Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 23
Aukið staif með
íðtluðu fóIM
Siguiöur R. Guömundsson
Ágætu ungmennafélagar!
Tilefni þess að ég sest niður og
skrifa nokkrar línur í Skinfaxa er
annars vegar fundur, sem ég átti
með forustumönnum íþróttasam-
þands fatlaðra, og hins vegar ein
samþykkt ungmennafélaganna á
síðasta sambandsþingi, þar sem
lögð er áhersla á rekstur sumar-
búða á þessu ári — ári æskunnar.
Forustumenn Iþróttasambands
fatlaðra ræddu af miklum áhuga
um rekstur sumarbúða fyrir fati-
aða og ræddum við málið fram og
aftur.
Hér má skjóta því inn í að síð-
ustu 5 árin, sem ég rak íþrótta-
skóla minn, var starfsemin mest
sniðin við fatlaða.
Að fenginni mjög svo ánægju-
legri reynslu af að halda slík nám-
skeið, þar sem meira og minna
fatlað fólk og ekki fatlað tók þátt
í íþróttum, félagsstarfi og al-
mennri samveru, geri ég það hik-
laust að tillögu minni að forustu-
menn íþróttasambands fatlaðra
og Ungmennafélags íslands hittist
og ræði hugsanlegt samstarf. At-
huga mætti um einn eða fleiri
staði í hverjum fjórðungi, þar sem
samið væri við viðkomandi hér-
aðssambönd um að gefa t.d. 5—10
fötluðum einstaklingum tækifæri
til að vera með i búðum þeirra. Að
sjálfsögðu greiðir hver fyrir sig.
íþróttasamband fatlaðra myndi
væntanlega útvega leiðbeinendur
fyrir þetta fólk, þar sem þess
þyrfti.
Ég vil að lokum benda á eftir-
farandi:
1. Það á ekki að stía sundur þeim,
sem eru fatlaðir og þeim, sem
ekki eru fatlaðir. Báðir aðilar
hafa gagn og gaman af að
starfa saman auk þess sem það
eykur skilning og jákvætt við-
horf þessara aðila hvors til
annars.
2. Við skulum ekki gera of mikið
úr vandanum með aðstæður á
viðkomandi dvalarstað. Heið-
arskóli er á engan hátt hann-
aður fyrir fatlaða. Hér verðum
við að viðurkenna að samfé-
lagið hefur ekki staðið við að
hanna skólana fyrir fatlaða.
Meðan svo er þýðir ekki að gef-
ast upp. Ef við ætlum að sinna
þessu verkefni þá gætum við
það. Við lagfærum einfalda
hluti til að bæta aðstöðuna en
annað yfirstígum við með auk-
inni aðstoð.
Ungmennafélgar um land allt
— þið, sem vinnið að kjörorðinu
— ræktun lýðs og lands — ég
skora á ykkur að gera virkilegt
átak í því að taka fatlað fólk með
okkur í ungmennafélagsstarfið í
auknum mæli. Með því getum við
bjargarð mörgum einstaklingnum
víðs vegar um landið frá einveru,
afskiptaleysi og hugarvíli.
Með ungmennafélags kveðju
Sigurður R. Guðmundsson
SKINFAXI
23