Skinfaxi - 01.02.1988, Side 27
Afrekaskráin
Milli- og langhlaup
Rut Ólafsdóttir, UÍA var sterkust í 800
og 1500 m. en Guðrún Svanbjömsdóttir,
UMSE, í 3000 m. Guðrún Svanbjöms,
Fríða Rún Þórðardóttir, UMSK, og
Guðrún Erla Gísladóttir, HSK eru kom-
ungar og eiga framtíðina fyrir sér.
Vonandi æfa þær af kappi. Rut Ólafs og
Þórunn Unnarsdóttir, UMSK, kcpptu að
ég held í fyrsta skipti undir merkjum
UMFÍ síðasta sumar og er því ástæða til að
bjóða þær velkomnar í hreyfinguna.
Það vekur athygli mína að árangur 6.
manns í 800 og 1500 m. er betri en árang-
ur fyrsta manns í sömu greinum 1986.
Grindahlaup
Eldri stúlkumar eru staðnaðar í
grindinni. Þó bætti Ingibjörg fvarsdóttir,
HSK, sig í 400 m. grind en það er
eingöngu “bikargrein” hjá henni. Það
sama má segja um 400 m. grindahlaup
Berglindar Erlendsdóttur, UMSK.
Boðhlaup
Árangur í boðhlaupunum var þokka-
legur enda leggja flest sambönd áherslu á
að vera með sterkar sveitir á Landsmóti.
Stökk
Árangur Þórdísar Gísladóttur, HSK, í
hástökki bcr hæst og á hún að mínu viti
möguleika á að ná Ólympíulágmarkinu.
Fyrir utan árangur hennar ríkir viss flat-
neskja í stökkunum!
Hástökk
Af öðrum hástökkvurum en Þórdísi er
helst að vænta mikilla framfara hjá Elínu
Jónu Traustadóttur, HSK. Gaman var að
sjá Kristjönu Hrafnkelsdóttur, HSH,
Dagbjörtu Leifsdóttur, HVÍ, og Hafdísi
Helgadóttur, UMSB, aftur í keppni.
Reyndar náðu Kristjana og Dagbjört
sínum bcsta árangri frá upphafi.
Langstökk
Svanhildur Kristjónsdóttir, Birgitta
Guðjónsdóttir, HSK, og Ingibjörg
Ivarsdóttir voru nokkuð frá sínu besla.
Berglind Bjarnadóttir kom mest á óvart og
lofargóðu. HuldaÓlafsdóttir, HSÞ,og þó
sérstaklega Lilja Stefánsdóttir, HSH,
þurfa að bæta hraðann ætli þær sér að
stökkva langt.
Guórún Arnardóttir, UMSK. Hér er hún að setja íslandsmet í langstökki ón
atrennu d íslandsmeistaramótinu í frjólsum innanhúss fyrir skömmu.
Köst
Spjótkast írisar Grönfeldt, UMSB, er
besli árangurinn í köstunum en Guðbjörg
Gylfadóttir, USAH, er í mikilli framför.
Kúluvarp
Guðbjörg bætti sig um 99 cm og fer að
nálgast íslandsmet Guðrúnar
Ingólfsdóttur, KR frá '82. íris Grönfeldt
er í framför en hinar standa í stað.
Kringlukast
Soffía Gcstsdóttir, HSK, er best og
bætti sig aðeins. Allar stúlkurnar á listan-
um hygg ég að hafi bætt sig, nema Hildur
Harðardóttir, HSK. Hana vantaði 4 cm.
upp á “bætingu”. Athyglisverður er
árangur Helgu V. Sigurjónsdóttur ,USÚ.
Helga er byrjandi í greininni og spái ég
því að hún kasti yfir 40 m. næsta sumar.
Spjótkast
íris Grönfeldt náði sér ekki á strik
síðastliðið sumar, tæknin small ckki
saman hjá henni. Vonandi gengur betur
hjá henni í ár því hún stefnir vafalíúð á
Ólympíuleikana. Allir spjótkastararnir
voru nokkuð frá sínu besta og er það
áhyggjucfni.
Sjöþraut
Árangurinn í Sjöþrautinni var
hörmulegur og stúlkurnar þrjár á listanum
voru allar nokkuð frá sínu besta.
Lokaoró
í þessari umfjöllun um Afrekaskrána
hef ég á köflum verið vægðarlausari cn oft
áður. Ég vona að menn taki það ckki illa
upp. í umfjöllun sem þessari hlýtur
sannleikurinn að vera sagna bestur.
Mcð ósk um árangursríkt Ólympíuár,
Jón Sævar Þórðarson.
Skinfaxi
27