Skinfaxi - 01.02.1988, Side 25
Hlaup
Árangur í hlaupagreinum í heild er mun
betri en í fyrra.
Spretthlaup
Enginn var afgerandi bestur í 100 m. en
Egill Eiðsson, UÍA, var bestur í 200 og
400 m. hlaupunum þar sem hann náði
sínum besta árangri til þessa.
Af ungum mönnum í framför má nefna
Jón Amar Magnússon, HSK, í 100 m„
Gunnar Guðmundsson, UÍA, í 100 til 400
m„ Amar Snorrason, UMSE, og Friðrik
Larsen, HSK, í 400 m. hlaupi. Einar
Gunnarsson, UMSK, mun hafa lagt skóna
á hilluna.
Árangur í spretthlaupunum verður enn
að teljast slakur en 400 m. hlauparamir
lofa þó góðu.
Gaman er að sjá jafn marga
“rafmagnstíma” og raun ber vitni.
Vonandi verða gömlu góðu
skeiðklukkumar jafn sjaldgæf sjón og
sauðskinnsskómir um næstu aldamót.
Millihlaup
Islandsmet Erlings Jóhannssonar ber
hæst í millivegalengdum. Þrotlausar
æfingar hans undanfarið eru nú að byrja
fyrir alvöru að skila árangri.
Guðni Gunnarsson, UMFK, sýndi
hvers hann er megnugur, ef hann nennir.
Daníel S. Guðmundsson, USAH, bætti
sig mikið, Svavar Guðmundsson, HSH,
nokkuð og Arngn'mur Guðmundsson,
UDN, kom á óvart á sínu fyrsta alvöru
keppnisu'mabili.
Brynjúlfur Hilmarsson, UÍA, var
meiddur, Hannes Hrafnkelsson, UMSK,
virðist staðnaður og Guðmundur
Sigurðsson, UMSK, æfði ekki á síðasta
ári.
Langhlaup
Már Hermannsson, UMFK, var bestur í
3000 - 5000 og 10.000 m. hlaupunum og
bætti árangur sinn í öllum greinunum.
Það gerði Daníel S. Guðmundsson einnig
auk þess sem hann var bestur í 3000 m.
hindrunarhlaupi.
Árangur annarra langhlaupara var því
miður slakur. Þó bind ég vissar vonir við
Gunnlaug Skúlason, USVH, sem komið
hcfur á óvart í víðavangshlaupum vetrar-
ins.
Afrekaskráin
Grindahlaup
Grindahlaupin eru skárri en í fyrra enda
þurfti ekki mikið til. Það athyglisverðasta
á þeim vettvangi er 400 m. grindahlaup
Egils Eiðssonar. íslandsmetið gæti legið
næsta sumar.
Boðhlaup
Árangur í boðhlaupum var viðunandi
miðað við áhafnir. Athygli mína vöktu
vel undirbúnar boðhlaupssveitir UMSE á
Landsmótinu á Húsavík.
Hlauparamir Guðni Sigurjónsson,
Aðalsteinn Bemharðsson, Daníel Smári
Guðmundsson og Stefán Hallgrímsson,
“gengu aftur” í raðir ungmennafélaga.
Eru þeir boðnir velkomnir.
Stökk
Árangur í stökkum var slakur en samt
heldur skárri en í fyrra. Aðstöðuleysi háir
stökkvumm víða og oft vantar aðeins
herslumuninn til að gera hana viðunandi.
Hástökk
Unnar Vilhjálmsson, UÍA, var bestur
sem fyrr og Hafsteinn Þórisson, UMSB,
næstbestur. Þeir félagareiga það sameig-
inlegt að vera staðnaðir. Ég hygg að næsta
surnar megi skera úr um það hvort megi
afskrifa þá. Aðalsteinn Garðarsson HSK
stökk 2.00 m. eins og Hafsteinn og bætti
HSK metÞráins Hafsteinssonar um 1 cm.
Hjörtur Ragnarsson, HSH, kom fram á
sjónarsviðið í sumar. Hann á framtíðina
fyrir sér, það er að segja, ef hann æfir
greinina af alvöm og stefnir hátt.
Stangarstökk
Ekki er stangarstökkið burðugt frekar
en fyrri daginn. Ég held ég láti nægja að
bjóða Geir Gunnarsson, UMSS, velkom-
inn í raðir ungmennafélaga.
Langstökk
Síðastliðið sumar var besta
keppnisu'mabilið sem Cees van de Vcn,
UMSE, hefur átt síðan hann flutti til land-
sins. Jón Amar Magnússon og Olafur
Guðmundsson, HSK, eru í framför.
Sigurjón Valmundsson meiddist illa og
var ekki með síðastliðið sumar.
Þrístökk
í fljótu bragði virðist bjart framundan
meðal þrístökkvara. En skoðum málið
betur.
Unnar Vilhjálms og Jón Arnar æfa
aðrar greinar. Guðmundur hefur ekki æft
þrístökk síðan 1984. Kári Jónsson, HSK,
Ólafur Þ. Þórarinsson, HSK, í þrístökkskeppni Landsmótsins ó Húsavík
síöasta sumar. "Ég bind því mestar vonir viö Óiaf Þ. Þórarinsson af þeim
sem eru ö listanum", segir Jón Sœvarí umfjöllun sinni.
Skinfaxi
25