Skinfaxi - 01.02.1988, Qupperneq 15
Frjálsar
Úr fótbolta í frjálsar
Gunnar Guðmundsson, frjálsíþróttamaöur úr ÚÍA er nú kominn til
Bandaríkjanna, til Alabama, til œfinga. Gunnar er hér í stuftu spjalli.
Stuttu fyrir brottför sína í janúar var
Gunnar tekinn tali. Ferill hans er nokkuð
óvenjulegur. Gunnar er 24 ára en hefur
aðeins æft frjálsar og spretthlaup í rúmt ár
°g er þegar kominn í landslið Islands í
frjálsíjjróttum.
“Ég æfði fótbolta á Fáskrúðsfirði, í
yngri flokkunum og í meistarflokki”,
segir Gunnar. “Var farinn að spila þar 16
ára gamall. Ég hafði frá því um tvítugt æft
frjálsar svolítið með boltanum en fyrst og
frcmst sem styrktargrein við fótboltann.
Sumarið ’86 keppti ég svolxtið í sprett-
hlaupunum og fannst mér ég standa mig
þokkalega miðað við æfingu. Svovarþað
fón Sævar Þórðarson, frjáls-
■þróttaþjálfari, sem var sífellt að jagast í
mér að fara nú að æfa frjálsar, það væri
mín grein. Fyrir eftirgangsmuni frá
honum fór ég síðan að æfa frjálsar á fullu
oftir áramótin '86/87.
Það sem átti nú stóran þátt í því var að
Leiknir á Fáskrúðsfirði féll niður í fjórðu
deild í knattspymunni sumarið áður og ég
hafði engan áhuga á að leika í fjórðu
deild.”
Gunnar er ekki að fara til náms í Ala-
hama, heldur fyrst og fremst í
æfingabúðir.
-Þetta hlýtur að kosta sitt.
“Jú, en þegar maður er búinn að bx'ta
oitthvað í sig fer maður ekki að hætta við
nema eitthvað mikið komi til.”
-Nú ert þú í spretthlaupunum og einn-
>g í400 metrunum. Er eitthvað eitt sem þú
ætlar að leggja áherslu á?
“Ég hef verið í spretthlaupunum, já,
°g aðeins prófað langstökkið. Ég ætla að
Prófa 800 metrana í sumar, ég held ég eigi
citthvað inni þar. En ég hef ekkert af-
roarkað mig meira í hlaupunum enn þá.”
-Nú hefur þú náð mjög góðum tíma í
hlaupunum á þessum stutta U'ma sem þú
hefur æft stíft. Hvemig voru tímamir hjá
þer síðastliðið sumar?
“Ja, svona þokkalegir. Ég hljóp í
fyrsta sinn í sumar 400 metrana. Hljóp þá
í sumarbyijun á 51,9 sek. Síðan má eigin-
lega segja að ég hafi bætt mig í hverju
hlaupi þar til keppnisu'mabilinu lauk.
Undir lokin var ég kominn í 50,1 sek. í
200 metrunum átti ég 23,5 sek. Ég er nú
kominn í 22,5 sek.”
-Nokkuð góður árangur það. En þú
ætlar að vera þama í sex vikur?
“Já svo ætla ég að fara til Kanaríeyja í
vor og æfa þar. Það eru þama mjög góð
aðstaða og loftslagið er gott. Þarna koma
klúbbar frá Evrópu Þýskalandi og
Norðurlöndunum til æfinga. Ég fór
þangað síðasta vor og kunni geysilega vel
við mig. Það verður góður undirbúningur
fyrir næsta sumar.”
-Hvemig hefur þú tekið veturinn?
“Ég hef æft sex sinnum í viku fram yfir
áramótin. Þetta hefur verið undir-
búningsrímabil frá því í október, æfingar
sex sinnum í viku. Ég hef getað hlaupið
svo til upp á hvem dag. Svo hafa helgar-
nar oft farið í fjallgöngu, rjúpnaveiðar
með þungan poka þannig það gaf góðan
kraft í fætuma”
-Þú hefur hlaupið þetta með hagla-
byssuna.
“Já maður skokkaði upp hjallana, svo
var gengið allan daginn.”
-Finnst þér þú ekki geta náð þeim
árangri sem þú sækist eftir með því að
vera hér heima við æfingar?
“Ekki miðað við það sem ég sé fram-
undan. Maður hefur verið að vinna til sex
á kvöldin og farið síðan á æfingar um sjö
leytið og æft fram á kvöld. Slíkt fyrir-
komulag skilar ekki því sem maður sæk-
ist eftir. Ef ég gæti sameinað nám og
vinnu væri það mun beua. Þá ætti ég að
geta stjórnað tíma mínum þannig að
álagið væri eðlilegt í námi og æfingum.”
-En hvernig með nánustu framtíð, ertu
kominn með einhverjar áætlanir?
“Ekki nema að æfa á fullu og bæta
tímann. Það væri líka gaman að geta náð
það góðum tíma að maður kæmist á styrk
í háskóla í Bandaríkjunum, gæti komist í
nám og æfingar með.”, segir Gunnar.
Það cr nokkuð víst að við eigum eftir
að hcyra meira af góðum árangri Gunnars
á náinni framtíð. IH
Skinfaxi
15