Skinfaxi - 01.02.1988, Síða 22
Bœkur
Fuglahandbókin fyrir Göngudaginn
Rœtt viö Þorstein Einarsson, fyrrverandi íþróttafulltrúa ríkisins, um bók
hans Fualahandbókin - Greininqarbók um íslenska fuqla -
"...eins og meö Landsmótin..."/"...þótti óhugsandi. En þaö var gert.
Þorsteinn með bók sína viö mynd fró Landsmótinu ó Laugarvatni '64.
“Þetta hófst allt í Skinfaxa”, segir
Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi
íþróttafulltrúi ríkisins, þegar hann er
spurður um hina umfangsmiklu bók sína
Fuglahandbókina, sem kom út fyrir
síðustu jól. Þessi bók er gefin út af
bókaútgáfunni Örn og Örlygur í
flokknum íslensk náttúra og telst þriðja
bókin í þeim flokki.
“Þannig var að þeir Sigurður Geirdal
og Pálmi Gíslason komu til mín og báðu
mig að taka saman þætti í Skinfaxa um
fugla íslands. Þeir voru að velta fyrir sér
hvemig mætti gera ýmislegt í náttúru
íslands aðgengilegra á Göngudegi
fjölskyldunnar sem ungmennafélagar
standa fyrir einn laugardag í hverjum
júnímánuði.
Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að slá
til og ráðast í þetta verkefni. Það varð að
samkomulagi milli okkar að fyrsti þáttur-
inn yrði um máva og sjófugla. Við urðum
að hafa svart-hvítar myndir og Skinfaxi
gat ekki borið það að hafa litmyndir með
þessu efni. En það kom í ljós að fólk kunni
vel að meta þetta framtak. Sigurður
Geirdal hafði samband við mig og sagði
að þau á skrifstofunni hefðu fengið
fjölmargar hringingar frá ánægðum
lesendum. Þá var það ekki ónýtt fyrir
blaðið að í sérstökum ferðaþætti í
útvarpinu var þessi þáttur í Skinfaxa
nefndur og sagt að þama væru komnar í
Skinfaxa alveg sérstakar upplýsingar
fyrir fólk með áhuga fyrir náttúru landsins
og fuglalífi.”
Þorsteinn lauk við þetta verkefni í ellefu
blöðum, á tæpum tveimur árum og naut
aðstoðar og velvildar þáverandi ritstjóra
Skinfaxa, Guðmundar Gíslasonar.
“Fjölmargir sögðu síðar við mig að þetta
hefði veriðgottframtak”, sagðiÞorsteinn.
“Fólk hefur auðvitað margar úrvalsbækur
um fugla. Þar má nefna Fuglar íslands og
Evrópu sem Finnur Guðmundsson þýddi
og staðfærði, Fuglar Islands eftir Hjálmar
R. Bárðarson, Fuglamir eftir Bjama
Sæmundsson og margar fleiri. Þessar
góðu bækur eru hins vegar svo
umfangsmiklar og ítarlegar og sumar eru
ekki meðfærilegar fyrir fólk á
ferðalögum. Auðvelt á að vera að fletta
upp íbókinniogfræðastum fuglsemfólk
sér á gönguferðum.
Fljótlega eftir að þættimir í Skinfaxa
hófustfórfólkaðbendamérá vissarvillur
í þáttunum, fyrst og fremst stafavillur og
annað því um líkt. Ég hafði ekki lesið
prófarkir en fór að gera það. Staðreynd
var að þessir þættir voru með þeim hætti
að ég var ekki fyllilega ánægður og vildi
eindregið betmmbæta þá. Einnig það að
ekki vora tök á að hafa litmyndir.
Nú, svo er það þáttur Örlygs
Hálfdánarsonar. Plöntubók þeirra kom út
1986 og um haustið fór ég til þeirra með
heila tösku af erlendum fugla-
greiningarbókum og Skinfaxa. Ég hafði
tekið eftir að þeir höfðu gefið út tvær
bækur merktar Náttúra íslands 1 og 2. Ég
spurði því hvort þeir ætluðu sér að halda
áfram og vildu þá ekki taka fuglana fyrir.
Þeir tóku mjög vel í þessa hugmynd og
fóru strax að ræða um höfund. Ég hafði í
huga ákveðinn ungan mann, líffræðing
sem einnig er fuglafræðingur. Hann hafði
þá tekið að sér starf, sem batt hann og
myndi gera honum óhægt um slík ritstörf.
Þegar hér var komið sögu sagði Örlygur
Hálfdánarson: “Við hættum ekkert við
það sem við höfum ákveðið. Ég ætlaði að
gefa svonabók út fyrireinum fjómm árum
en varð að hætta við. Nú gefum við út
þessa bók og þú skrifar hana.”
Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að slá
til. Ákvað að nýta mér skrif mín í Skin-
faxa en einnig kennsluefni sem ég hafði
unnið fyrr á árum þegar ég var kennari í
VesUnannaeyjum, 1934 til 1941. Á
þessum árum gátu nemendur vart keypt
sér námsbækur og ég vann því námscfni
fyrir bömin sem tengdist náttúrunni. Af
þessu efni nýtti ég mér greiningar á
fuglum sem ég hafði unnið. I þessu efni
hafði ég gmnninn.
I þessari bók sem nú er komin út geri ég
það sem ég vildi alltaf gera, sýna hvern
fugl í lit og á litlum myndum sýna með
örvum helstu einkenni hvers fugls. Með
myndunum er svo stutt Iýsing á hvcrjum
fugli. Ég vildi hafa styttri texta með
hverjum fugli en varð á endanum. Það er
ekki hægt að þreyta fólk með löngum
texta íbók sem þessari. Til þess em aðrar
bækur. En útgefendur vildu meiri textaog
því er stutt almennt spjall með lýsingu
hvers fugls.
22
Skinfaxi