Skinfaxi - 01.04.1985, Qupperneq 39
tágarvinnu, sokkablómavinnu og
nú á síðastliðnu ári voru haldin
sníða- sauma- og bútasaumanám-
skeið. Félagið vinnur nú að því að
afla fjár sem síðar á að nota til að
búa dagstofu í dvalarheimili aldr-
aðra, sem nú er í byggingu á Reyk-
hólum, húsgögnum og hafa verið
haldnir bazarar, kaffisölur, bingó
og ýmislegt fleira til fjáröflunar í
því skyni. Það eru nú liðlega 20
konur í félaginu.
Skákfélagiö
er yngsta félag sveitarinnar, það
leit dagsins ljós, 2. apríl 1982.
Starfsemi þess hefur verið mjög
góð þar sem félagar hafa komið
saman og teflt. Einnig hafa verið
haldin stærri mót, s.s. helgarskák-
mót. Á síðastliðnu ári kepptu fé-
lagar við Dalamenn. Einnig fóru
nokkrir félagar á Gróuskákmótið
í Borgarnesi, þar sem keppt var
um Gróubikarinn, sem er farand-
bikar. Var árangurinn mjög glæsi-
legur þar sem einn af félugunum
vann bikarinn.
Skákfélagið er eitt af virkustu
skákfélögum á landinu miðað við
fjölda meðlima, en þeir eru um 30
talsins.
Félagslíf í
Reykhólaskóla
Reyhólaskóli er á Reykhólum
og er heimavistarskóli. Það eru 62
nemendur í skólanum, frá 1. bekk
upp í 9. bekk, en félagslíf hefur
verið fremur gott miðað við nem-
endafjölda.
I fyrravetur var farið í heim-
sóknir í grunnskólann í Búðardal
og heimavistarskólann að Laug-
um og keppt í skák og ýmsum öðr-
um íþróttum. Svo kom aftur
keppnislið úr Laugaskóla í heim-
sókn í Reykhólaskóla og var þá
keppt í skák, sundi og borðtennis.
Á fimmtudögum hefur nær und-
antekningarlaust verið eitthvað
gert til skemmtunar. Venjulega
hafa diskótek verið haldin aðra
hverja viku en hinar vikurnar
spilakvöld, myndsegulbanda-
kvöld eða bingó. Einnig var haldin
litlu ljól og árshátíð. Á öskudag-
inn var farið í leiki og verið með
létt gaman og auk þess var köttur-
inn sleginn úr tunninni. Haldin
voru tvö félagsmálanámskeið í
samráði við umf. Aftureldingu,
annað i nóvember ’84, en hitt um
mánaðarmót fébrúar og mars ’85
og var það framhaldsnámskeið.
Nemendum í 7. og 8. bekk var
boðin starfskynning innan héraðs
í þrjá daga og að sjálfsögðu fór 9.
bekkur suður til Reykjavíkur og
víðar eins og undanfarin ár.
Við látum nú þessari frásögn
okkar lokið af félagslífi i Reyk-
hólasveit og vonum að þessi kynn-
ing okkar af félagslífinu hér varpi
nokkru Ijósi á það hvernig sveit-
ungar í litlu sveitarfélagi fara að
því að hafa ofan af fyrir sér.
Hjördís Dröf Vilhjálmsdóttir,
Sigrún Katrín Halldórsdóttir,
nemendur í Reykhólaskóla.
Blaö með sama naíni
Það eru sennilega ekki margir ungmennafélagar sem ekki vita hvað
blað okkar heitir. En þeir eru örugglega margir sem ekki vita að til er
annað blað með sama nafni. Er það blað Málfundafélagsins Framtíðar-
innar sem er í Menntaskólanum í Reykjavík. Blað þeirra kom fyrst út
9. janúar 1898 og hlaut þá nafnið SKINFAXI. Nafnið er fengið úr
norrænni goðafræði, en Skinfaxi var reiðhestur Dags (hestur sólarinn-
ar). Blað þeirra Framtíðarmanna var fyrst í stað handskrifað, en byrjað
var að prenta það árið 1968. Þess má og geta hér í lokin að til er (var)
fyrirtæki með sama nafni.
SKINFAXI
39