Skinfaxi - 01.04.1985, Side 27
Noriœna
sundkeppnin
úislit
Þá eru heildarúrslitin kunn í
Norrænu sundkeppninni 1984.
Þau úrslit sýna að geysilegur
áhugi er á sundi sem almennings-
trimmi. Þó þátttaka og árangur
hafi ekki orðið eins og á árunum
1954 og 1972 þá ber þátttakan
þessi greinileg merki að hinn al-
menni notandi lauganna er trúr
sinni eftirlætisíþrótt — SUND-
IÐ. Alls munu 15.397 einstakling-
ar hafa synt 200 metrana að þessu
sinni og er það að vísu mun minni
þátttaka en forráðamenn höfðu
Höröui S. Óskarsson
vænst. Þar kemur margt til sem
ekki er ástæða til að tíunda hér en
greinilegt er að meiri og betri
undirbúningur undir slíka fjölda-
keppni þarf að eiga sér stað ef til
allra aðila á að nást.
En þrátt fyrir ónógan undir-
búning voru margir sundstaðir
sem tóku rækilega við sér og
sýndu framúrskrandi góða þátt-
töku og er eftirtektarvert að þar
er um að ræða nýja sundstaði eins
og Sandgerði, Hvammstanga,
Flateyri og Stöðvarfjörður. Svo
vor gamalgrónir staðir ofarlega á
blaði eins og Húsavík, Selfoss og
Neskaupstaður sem kom sannar-
lega á óvart með góðri þátttöku.
Að lokum birtum við svo röð
15 efstu sundstaðanna í keppn-
inni svo og innbyrðiskeppni sund-
staða á Austurlandi (UÍA).
sund hlutf.
1. Sandgerði 14.198 11.85
2. Hvammstangi 6.382 10.34
3. Flateyri 3.326 6.52
4. Húsavík 15.362 6.11
5. Neskaupstaður 9.561 5.67
6. Stöðvarfjörður 1.804 5.24
7. Tálknafjörður 1.740 4.95
8. Selfoss 17.828 4.94
9. Bolungarvík 5.624 4.41
10. Þorlákshöfn 3.939 3.68
11. Ólafsfjörður 4.036 3.34
12. Vestmannaeyjar 13.977 2.94
13. Borgarnes 5.003 2.86
14. Sauðárkrókur 6.510 2.80
15. Grundarfjörður Staðir innan UIA: 1.951 2.79
Neskaupstaður 9.561 5.67
Stöðvarfjörður 1.804 5.24
Reyðarfjörður 1.011 1.39
Egilsstaðir 1.751 1.38
Seyðisfjörður 1.266 1.27
Eskifjörður 1.188 1.09
Eiðar 51 0.32
Vopnafjörður 102 0.10
Djúpivogur 26 0.06
Fáskrúðsfjörður 25 0.03
Námskeiö fyrir félagsmálakennara
Æskulýðsráð ríkisins hélt nám-
skeið fyrir félagsmálakennara fyr-
ir skömmu. Leiðbeinendur voru
Níels Árni Lund, Guðmundur
Guðmundsson og Diðrik Har-
aldsson en þeir eru allir leiðbein-
endur hjá félagsmálaskóla UMFÍ.
Alls voru 14 þátttakendur á
námskeiðinu og þar af 8 frá ung-
mennafélögunum.
Þeir eru:
Hörður S. Óskarsson UMFÍ
Þórir Haraldsson HSK
Guðmundur Ingvarsson HSK
Gréta Sörensdóttir USAH
Sigríður Þorvaldsdóttir UMSB
Eru þau hér með boðin velkom-
in í hóp leiðbeinenda UMFÍ. Auk
þess komu 3 gamlar kempur til að
rifja upp en þau voru:
Hólmfríður Pétursdóttir.
Ingimundur Ingimundarson.
Ársæll Þórðarson.
Ekki þarf að hafa mörg orð um
það hve nauðsynlegt það er að
hafa ávallt gott lið kennara ef
halda á félagsmálaskólanum með
þeirri reisn sem verið hefur. Enn
eru svæði sem búa ekki vel að
kennurum og er það umhugsunar-
vert, því alltaf er óhagræði af því
að fá kennara langt að, þó ekki sé
nú talað um kostnaðinn.
SKINFAXl
27