Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 18
I Þelamerkuskóla
Fyrir stuttu er ég var á ársþingi UMSE í Þelamerkurskóla ræddi ég
stuttlega við þessa hressu krakka sem eru í skólanum. Þau sögðu að það
væru 41 í heimavist, nemendur í 8. 9. og hluti 7 bekkjar, en allir færu
heim um helgar. Það sem þau gerðu helst í frístundum væri að stunda
iþróttir og þá einkum sund, knattleik og þrekæfingar. En íþróttasalur
skólans er frekar litill og gefur ekki tækifæri til að stunda boltaíþróttir
nema mjög takmarkað. Er ég spurði þau hvort margir nemendur reyktu
sögðu þau að það væru mjög fáir. Þegar ég gekk um skólann, sem er
mjög vistlegur, veitti ég því athygli að nemendur hafa unnið til margra
verðlauna fyrir skák og spurningakeppnir. Og er öllum verðlaunagrip-
um komið fyrir í glerskáp á gangi við hliðina á bókasafni skólans. Að
lokum spurði ég þau að því hvort þau könnuðust við SKINFAXA. Ekki
kváðust þau gera það, en vonandi kynnast þau honum sem fyrst.
Hressir krakkar.
Fréttir af skrifstofu
Ásta Kata og nýja ritvélin.
Nú hefur verið keypt á skrifstofuna ný ritvél og ljósritunarvél. Þessi
nýju tæki eiga örugglega eftir að auðvelda alla þjónustu við samböndin
og félögin innan UMFÍ. Ljósritunarvélin er af U-Bix gerð, ekki ósvipuð
þeirri sem Jón Guðjónsson kom með tillögu um á síðasta Sambands-
ráðsfundi. Getur hún bæði minnkað og stækkað eftir vildi. Ritvélin er
af SHARP gerð og hefur mjög mikla möguleika sem koma sér vel í
þeirri starfsemi sem fer fram á skrifstofu UMFÍ. Þannig að skrifstofan
er nú vel búin tækjum og er það vel.
Prentvillupúkinn
Einn er sá púki sem ekki virðist vera hægt að útrýma en það er prent-
villupúkinn. Hann gerði okkur smá-grikk í siðasta blaði. Hann vildi láta
íþróttakennaraskóla íslands vera stofnaðan fyrir aldamót, en hann er í
raun stofnaður árið 1943. Hann gerði okkur líka nokkra aðra grikki,
einkum að fella niður stafi á nokkrum stöðum bæði í texta og fyrirsögn-
um. Það er þó ekki hægt að kenna honum um eina villu er varð í afreka-
skránni í frjálsum íþróttum en þar féll niður nafn eins keppenda er stökk
1,91 m í hástökki. Það var Einar Sigurðsson og biðjum við hann velvirð-
ingar á þessum mistökum. Fyrst við erum að tala um afrekaskrána þá
eru eflaust margir sem sakna ýmissa nafna í henni. En skrá þessi er
byggð á þeim skýrslum sem borist hafa til FRÍ. Og ef eitthvert nafn vant-
ar í skrána þá hefur skýrsla um það mót ekki verið send FRÍ. En hvað
um það, við ætlum nú að reyna að svelta prentvillupúkann alveg í hel,
eða að minnsta kosti grenna hann örlítið. Prentvillupúkinn.
18
SKINFAXI