Skinfaxi - 01.04.1985, Qupperneq 31
Fjölmargir tóku til máls og
urðu fjörugar umræður bæði um
skýrsluna og svo um ályktanir
starfsnefnda.
Helstu mál sem fjallað var um
voru: íþróttamál, skógrækt, sum-
arbúðir, örnefnasöfnun, merking
heimreiða að bæjum, verkefni
UMFÍ á ári æskunnar og Skin-
faxi, málgagn UMFI. Þá var og
sérstök ályktun um bók UMFÍ
„Ræktun lýðs og lands“.
í lokin lýsti Þórir Jónsson yfir
að hann gæfi ekki kost á sér til
formennsku og var Kristinn F.
Axelsson Bakkakoti II, Stafholts-
tungnahr., kosinn formaður
UMSB. En Þórir þökkuð mikil og
góð störf fyrir sambandið.
Þeir Pálmi Gíslason, Jón G.
Guðbjörnsson og Hörður S.
Óskarsson sátu þingið sem gestir
frá UMFÍ og þakka þeir góðan
beina og starfsamt þing.
Þing H.S.Þ.
Þing H.S.Þ. var haldið laugar-
daginn 13. apríl að hótel Reyni-
hlíð. Var þingið mjög vel sótt og
vantaði aðeins um 9 fulltrúa til að
fulltrúatalan væri fullskipuð.
Helstu mál þingsins voru væntan-
legt Landsmót U.M.F.Í. á Húsavík
1987 og svo hvort ætti að halda
áfram samkomuhaldi um verslun-
armannahelgina, auk þessara
mála voru mörg önnur sem rædd
voru. Þormóður Ásvaldsson sem
hefur verið formaður H.S.Þ. mörg
undan farin ár gaf ekki kost á sér
aftur og var Kristján Ingvason
kosinn formaður í hans stað. Gest-
ir þingsins voru frá UMFÍ Þór-
oddur Jóhannsson og Guðmund-
ur Gíslason og frá Í.S.Í. Jón
Ármann Héðinsson. Á þinginu
færði forseti Kiwanisklúbbsins
Herðubreiðar H.S.Þ. 40.000 kr. að
gjöf vegna Árs æskunnar. Stjórn
H.S.Þ. skipa nú: Kristján Ingva-
son formaður, Kristleifur Meldal,
Birgir Steingrímsson, Hermann
Herbertsson, Svanhildur Her-
mannsdóttir, Völundur Hermóðs-
son, Hlöðver Pétursson.
Þing HSK var haldið í lok
febrúar að Heimalandi undir
Eyjafjöllum. 100 blaðsíðna fjöl-
rituð og myndskreytt skýrsla
greindi frá mjög öflugu starfi
HSK síðasta starfsár.
Það einkenndist af 3 stórum
verkefnum þ.e. 2 stórum útihátíð-
um og landsmóti UMFÍ en þar
sigraði HSK sem kunnugt er.
Þingið var mjög starfsamt og
miklar umræður um starf og verk-
efni sambandsins en þar bar mest
á tillögum um íþróttamál. Þá urðu
STOFNAÐ1912
Kristinn F. Axelsson formaöur UMSB.
nokkrar umræður um samgöngu-
mál á sambandssvæðinu.
Þing HSK eru tveggja daga
þing. Þá þykir við hæfi að heima-
félagið haldi kvöldvöku með
skemmtiatriðum og hinni vinsælu
sleifarkeppni.
Stjórn HSK var endurkjörin.
Formaður er Guðmundur Kr.
Jónsson. Framkvæmdastjóri er
Jón M. ívarsson. d.H.
usvs
Þing USVS var haldið í Ketils-
staðaskóla 6. apríl s.l. Þingið sótti
af hálfu UMFÍ Pálmi Gíslason.
Frá ÍSÍ mættu Sveinn Björnsson
og Hermann Guðmundsson.
Þingforsetar voru Guðmundur
Elíasson og Sigurjón Árnason.
Þingið var fjölmennt.
Formaður Sigmar Helgason
gerði grein fyrir starfi sambands-
ins, s.l. starfsár. Fram kom að starf
sambandsins hefir verið með
hefðbundnum hætti, þó starfið
einkenndist nokkuð af þátttöku á
Landsmóti UMFÍ. Margar góðar
tillögur voru ræddar og sam-
þykktar m.a. um sumarbúðir,
skógrækt og félagsmálafræðslu.
Fjölgað var í stjórn sambands-
ins úr þrem í fimm. Sigmar Helga-
son var endurkjörinn formaður
sambandsins en með honum í
stjórn eru: Páll Pétursson gjald-
keri. Ólafur Helgason ritari.
Magnea Þórarinsdóttir með-
stjórnandi. Jóhannes Halldórsson
meðstjórnandi.
Þing UMSS
Þing UMSS fór fram að Hólum
í Hjaltadal, laugardaginn 2. mars
s.l.
Þingstörf hófust með því að
formaður sambandsins bauð full-
trúa og gesti velkomna, tilnefndi
starfsmenn og flutti skýrsluna.
SKINFAXI
31