Skinfaxi - 01.02.1988, Síða 16
Iþróttaauglýsingar
Að útvega pening
íþróttir og auglýsingar
Hafsteinn Óskarson
Norska Dagblaðið fékk mikla auglýsingu í þessu hlaupi, Oslóar maraþoninu, '86. Þaö þarf ekki endilega
afreksfólk til þess aö nó mikilli auglýsingu.
Forystumenn í íþróttahreyfingunni
þekkja vel til þess vanda sem felst í því að
útvega peninga þannig að halda megi
starfinu gangandi og setja markið hærra.
Hið opinbera lætur lítið af höndum rakna
til þessarar starfsemi þó ekki megi menn
vera vanþakkiátir fyrir þann stuðning sem
þó fæst. íþróttastarfið hefur því í gegnum
árin einkennst meir og meir af
fjáröflunarstarfi. Sú leið sem flestir
þekkja hvað best er að Ieita til fyrirtækja
um fjárstuðning eða aðra fyrirgreiðslu
sem að gagni getur komið.
Það sem hefur einkennt þessa
fjáröflunarleið er að þeim sem hafa staðið
í þessu hefur fundist sem þeir væru að
betla peninga fremur en bjóða góða samn-
inga þar sem báðir aðilar gætu verið sáttir
við sinn hlut og að samstarfið skili
einhverju til beggja aðila.
Það má gera ráð fyrir því að forystu-
menn innan íþróttahreyfingarinnar þekki
sína íþrótt, en ætíð er rúm fyrir aukna
þekkingu. Einn þeirra þátta sem má bæta
er að þekkja þá möguleika sem íþróttin
býður upp á í sambandi við
auglýsingasamninga við fyrirtæki. Hér
þarf reyndar ekki ætíð að vera um
auglýsingasamninga að ræða heldur getur
hér einnig komið inn í myndina annars
konar samstarf, svo sem afnot fyrirtækis á
íjiróttaaðstöðu gegn afslætti á vörum
þess, íþróttafélaginu til handa.
Til að auðvelda íþróttafélögum að afla
sér tekna eða á annan hátt létta róðurinn
fjárhagslega, verða forystumenn að
þekkja inn á þarfir fyrirtækjanna sem leita
skaltil. Sumum hentar bestað fáeinfalda
auglýsingu í leikskrá, öðrum hentar betur
að fá nafn framleiðsluvöru sinnar á
sjónvarpsskjáinn með einhverjum hætli,
og svo mætti lengi telja.
Sjónarhorn fyrirtœkja
Fyrirtæki hafa nokkrar leiðir til að vclja
úr til að koma skilaboðum sínum á
framfæri. Oftast er litið svo á að um fjóra ■
möguleika sé að ræða:
16
Skinfaxi