Skinfaxi - 01.10.1985, Side 28
Ur fréttabréfum
usú
17. ágúst var héraðsmót USÚ
haldið að Reyðará í Lóni, og var
veður eins og best verður á kostið.
Fimm félög tóku þátt í mótinu
að þessu sinni og varð röð félaga
í stigakeppninni þessi:
Félag Samt. Konur Karlar
stig stig stig
1. Umf. Hvöt 107 9 98
2. Umf. Vísir 57 44 13
3. Umf. Sindri 48 47 1
4. Umf. Máni 8 8
5. Umf. Valur 5 1 4
Stigahæstu einstaklingar móts-
ins urðu:
Kvennaflokkur Þórgunnur
Torfadóttir 611 stig (langst. 4.73
m.) Karlaflokkur Geir og Gunnar
Þorsteinssynir 588 stig (hást.
1.70)
Umf. Hvöt í Lóni var endur-
reist árið 1982 og hefur starfsemi
þess verið með miklum ágætum
síðan. Haldið er árlega mikið úti-
ball og hefur það tekist mjög vel
í þau þrjú skipti sem komin eru.
Þá var mikið unnið í nýja íþrótta-
vellinum, sem er við skólahúsið,
er áætlað að girða hann og þöku-
leggja nú í haust ef tími vinnst til.
Aðalfundur félagsins var haldinn
25. ágúst s.l. og kom þar fram sem
er mjög fátítt í dag að fjárhags-
staða félagsins er nokkuð góð. Þá
komu fram nokkrar nýstárlegar
tillögur um vetrarstarfið þar á
meðal var tillaga um iðkun
skautaíþrótta í tunglskini.
Héraðskeppni USÚ og USVS
fór fram að þessu sinni í Pétursey
31. ágúst, og var það mikil og
spennandi keppni. Úrslit í stiga-
keppninni urðu þessi:
Konur Karlar Samt.
stig stig stig
USVS 40 50 90
USÚ 36 44 80
Þetta var í þriðja sinn í röð sem
USVS vann keppnina og vann því
bikarinn til eignar.
ísí
Þann 1. júní s.l. lét Hermann
Guðmundsson af störfum sem
framkvæmdastjóri ÍSÍ fyrir ald-
urssakir. Hermann er búinn að
starfa lengi að málefnum íþrótta-
hreyfingarinnar í landinu og það
eru eflaust ekki margir er kannast
ekki við Hermann hjá ÍSÍ. Þó
hann láti nú af starfi sem fram-
kvæmdastjóri þá mun hann
starfa áfram á skrifstofu ÍSÍ. Við
starfi Hermanns tók Sigurður
Magnússon en hann er ekki
ókunnur innan íþróttahreyfing-
arinnar, því hann var um árabil
skrifstofustjóri ÍSÍ og þá einnig
ritstjóri íþróttablaðsins.
Dagana 26. júlí til 1. ágúst
dvöldust norrænir unglingar á
aldrinum 14—16ára í íþróttamið-
stöð ÍSI að Laugarvatni á vegum
unglinganefnda ÍSÍ. Voru þátt-
takendur 54 frá Svíþjóð, Dan-
mörku, Noregi, Finnlandi og ís-
landi en því miður gátu Færeying-
ar ekki tekið þátt í þessum ung-
lingabúðum vegna fjárskorts.
Dagskrá búðanna var fjölbreytt
og skemmtileg, farið var í ferða-
lög um nágrenni Laugarvatns
haldnar kvöldvökur og svo stund-
aðar iþróttir. Búðastjóri var
Valdimar Örnólfsson.
Fræðslunefnd ÍSÍ hefur samið
við íþróttasamband Noregs um
leyfi til að þýða, staðfæra og gefa
út kennsluefni sem ætlunin er að
nota á stigsnámskeiðum sér- og
héraðssambanda ÍSÍ og á íþrótta-
brautum framhaldsskóla. Fjögur
þessara rita eru þegar komin út og
hefur Karl Guðmundsson
fræðslustjóri ÍSÍ annast þýðingu
þeirra, en öll eru þau unnin á
skrifstofu ÍSÍ. Ekki hefur Skin-
faxi séð þessi rit ennþá svo við
getum ekki sagt nánar frá þeim.
En hér á eftir er listi yfir þau rit er
fást á skrifstofu ÍSÍ ásamt verði
þeirra.
Verrtskrá yfir fraírtsuefni
frá 01.01. 1985 Kr.
A-stig ÍSÍ 165,-
Hreyfingafræði 30,-
Nokkur undirstöðuatriði cr varða nútima-
þjálfun
Lciðbeiningar í borðtcnnis 25,-
Knattspyrnulög KSÍ 100,-
Leikrcglur í körfuknattlcik 40,-
Leikrcglur í blaki 30,-
A-stig í sundi 250,-
Handknattlciksrcglur HSÍ cru í prcntun og
væntanlegar um 10. scpt. n.k. 120,-
Við mætum kraft, mýkt og fjaðurmagn 25,-
Lciðbeiningar um starf íþrótta- og ung-
mcnnafclaga 30,-
íþróttalciðbeinandinn 30,-
Kcnnslubók i glimu 25,-
Rcglur í skotfimi
Minni-bolti 40,-
Júdó 75,-
Siglingar
A-stig í blaki 180,-
Undirbúningur undir þjálfun og kcppni 150,-
Hraðþjálfun 100,-
Kraftþjálfun 250,-
Þolþjálfun 200,-
Lyfjarit 75,-
Framangreind fræðsluefni er
selt á skrifstofu ÍSÍ.
28
SKINFAXI