Skinfaxi - 01.02.1988, Page 4
faraldsfæti.
Við Islendingar höfum gaman að því að að leika
okkur með tölur, í "miðað við mannfjölda"
leiknum. Eins og alþjóð veit sýna niðurstöður
þess leikjar að við Islendingar erum ofurmenni.
"Öll erum við Jón Páll", verður niðurstaðan af
því. En við hliðrum okkur oft hjá að skoða
dæmið nánar því þá kemur ýmislegt heldur vaf-
asamt í ljós. Því er á þetta minnst að í blaðinu er
mikið fjallað um fijálsíþróttamenn. Stórt viðtal
við Einar Vilhjálmsson, Afrekaskrá
ungmennafélaganna í fijálsíþróttum og fleira.
Einar er einn okkar mörgu afreksmanna. Við
hlið hans má nefna Véstein Hafsteinsson, Sigurð
Einarssonogfleiri. Enallireruþeirerlendis. Og
ástæðan? Svo vitnað sé í orð Einars í viðtalinu,
"Sá uppgangur sem verið hefur í fijálsíþróttum
hér á landi á síðustu árum er því miður ekki hægt
að þakka öðru en þeim tækifærum sem menn
hafa fengið í Bandaríkjunum.".
Þannig er með flesta okkar bestu frjáls-
íþróttamenn, þeir eru farnir af landi brott til
æfingaumleið ogþeirnáárangri sem talist getur
á landsmælikvarða. í blaðinu er að þessu sinni
stutt viðtal við Gunnar Guðmundsson, hlaupara
/ / /
úr UIA, frá Fáskrúðsfirði. A því rúma ári sem
hann hefur æft frjálsíþróttir af alvöru er hann
kominn ílandsliðið ífijálsíþróttum. Hann er nú
á leið til Alabama háskólans í Bandaríkjunum
til æfinga. Þar á eftir fer hann til Kanaríeyja, til
æfinga. Ég held að óhætt sé að fullyrða að eng-
ir íþróttamenn hafi jafn lélega aðstöðu og frjáls-
íþróttamenn, og það hvort sem er á Reykja-
vfkursvæðinu eða úti á landi.
Sjálfsagt eru flestir sammála um að helsta
ástæðan fyrir þessu meini er að peninga-
streymið í frjálsíþróttastarfsemina er lítið.
Opinberir aðilar hafa lítið sinnt þessum þætti
íþróttastarfseminnar og eru ástæðumar fyrir því
sjálfsagt margvíslegar. í ljósi þessa ættu menn
því að lesa grein Hafsteins Óskarssonar með
athygli en hún fjallar einmitt um íþróttir og
peninga. Hafsteinn fjallar m.a. um hvernig
íþróttafrömuðir eigi að kynna starfsemina.
Sjálfsagt holl lesning fyrir marga.
IH
Útgefandi: Ungmennafélag íslands. - Ritstjóriringólfur Gíslason. - Stjóm UMFÍ: Pálmi Gíslason, formaður, Þórir gjaldkeri, Guðmundur H. Sigurðsson, ritari. Meðstjórnendi Sigurbjöm Gunnarsson. Varastjórn: Magndís Alexand Lýðsson, SæmundurRunólfsson. - Afgreiðsla Skinfaxa: Ölc * og umbrot: Skrifstofa UMFI. - Prentun: Prentsmiðjan Oddi Allar aðsendar greinar er birtast undir nafni em á ábyrgð höfi blaðsins eða stjómar UMFI. i-' j íJ i L *) i Hjörleifsson. - Ábyrgðarmaður: Pálmi Haraldsson, varaformaður, Þórir Jónsson, ir:Dóra Gunnarsdóttir, Kristján Yngvason, srsdóttir, Hafsteinn Pálssson, Matthías ugata 14, Reykjavík, S:91-12546 - Setning . - Pökkun: Vinnustofan Ás. mda sj álfra og túlka ekki stefnu né skoðanir
l'c;
4
Skinfaxi