Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1985, Side 30

Skinfaxi - 01.10.1985, Side 30
Gömul mynd Nú fyrir stuttu var UMFÍ gefin gömul mynd ásamt ýmsum gögn- um af Lyndíu Pálsdóttur Einars- son, en hún er ekkja Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Hann starfaði mikið á sínum tíma fyrir ungmennafélagshreyfinguna og ferðaðist um landið og rak erindi hennar. Þvi er mikill fengur í þessum gögnum sem eru frá árun- um milli 1910 og 1920 en myndin er af þátttakendum á íþróttanám- skeiði Sunnlendingafjórðungs UMFÍ sem haldið var dagana 10. til 24. október 1914. Nöfn allra eru skráð á spjaldið sem myndin er á. Vill stjórn UMFÍ þakka frú Lydíu kærlega fyrir þessa gjöf sem bætir við þekkingu okkar á sögu ungmennafélagshreyfingar- innar á íslandi. Myndin frá þessu námskeiði er hér til hliðar. Snœíell Snæfell ársrit UÍA kom út i ágúst s.l. eftir nokkuð langa meðgöngu, en ritið er hið glæsilegasta i alla staði bæði útliti og efni. Á forsíðu er mynd af liðinu er sigraði i handknattleik kvenna á síðasta Landsmóti UMFI í Keflavík og Njarðvík, og er myndin í lit. Meðal efni blaðsins er grein um Minjasafn Austurlands ásamt myndum og sagt frá sumar- búðum í Færeyjum er nokkur austfirsk ungmenni fóru á í ágúst 1984. Einnig er skýrsla stjórnar UÍA, ársreikningar, skýrsla landsmóts- nefndar ásamt mörgu öðru mjög skemmtilegu efni. Ársritið er 72 síður að stærð og eru í því margar litmyndir frá Landsmóti UMFÍ og einnig frá Atlavíkurhátíðinni. Ritinu er dreift inn á öll heimili á UIA svæðinu án endurgjalds og er ekki að efa að það eru margir er bíða spenntir eftir að fá Snæfell inn um bréfalúguna. 30 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.