Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 37
Minning
Jón Þoisteinsson
íþróttakennari frá Hofsstöðum
/. 3. júlí 1898 d.
Ungmennafélögum var lengi
kunnugur ötull ungmennafélagi, sem
kenndi sig við Hofsstaði í Stafholts-
tungum. Hann er einn stofnandi
umf. Stafholtstungna 1912. Hann er
keppandi í sundi, glímu og hlaupum
fyrir félag sitt á héraðsmótum Borg-
firðinga sem hefst 1913. Hann annast
á árunum 1916—21 sundkennslu í
heimalaug sinni Veggjalaug og enn
fremur að Leirár- og Efri-Hrepps-
laug. Jafnframt sundinu kennir hann
Miillersæfingar, sem hann lærir af
lestri bókarinnar: „Mín aðferð“ (útg.
1911).
Veturinn 1920—21 ferðast Jón fyr-
ir stjórn UMFÍ um Vestfirði. Heim-
sækir umf. og heldur íþróttanám-
skeið. Á þessum árum er Jón virkur
fulltrúi UMSB á sambandsþingum
UMFÍ.
Hjá kennara sínum í barnaskóla
verður Jón fyrir áhrifum af sjónar-
miðum um áhrif. íþróttaiðkana og
eigi verður hann fyrir minni áhrifum
24. mais 1985
í Hvítárbakkaskóla þar sem hann
gerist nemandi 1916 og dvelur í 2 vet-
ur. 1919—20 er hann við nám í Sam-
vinnuskólanum, þar sem þeir Jónas
skólastjóri Jónsson frá Hriflu kynn-
ast enn betur en hann var um þetta
leyti ritstjóri Skinfaxa og sambands-
stjóri UMFI. Utan til náms í íþrótta-
lýðskóla Níels Bukh í Ollerup heldur
Jón 1922. Áður en heim er snúið dvel-
ur hann að loknu námi í Ollerup í
Finnlandi og Noregi. Námsdvöl átti
hann í 3 mánuði í Mullersskólanum í
K-höfn.
Eftir heimkomuna 1924 stofnar
hann sinn Mullersskóla, sem verður
íþróttaskóli J.Þ. er Jón hefur reist á
kreppuárum íþróttahús með 2 sölum
við Lindargötu í Rvk. Þar starfrækir
hann fyrir almenning baðstofu og
hressingarleikfimi. En merkust verða
störf hans fyrir lingerða og þá sem
líkamslýti þjá. Hann fær takmarkað
lækningaleyfi til þessara starfa enda
sótt aukna fræðslu til slíkrar sjúkra-
Minning
Jón Tiausti Þoisteinsson
í. 11. sept. 1911 d. 4. des. 1984
Var íþróttakennari í 24 ár við
íþróttalýðskólann í Sönderborg í
Danmörku og þar lést hann.
Kenndi einnig hjá Níels Bukh í
Ollerup, við íþrótta-lýðskólana í Der-
lev og Ryslinge. Jón fæddist og ólst
upp á Dalvík. Varð ungur félagi í
umf. Svarfdæla og þar mjög virkur.
Var 2 vetur nemandi á héraðsskólan-
um að Laugum. Heldur til náms 1930
í Ollerup og dvelur þar til 1933. Varð
mjög handgenginn skólastjóra. Dvel-
ur hérlendis 1933—36 en snýr til Dan-
merkur aftur og nemur iþróttafræði.
Lýkur íþróttakennaraprófi 1937. í
íþrótta-lýðskólanum er ungu fólki
kennt að leiðbeina í félögum við
íþróttaiðkanir. Jón verður í kennslu
sinni í lýðskólanum virkur félagi
þessa fólks um langt árabil formaður
samtaka þeirra. Vegna þessara starfa
tengist hann náið öllum 3 stjórnum
samtaka danskra skotfélaga, leik-
finri- og íþrótta- og ungmennafélaga.
Þegar unnið var að þvi að ná sam-
vinnu við þessi samtök, var leitað til
Jóns og gekk hann rösklega fram í því
máli, svo að 1961 fór flokkur íþrótta-
fólks innan UMFÍ til þátttöku í
landsmóti í Vejle. Hafði verið valið úr
röðum ungmennafélga, sem kepptu á
Landsmóti UMFÍ á Laugurn 1961.
Fyrir alla þessa aðstoð þakkaði og
heiðraði UMFÍ Jón og konu hans
rneð því að bjóða þeim að vera heið-
ursgestir á Landmóti UMFÍ á Sauð-
árkróki 1971.
Jón var skólum þeim sem hann
þjálfunar til
aðalkennari
Hann fer 7 sinnum utan með kven- og
karlaflokka, sem sýna leikfimi og þá
einnig með glímuflokka. Fimm
stærri ferðir fór Jón um hérlendis
með flokka félagsins. Hann stjórnar
sýningum á Alþingishátíðinni 1930.
Alls munu sýningar sem hann stjórn-
aði vera um 300. Með glímuflokk á
vegum UMFÍ fer Jón til Noregs. Vet-
urinn 1927—28 var Jón stjórnandi og
aðalkennari á námskeiði fyrir leið-
beinendur í íþróttum, sem ÍSÍ og
UMFÍ héldu sameiginlega.
Jón var í öllu hinn sanni ung-
mennafélagi, öndvegis kennari, for-
ingi og félagi.
Ekkja Jóns er Eyrún Guðmunds-
dóttir. Eignuðust þau einn son Guð-
mund hæstaréttardómara.
R. klapp. I 25 ár er Jón
Glímufél. Ármanns.
starfaði hjá sérlega fjölhæfur kenn-
ari, sem minningargreinar skóla-
manna lýðskólanna bera honum að
loknu æviskeiði. Þeir segja hann hafa
verið mikinn kennara, sagnaþul,
söngmann, leikara og þjóðdansara —
búsýslumann og smið á tré og járn.
Hann bar íslensku menningarlífi al-
þýðunnar ljóst vitni. Þökk sé honum
sá sómi er hann vann ísl. þjóð. Eftir-
lifandi kona Jóns er Kelly Magnús-
son. Börn þeirra eru þrjú. þg
37
SKINFAXI