Skinfaxi - 01.02.1988, Page 6
Molar
Gistiaöstaða UMFI á Öldugötunni í Reykjavík hefur
gengið ótrúlega vel frá því hún var opnuð með vígslu hússins fyrir rúmu
ári síðan. Þrátt fyrir að öll herbergin hafi ekki komist í fulla notkun
fyrstu mánuðina voru gistinætur fyrsta ársins um 3000 talsins. Hlýtur
það að teljast ansi góð nýting á gistiaðstöðu sem ekki hefur enn fengið
næga kynningu. En það segir sig sjálft að þegar ungmennafélagar geta
fengið svefnpokapláss, eldhúsaðstöðu, sturtu, sjónvarps- og mynd-
bands-aðstöðu fyrir núll krónur, er því tekið fegins hendi. Á nýbyrjuðu
ári hefur verið fjöldi fólks í gistingu allar helgar. Það sýnir sig því að
ekkert lát verður á gistingu í Vesturhlíð. Af gefnu tilefni skal fólk sem
hyggst notfæra sér þessa gistiaðstöðu minnt á að panta "pláss" með
nokkurra vikna fyrirvara...
Meira af Samhygðarfólki.
Eins og sagt er frá hér annars staðar
á Molasíðum eru hátíðahöld mikil
í ár meðal ungmennafélaga. Og
Samygð ætlar að taka þetta með
glans. Þau munu halda þrefalda
afmælishátíð í sumar. Nefnilega
80 ára afmæli félagsins, 30 ára
afmæli íþróttavallarins við
Félagslund og 50 ára afmæli
mótanna milli Samhygðar og
Vöku. Hér annars staðar er talað
um Loftstaðamótið sem nú er til á
myndbandi. Samhygðar/Vöku
mótin voru einmitt haldin á
Loftstöðum annað hvort ár.
Almennilegt...!
Enn meira af Vöku og
S amygð. S amhygðar/Vökumótin
hafa verið haldin óslitið á 50 ár,
aldrei hefur fallið niður mót. Og
annað. Á þessum mótum var
stangastökkskeppni svo til frá
upphafi mótanna. Þarna er
sjálfsagt komin hluti skýring-
arinnar á því hvers vegna
stangastökkvarar frá HSK hafa
lengi verið einna fremstir í flokki á
landinu. Þeirhafanefnilegasvotil
alltaf komið annað hvort úr Vöku
eða Samhygð!
Það fervístekkiframhjáneinum
sem flettir þessu blaði að langt
viðtal er við Einar Vilhjálmsson,
spjótkastara. Austfirðingar halda
ákafri tryggð við afreksmann sinn.
Fyrir stuttu valdi stjóm UIA Einar
íþróttamann ársins á sam-
bandssvæðinu, ekki að ástæðu-
lausu. Stjómin vakti sérstaklega
athygli á Norður-landameti Einars
á Landsmótinu síðasta sumar sem
hann setti undir merki UÍA...
Hvað borðum við, hvaða
áhrif hefur það á líkamsstarfsemi
og íþróttalega getu. Þetta eru
sjálfsagt spurningar sem fjölmargt
íþróttafólk á öllum aldri spyr sig,
hvort sem það skokkar eða keppir í
úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar í
körfubolta. Fjölmargir hafa líka
svörin við þessum spurningum.
Þeir sem hafa þau ekki geta nú
nálgast bækling sem nefnist
Næring íþróttafólks. Höfundur
hans er Laufey Steingrímsdóttir
næringafræðingur, en hún vann
bæklinginn fyrir heilbrigðis- og
rannsóknarráð ÍSÍ. Markmiðið er
“að koma upplýsingum og fræðslu
um næringafræði á framfæri við
rétta aðila, stuðla að heilsusamlegu
og hagnýtu mataræði íþróttafólks
almennt og spara mörgum stórfé í
matar- og næringarefnakaupum”,
eins og segir í formála ritsins. I
bæklingnum er á skýran hátt greint
frá orkuefnunum, kolvetni, fitu og
✓
próteini. Utskýrt er hvaða áhrif
þessi efni hafa á líkamsstarfsem-
ina, hvar þau er að finna og einnig
hvaða mat rétt sé að borða á hvaða
tíma, miðað við hvaða íþróttagrein
erstunduð. Allteruþettanytsamar
upplýsingar, jafnt fyrir keppnis-
fólk sem skokkara...
6
Skinfaxi