Skinfaxi - 01.02.1988, Page 20
íþróttaauglýsingar
"Látum málin þróast"
Guöni Halldórsson, framkvœmdastjóri HSÍ og fyrrverandi
framkvœmdastjóri Landsmóts, um íþróttir og auglýsingar.
Ýmsir hafa spurt sig að því á
undanfömum árum hversu æskilegt sé að
sækja fé til fyrirtækja í tengslum við
fjáröflun íþróttastarfsemi. Hafa þeir sagt
sem svo að sá möguleiki sé fyrir hendi að
íþróttafélögin geti á einh vem hátt orðið of
háð fyrirtækjum um fjármagn. Til þess að
spyrjast fyrir um slíka hluti leitaði Skin-
faxi álits Guðna Halldórssonar, sem var
framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ á
Húsavík. Hann er nú framkvæmdastjóri
Handknattleikssambands íslands.
-Guðni, fjáröflun hefur lengi vel verið
eitt stærsta málið sem forsvarsmenn
íþróttahreyfingarinnar hafa átt við að
glíma. Síðustu ár hafa auglýsendur æ
meir séð íþróttir sem góða leið til að koma
vöm sinni á framfæri. Er hægt að setja
ákveðnar markalínur á tengsl
íþrótta(manna) og auglýsenda? Er það
æskilegt?
“Eins og þú segir hafa viðhorfin
gagnvart íjiróttum breyst mikið hjá
mörgum fyrirtækjum og gildi þeirra í
auglýsingum, varðandi skorðumar vil ég
aðeins segja að alþjóðasambönd
viðkomandi íþrótta- greina setja þær re-
glur, sem fara verðureftir jafnt um merk-
ingar á fatnaði sem og í íþróttahöllum og
lcikvöngum. Þessu til viðbótar em síðan
hömlur af siðferðisástæðum, t.d.
auglýsingar á áfengi og tóbaki. Ennfre-
mur em ákveðnar skorður sem settar eru í
sambandi við skattalög í hinum ýmsu
löndum, áég þarþáaðallega við greiðslur
eða greiðsluform.”
-Sponsoring” er stór þáttur í “rekstri”
iþróttahreyfingarinnar. Er æskilegt að
setja ákveðnari reglur en nú er eða eru
þessi mál með eðlilegum hætti?
“Eins og ég sagði áðan eru þegar gil-
dandi reglur í hverri íþróttagrein fyrir sig.
Slíkar reglur eru settar og samræmdar af
viðkomandi íþróttasamböndum og ber
því hverju aðildarríki að virða þær reglur.
Hins vegar er ávallt hægt að setja enn
reglur innanlands svo og geta eigendur
viðkomandi íþróttahalla sett ákveðin
Guóni Halldórsson. "Vióhorfin
gagnvartíþróttum hafa breyst hjó
mörgum fyrirfœkjum."
skilyrði. Ég sé ekki í fljótu bragði, að það
þurfi að setja einhverjar ákveðnari reglur
eins og staðan er í dag. Það má að ósekju
leyfa þessum málum að þróast áfram enn
um sinn en ef til villþarf að setja einhverja
samræmda löggjöf um þessi mál síðar.”
-Hefur þú fundið fyrir óeðlilegum
þrýstingi frá hendi auglýsenda (sponsor
aðila) í störfum þínum aðþcssum málum?
“Nei, ég hef ekki orðið fyrir neinum
óeðlilegum þrýstingi frá auglýsendum.
Hins vegar finnst mér það fagnaðarefni
hversu miklu betur fyrirtækin fylgjast
með því sem verið er að gera og tryggja
þannig að við gefin loforð af hálfu
íþróttafélaga og sambanda er staðið. Þetta
tryggir sífellt nánara samstarf sem aftur
mun tryggja í framtíðinni enn aukið
fjárstreymi í íþróttastarfið eftir þessum
leiðum. Ekki veitir af hvað sem lottói
líður”, sagði Guðni Halldórsson að
Iokum.
20
Skinfaxi