Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 32
Á meðan kjörbréfanefnd starf-
aði flutti séra Sighvatur Emilsson
erindi um Hólastað og var gerður
góður rómur af hans þekkingu
um staðinn.
Fjöldi tillagna komu fram og
voru samþykktar s.s. um móta-
skrá, tilhögun skólamóta, sumar-
búðir o.fl.
íþróttamaður ársins var kjörinn
Gunnar Sigurðsson, Glóðafeyki, í
öðru sæti var Ingibjörg Guðjóns-
dóttir, Tindastól, en hún mun nú
vera nýráðin framkv. stjóri UMSS
í sumar.
Formaður var kosinn Örn Þór-
arinsson frá Ökrum og aðrir í
stjórn Sigfús Jónsson, Þórður
Snorrason og svo þau Ingibjörg og
Gunnar.
Gestir UMFÍ á þinginu voru
þeir Pálmi Gíslason, Þóroddur
Jóhannsson og Hörður S. Óskars-
son. Fluttu þeir kveðjur og stutt
ávörp um þau verkefni sem fram-
undan eru á næsta sumri og
kynntu blað UMFÍ, Skinfaxi og
afmælisritið „Ræktun lýðs og
lands“. Þakkir eru færðar þeim
UMSS mönnum fyrir góðan við-
urgerning í mat og drykk.
Þá voru Guðjón Ingimundar-
syni fluttar sérstakar kveðjur
vegna tímamóta í lífi hans, en
Skinfaxi heiðraði hann sérstak-
lega og helgaði honum forsíðuna
af því tilefni.
U.SVH.
Þing U.S.V.H.
Þing USVH var haldið í Víðihlíð
14/4. Þingið sóttu af hálfu UMFÍ
Pálmi Gíslason og Guðmundur
Haukur. Þingforseti var Kristján
ísfeld.
í skýrslu formanns Páls Sig-
urðssonar kom fram að mikið
starf hefur átt sér stað hjá sam-
bandinu s.l. ár. Fyrir utan ágætt
íþróttastarf er spurningakeppni
milli félaga árlegur viðburður og
þær skemmtanir vel sóttar. Ritið
Húni kemur út árlega og er merk
heimild um menn og málefni í
sýslunni. Mikið var um góðar til-
lögur m.a. um sumarbúðir og að
ákveða hreinsunardag þar sem fé-
lagar hreinsi til meðfram vegum í
sýslunni.
Stjórn USVH var öll endur-
kjörin en hana skipa: form. Páll
Sigurðsson, gjaldkeri Hrólfur
Egilsson, ritari Kristján ísfeld,
meðstj. Lilja Steindórsdóttir,
Steinbjörn Tryggvason.
Þing HVí
71. ársþing HVÍ var haldið að
Suðureyri sunnudaginn 28. apríl.
Var þar helst rætt um fjármál og
mótahald sambandsins, og kom
það fram að héraðsmótið hafði
ekki skilað þeim hagnaði sem
vænst hafði verið. Þá ræddu
menn um að samþykkja minna
og framkvæma meira af því sem
samþykkt væri. Sumarbúðir
verða starfræktar í sumar eins og
áður að Núpi í Dýrafirði. Á þing-
ið voru mættir 18 fulltrúar frá öll-
um aðildarfélögum nema einu.
Mikill hugur var í mönnum í sam-
bandi við plöntun trjáa á Ári
æskunnar og hafa verið plantað-
ar 511 plöntur sem eiga að þola
veðurlagið á svæðinu.
Aðeins einn gestur sótti þingið
og var það Guðmundur Gíslason
frá UMFÍ. Stjórn HVI skipa nú:
Jón Guðjónsson, formaður,
Björn Björnsson, gjaldkeri,
Helga D. Kristjánsdóttir, ritari.
Happdrœtti
UMFÍ
Ifí oo os T—( eð C § M SH Cð \ist
Ungmennafélag íslands lelur nú rúmlega 26 þúsund félagsmenn i 215 félögum og 18 héraOssamböndum viOsvegar um landiO. MarkmiOiO er: liœktun lands og lýOs — og kjörorOiO: Islandi alll.
c c <D £ bn c c -4-ð æ VINNINGASKRÁ: 1 lslcnsk húsgögn 2 Islcnsk húsgögn 3 Videourki 4 Videotxki 5 Milverk 6-8 Hljómflutningsueki 9 Islensk húsgögn 10-11 Heimilistölva (hvor vinn. i kr. 25.000) .... 12 Ctvarp/kisettutzki 13-14 Ctvarp/kasettutzki (hvor vinn. i kr. 15.000) 18-20 LandiS þitt 1-V (hver vinn. i kr. 9.200) .... 21 Ömmu rokkur 22-31 Iþróttabúningur (hver vinn. i kr. 2.500) .... 32-50 Rzktun lýís og lands (hver vinn. i kr. 1.000) Samtals kr. 100.000 60.000 50.000 45.000 40.000 105.000 30.000 50.000 20.000 30.000 27.600 7.400 25.000 19.000 654.000
Utgefnir miðar: 26000
ft Verðmæti vinninga kr. 654.000
a Upplýsingar i síma 14870
cö r-f Dregið 1. ágúst 1985
Cfl Verð miða kr. 150
c Sölulaun til félaga 50% miSaverðs
32
SKINFAXI