Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 38
Félagsstarf í Reykhólasveit
Reykhólasveit er í Austur-Barðastrandasýslu og íbúafjöldi sveitarinn-
ar er eitthvað á milli 230—240. Hún nær frá Þorskafirði, yfir Reykjanes
og langleiðina að Króksfirði.
Félagsstarfsemi i hreppnum er býsna góð og hafa Reykhólasveit og
Geirdalshreppur til dæmis sameiginlegt hestamannafélag og skákfélag.
Geirdalshreppur nær frá botni Gilsfjarðar og út að Reykhólasveit. Geir-
dalshreppur er með sér ungmenna- og kvenfélag sem ekki verður rætt
um hér.
Ungmennafélagiö
Aftuielding
var stofnað 14. mars 1924 og var
starfsemi þess góð framan af en
svo varð hún hálf slitrótt og að síð-
ustu datt hún alveg niður. Árið
1958 var félagið svo endurreist og
hefur alltaf starfað eitthvað síðan.
Ungmennafélagið tók þátt í
þremur íþróttamótum nú síðast-
liðið sumar, en þessi íþróttamót
eru nú orðin árvissir viðburðir hjá
UDN (Ungmennasambandi Dala-
manna og Norður-Breiðfirðinga).
Sundmót var haldið 15. júní,
hér á Reykhólum, unglingamót
var haldið í Búðardal 23. júní og
héraðsmótið var haldið dagana 11.
og 12. ágúst í Saurbænum. Einnig
var UDN með íþróttaþjálfara sem
„flakkaði“ á milli félaga og var
hann hjá hverju félagi fyrir sig,
einu sinni í viku, en þessi þjálfun
var fram að héraðsmóti. í október
og nóvember var félagið með
nokkur spilakvöld og nokkur
diskótek en diskótekið Dísa var
hér á Reykhólum bæði á páskum
og jólum.
Félagar í ungmennafélaginu eru
nú rumlega 70.
Hestamannafélagiö
Kinnskœi
var stofnað 2. sept. 1951. Starf-
semi félagsins var heldur skrykkj-
ótt á tímabili og lá hún að mestu
leyti niðri frá árinu 1967 til ársins
1979 en þá var félagið endurvakið
og hefur starfsemi þess staðið í
miklum blóma síðan.
Hestamannamót hafa verið
haldin árlega í sameiningu með
hestamannafélaginu Blakk í
Strandasýslu og þá til skiptis á
heimavelli félaganna, en nú eru
Kinnskærsfélagar nýbúnir að
koma sér upp mótsvæði í mjög
fögru umhverfi að Sólheimamel-
um í Reykhólasveit. Undanfarin
fimm ár hefur félagið staðið fyrir
reiðnámskeiðum, fyrripart sum-
ars sem hafa verið mjög vel sótt.
Árshátíðir eru nú orðnar fastur
liður í starfsemi félagsins.
Siðastliðið sumar tóku nokkrir
félagar Kinnskærs sig til og riðu á
fjórðungsmót Vesturlands á Kald-
ármelum þar sem nokkrir félag-
anna kepptu. Var svo riðið heim i
samfloti með Blakksmönnum og
fengu þeir að geyma hesta sína hjá
félögum Kinnskærs fram að
næstu helgi en þá var haldið sam-
eiginlegt mót Kinnskærs og
Blakks að Sólheimamelum í Borg
og heppnaðist það mjög vel, bæði
hvað veður og annað snerti.
Kvennfélagiö Liljan
er aðili að Kvenfélagasambandi
íslands (KÍ) og Sambandi Breið-
firskra Kvenna (SBK). Kvenfélag-
ið var stofnað 16. mars 1941 og
hefur starfað óslitið síðan.
Aðalstörf félagsins hafa verið
málefni heimilisiðnaðar, heilsu-
vernd, garðrækt, ýmis kirkjumál-
efni og námskeiðahöld. Nú á und-
anförnum árum hafa verið haldin
námskeið í skuggaskurði, ger-
bakstri, tauþrykki, skermasaumi,
félagsmálum, flosi, jólaföndri,
Þátttakendur á íélagsmálanámskeiái í Reykhólaskóla ásamt leiöbeinenda. Á
myndinnimásjáhöfundagreinarinnarHjördísiDröfn Vilhjálmsdóttur, sem er
þriöja frá vinstri í aftari röö og Sigrúnu K. Halldórsdóttur sem er fimmta frá
vinstri í fremri röö.
38
SKINFAXI