Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 26
Vísnaþáttui Skinfaxa
Alltaf ber nokkuð á því að
ekki berist botnar við fyrri-
parta eftir að viðkomandi blað
er komið í prentun eða jafnvel
komið út.
Þetta er bagalegt af þeim
sökum að þarna eru oft prýði-
legir botnar á ferðinni, en við
værum nánast að endurtaka
efni síðasta blaðs ef við birtum
þá. Ég vil því biðja menn að
draga ekki lengi að senda mér
botna eftir að þeir fá blaðið i
hendur.
í síðasta þætti komu botnar
frá Jóhannesi Sigmundssyni
við fyrriparta N.N. og
Jóhannes sendi boltann áfram
til Pálma Gíslasonar í formi
þriggja fyrriparta. Nú hefur
Pálmi botnað og hér er árang-
urinn.
Nu' er hafið ceskudr,
unga fólkið styðjum.
Forðumst bjór og fleiri krdr,
fyrir hópnum biðjum.
Að hafa pdlma í höndunum
hygg e'g margur kjósi.
Víða beittu vöndunum
vondir menn í fjósi.
Oft við saman eigum fund
er þd gaman stundum.
Bauð sig daman létt í lund,
þið leiðitaman bundum.
En það voru fleiri en Pálmi
sem glimdu við fyrriparta
Jóhannesar, en þeim gekk mis-
jafnlega enda buðu fyrripart-
arnir ekki upp á marga mögu-
leika.
J.F.Hj. hefur vísurnar svona,
en honum hefur yfirsést, síð-
asti fyrriparturinn en byrjunin
á hringhendu.
Nú er hafið æskudr,
unga fólkið styðjum.
Héðan víki vímufdr,
vil ég al/ir biðjum.
Að hafa pdlma I höndunum,
hygg ég margur kjósi.
Heiður lífs í löndunum,
lagður í sveig með hrósi.
Oft við saman eigum fund,
er þd gaman stundum.
Ávöxtum þd okkar pund,
einkum þó hjd sprundum.
Þá laumaði N.N. til okkar
eftirfarandi útgáfu.
Nú er hafið ceskudr,
unga fólið styðjum.
Veiti gæfu henni har,
herrann, þessa biðjum.
Að hafa pdlma í höndunum,
hygg ég margur kjósi.
Bagan fór úr böndunum,
botninn úti ífjósi.
Oft við saman eigum fund,
er þd gaman stundum.
En sé að framan föðmuð
sprund,
fjölgar daman pundum.
Og svo að lokum einn ágæt-
ur við hringhenduna frá Sæv-
ari Sigurgeirssyni
Oft við eigum fund
er þú gaman stundum.
Hressum gaman, léttum lund
lítt við ama dundum.
Þá er alltaf nokkuð um
kveðskap á þingum héraðs-
sambandanna og verða þar til
margar ágætar vísur.
Á þingi UMSE nú í vetur
misritaðist orð í tillögu um
menntun knattspyrnuþjálfara,
þannig að tillagan hljóðaði
uppá það að knattspyrnuþjálf-
arar yrðu sendir á námskeið
fyrir „frjálsíþróttaþjálfara“.
Sigurður Geirdal fram-
kvæmdastjóri UMFÍ sem
þarna var staddur taldi þetta
bráðsnjalla tillögu og lýsti því á
eftirfarandi hátt:
Iþrótt ný d norðurslóð,
nú mun reynast feykna góð.
Andstæðinga mörkum mót,
munum nota kúlu og spjót.
En þá er komið að fyrri pört-
um þeim sem Pálmi Gíslason
skorar á Helga Seljan að botna
og auðvitað eru allir aðrir vel-
komnir í leikinn.
Ríkisstjórnin rdðlaus er,
reynir þó uð lafa.
Flestir hafa lítil laun,
en lifa af gömlum vana.
Ekkert far né trega tdr,
tengist dri þessu.
Með bestu kveðjum.
Ásgrímur Gíslason.
26
SIUNFAXI