Skinfaxi - 01.02.1988, Qupperneq 5
Molar
huo eru fleiri en blaðamenn
sem velja íþróttamann ársins.
Ungmennafélagið Leiknir á
Fáskrúðsfirði hélt Sólarkaffi um
síðustu mánaðamót og notaði
taekifærið til að verðlauna besta og
efnilegasta fþróttafólk sitt. Teitið
var haldið í Skrúð og mætti hvorki
^eira né minn en þriðjungur
Fáskrúðsfirðinga, rúmlega 200
manns. Frjálsíþróttamaðurinn
Gunnar Guðmundsson var valinn
fþróttamaður ársins 15 ára og eldri.
Gunnar er auðvitað sérlega vel að
verðlaununum kominn. Hann er
°ú landsliðshóp íslands í
frjálsfþróttum en hefur aðeins æft
hlaupafkappiírúmtár. Hannernú
hominn til Alabama í
Fandaríkjunum til æfinga Meira
nni Gunnar á bls. 15 hér í blaðinu.
Svovarþaðíþróttamaðurársins 15
ara og yngri. Þann heiður hlaut að
Þessu sinni Sigríður nokkur
Guðmundsdóttir en hún er aðeins
10 ára að aldri. Sigríður er í
frjálsíþróttum eins og Gunnar.
Hún er mest í hlaupum en er sögð
^njög alhliða og geysilega efnileg.
Sigríður varð í öðru sæti á
Hlandsmeistaramótinu ífrjálsum í
flokki 12 ára telpna og keppti þá
aðallegavið 12 ára stelpur. Fjöldi
annara verðlauna voru veitt á
Sólarkaffinu í öllum greinum. Til
dæmis efnilegasti íþróttamað-
urinn, verðlaun voru veitt fyrir
æfingasókn og þar fram eftir
götunum...
Umf. Samhygö í
Amessýslu hélt aðalfund sinn í
janúar eins og vera ber og telst ekki
til tíðinda. Það var hins vegar
nokkuð skemmtilegur hlutur sem
bar upp á þessum fundi. Þá var
nefnilega sýnt myndband þar sem
settir höfðu verið saman mynd-
bútar úr ýmsum áttum af gömlum
kvikmyndafilmum. Myndbandið
hefur að geyma 30 til 35 ára gamla
viðburði í Gaulveijabæjarhreppi.
Þar á meðal er að finna atriði frá
svonefndu Loftstaðamóti, annó
1953. Loftstaðamót þessi ku hafa
verið hin mesta skemmtan í
sýslunni á árum áður. Segið svo að
“vídeóið” sé ekki til einhvers
nytsamlegt annars en skoða á
útlenskar myndir...!
Lengsta grindahlaup í
Islandssögunni er framundan.
Skaftfellingar hafa ákveðið að
standa fyrir því í vor. Hugmyndin
er sú að félagar í Ungmennasam-
bandi V-Skaftfelliinga (USVS)
stilla upp grindum með 100 metra
bili eftir þjóðveginum frá
sýslumörkum vestan að
sýslumörkum austan til. Þetta
munu vera einir 120 kílómetrar og
verður því líkast til lengsta
grindahlaup í Islandssögunni.
Ástæðan fyrir þessu er sú að þeir
Skaftfellingar hyggjast festa kaup
á grindum, fyrir grindahlaup og
hlaupiðverðurþvíáheitahlaup. Til
að alþjóð viti nú af þessu , fái að
fylgjast með og styrkja
framtakssama Skaftfellinga,
hyggjast þeir heita á Omar Rag-
narsson og Frúna að renna með
tökuvél Sjónvarpsins á eftir
hlaupurunum í vor.
Þeir standa því í stórræðum í Ung-
mennasambandi V-Skafta-
fellssýslu. Sambandið hefurráðið
frjálsíþróttaþjálfara fyrir næsta
sumar, Jón Sævar Þórðarson.
Hann kemur til með að þjálfa hjá
öllum fimm félögum sambandsins
og segja Skaftfellingar að
takmarkið sé að komast í 2. deild í
fijálsum. Þá hefur sambandið fest
kaup á Macintosh tölvubúnaði
sem gefur möguleika á hvers kyns
útgáfu, ársriti, fréttabréfum,
mótaskrám, félagaskrám og svo
framvegis, allt á skrifstofunni. Allt
kostar þetta sitt, lottóið hjálpar en
meira þarf til. Þar mun lengsta
grindahlaup íslandssögunnar
sjálfsagt hjálpa til...
Skinfaxi
5