Skinfaxi - 01.02.1988, Page 7
Molar
Einhverjir minnast sjálfsagt
stuttrar heimildarkvikmyndar sem
sýnd hefur verið í Sjónvarpinu og
nefnist“ídagsinsönn”. Hvortsem
fólk man hana eða ekki er það
forvitnilegt að það var á
héraðsþingi Skarphéðins, árið
1956 sem ákveðið var að ráðast í
gerð þessarar kvikmyndar, um
forn vinnubrögð á Suðurlandi.
Kvikmyndunin hófst 1960 og lauk
1973. Kvikmyndatöku og klipp-
ingu annaðist Vigfús Sigur-
geirsson. Haraldur Matthíasson á
Laugarvatni og Þórður Tómasson í
Skógum sviðsettu myndina og
flytja texta. Og enn skal nú borið
lof á vídeóið (nei, myndbandið).
Myndin er nú komin á þijár
niyndsnældur og er nú fáanleg hjá
Kjartani Olafssyni hjá
Búnaðarsambandi Suðurland. Þær
kosta saman 5000 krónur en hver
um sig 2000 krónur. Ef þið hafið
áhuga getur Halldóra á skrifstofu
HSK aðstoðað ykkur. Síminn er
99-1189!...
Gísli Sigurösson frjáis-
íþróttamaður úr Skagafirðinum
sem lengi vel hefur verið sunnan
heiða og stundað sína íþrótt hjá
kr, er nú kominn aftur á
heimaslóðir og keppir að nýju fyrir
UMSS. Þetta er auðvitað mikill
hvalreki á fjörur Skagfirðinga
manna sem nú státa íslandsmeist-
ura í fimmtarþraut innanhúss en
Gísli öðlaðist þann titil fyrir
nokkrum vikum. Gísli hefur verið
mjög virkur í starfinu fyrir norðan
eftir áramótin og hefur tekið að sér
Þjálfun frjálsíþróttafólks UMSS.
Hann hefur komið í fjölda ferða
suður með sitt fólk og hefur þá
verið fastur gestur með sitt fólk í
gistingu í Vesturhlíð, þjónustu-
miðstöð UMFÍ, á Öldugötunni...
Islandsmótiö í innanhússknattspyrnu var haldið í janúar
mánuði eins og flestir vita. Það var ekki bjart útlitið hjá HSÞ b sem spilar
í 1. deildinni þegar dregið hafði verið í riðla. Þá kom nefnilega í ljós að
mótheijamir voru ekki af lakara taginu. Reykjavíkurmeistarnir í
✓
innanhúsknattspymu Þróttur, Víkingur Reykjavík og Islandsmeistar-
arnir utanhúss, Valur. Mývetningamir sýndu hins vegar ágæta
knattspymu, héldu sér uppi í fyrstu deildinni, og sendu jafnframt Valsara
niður í 2. deild. HSÞ b leikur eins og kunnugt er í 4. deildinni næsta
sumar en nágrannar þeirra í Völsungi máttu bíta í það súra epli að falla
úr 3. deildinni innanhúss í þá 4. Liðstjóri HSÞ b var Kristján Yngvasson,
formaður HSÞ. Það væri kannski heillaráð fyrir Völsunga að tala við
Kristján frekar en Rússann varðandi knattspymuþjálfun fyrir næsta ár...
Nýtt ungmennafélag hefur nú verið stofnað í
Reykjavík, í Grafarvogi. Ungmennafélag hefur ekki verið stofnað í
Reykjavík síðan Ungmennafélagið Víkveiji fæddist árið 1964.
Hugmyndin að stofnun félagsins fæddist á fundi í félaginu Vesturhlíð í
Reykjavík sem er félag gamalla ungmennafélaga. Grafarvogur er ört
vaxandi byggð en þar er enn sem komið er lítil aðstaða til félagsstarfa
og íþróttaiðkana. Áhuginn er hins vegar geysilegur meðal ungs fólks
fyrir félagi í Grafarvogi. Félagsaðstaða er nokkur í Foldaskóla og þar
hafa skátar í hverfinu fengið inni. Mikil og góð samstaða hefur tekist
með skátum og ungmennafélögum um hið nýja félag sem enn hefur ekki
fengið nafn. íþróttahús er ekkert í hverfinu enn sem komið er en skólinn
er í örri uppbyggingu. Og veitir ekki af þar sem ekki er talið ólíklegt að
á næsta ári geti íbúafjöldinn tvöfaldast. Nú búa í Grafarvogi um 2500
manns. Fyrstu verkefni hins nýja félags verða að líkindum að koma af
stað skák-bridge- og borðtennisstarfi en það er mögulegt í skólanum eins
og hann er nú. Einnig er gert ráð fyrir leikjanámskeiðum þegar vorar...
Skinfaxi
7