sælu byrjun og að sjálfsögðu voru
þeir sem fylgdust með ekki seinir
á sér að nefna þessa nýjung hans
„Húsavíkurafbrigðið af spænsk-
um leik“. Er leið á mótið fékk
hann aftur tækifæri til þess að
beita þessum leik og hélt auðveld-
lega jöfnu gegn Guðmundi Sigur-
jónssyni. Aðrir keppendur fylgd-
ust með þessum skákum af áhuga
og einn þeirra, Anatoly Lein,
stóðst ekki freistinguna og prófaði
sjálfur, í skák sinni við Pálma Pét-
ursson. Uppskeran úr þessum til-
raunum þeirra félaganna varð tvö
jafntefli og einn sigur — vitaskuld
góður árangur með svörtu mönn-
unum, sem hefði getað orðið enn
betri eftir stöðunum að dæma.
Við skulum skoða skák
Lombardys úr 1. umferð, sem var
æsispennandi og í leiðinni fáum
við að kynnast þessu gagnmerka
„Húsavíkurafbrigði“.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: William Lombardy
Spænskur leikur.
I.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3.Bb5 Rf6.
4.0-0 Rxe4 5.d4 Rd6 6.Bxc6 dxc6
7.dxe5 Re4!
Þetta er upphafsleikur „Húsa-
víkurafbrigðisins“. Fram að þessu
hefur hugsunarlaust verið leikið
7.-Rf5, sem leiðir til heldur betra
endatafls á hvítt m.a. vegna þess
að riddarinn á f5 stendur í vegi
Jón L. Áinason
fyrir biskupnum og getur hæglega
orðið fyrir árás hvítu peðanna. Til
marks um ráðleysi riddarans má
nefna skákina Jón L. Árnason —
Lein, frá Húsavíkurmótinu:
7. -Rf5 8.Dxd8+ Kxd8 9.Rc3 Ke8
10.b3 h6 ll.h3 a6? 12.Bb2 Re7
13.Re4 Rd5 14.Hfel Rf4 15.Hadl
Re6 16.Rh4 Bd7 17.Bcl Rc5
18.Rg3 og hvítur, sem hefur í
hyggju að leika f-peðinu fram,
hefur náð mun betri stöðu. Svart-
ur lék þarna riddaranum fimm
sinnum í sex leikjum!
Lombardy sagðist hafa séð
minnst á textaleikinn í skýringum
eftir Tigran heitinn Petrosjan,
fyrrum heimsmeistara og aðstoð-
armanna hans, Aleksei Suetin. En
þessi uppástunga þeirra hefur ekki
verið reynd fyrr í tefldu tafli svo
vitað sé.
8. De2
Guðmundur Sigurjónsson
komst ekkert áleiðis gegn
Lombardy með því að fara í
drottningakaupin, enda er staða
riddarans nú betri. Svartur hefur
ákaflega trausta stöðu og biskupa-
parið gæti orðið sterkt.
8. -Bf5! 9.Hdl
Petrosjan og Suetin gefa upp
framhaldið 9.Be3 Bg6! 10.Rd4
Bc5 ll.Hd;l De7 12.f3 Rg5 13.Rc3
0-0-0 og svartur er ekki langt frá
því að hafa jafnað taflið.
9. -Dc8 10.g4?!
16
SKINFAXI