Skinfaxi - 01.02.1988, Side 38
Afmœli UMFI
Listin í ungmenna-
félögunum
Umræðuefni sem þetta gefur tilefni til
mjög víðtækrar umfjöllunar, því sterkar
líkurmáleiðaað því að allt starf sem ffam
fer innan hreyfingarinnar sé hluli af okkar
þjóðmenningu. Ég mun því reyna að
takmarka mig sem mest við þann þátt sem
fellur undir listir án þess þó að þar sé um
að ræða einstrengingslega túlkun á því
hugtaki. Leiklistin er sú grein lista sem
ungmennafélögin hafa fyrst og fremst
tekið upp á arma sína með skipulegum
hætti, þó fleiri listgreinar komi þar vissu-
lega við sögu. Ber tónlist þar vissulega
hæst og má minna á útgáfu Söngbókar
UMFÍ af því tilefni.
Samkvæmtupplýsingum fráBandalagi
íslenskra leikfélaga eru 23
ungmennafélög með aðild að bandalag-
inu og hafaþessi félög samtals sett upp 18
fullgildar leiksýningar á sl. 3 árum.
Þetta segir okkur að leiklist er veiga-
mikill þáttur af starfsemi þessara félaga,
því auk þessara leiksýninga standa þessi
félög að námskeiðum, sty ttri dagskrám og
fleiriuppákomumíþeimdúr. Núeruþetta
kannski ekki svo ýkja mörg félög af heild-
inni og erfitt að halda því fram að leik-
listarstarfsemi sé stór hluti af heildarstarfi
ungmennafélagshreyfingarinnar, ef ekki
kæmi flcira til.
Ungmennafélög eiga
stóran þátt í
leikhúsaösókninni
Staðreyndin er nefnilega sú að leiklist
cða “performance” (hér vantar íslenskt
orð) er stór þáttur í starfsemi allflestra
félaga innan UMFI. Hér á ég við
uppákomur og skemmliefni allskonar
sem félagsmenn troða upp með á þeim
hátíðum og samkomum sem sífellt er
verið að halda á vegum
ungmennafélaganna vítt og breitt um
landið.
Það er trú mín að þessi almenna þátttaka
og áhugi sé stór hluti af þeim grunni sem
ótrúleg leikhússaðsókn hér á landi byggir
á.
Nú er vert að velta því aðeins fyrir sér
hvers vegna leiklistin hefur átt þessum
vinsældum að fagna hjá
ungmcnnafélögunum. Kemur þar eflaust
fyrst og fremst til hvað leiklistin er okkur
flestum eðlislæg og náskyld þörf bamsins
til að leika sér. Enda hefur leiklistin að
mínu viti fylgt manninum alla tíð í gegn-
um helgisiði og frásagnarlist alls konar,
þó svo að upphaf leiklistar í því formi sem
við skilgreinum hana nú sé tímasett nær
okkur í tíma. í öðru lagi er sú athöfn að
koma saman og æfa og setja upp leikþátt
eða sýningu mjög þroskandi og
skemmtilegt félagslegt starf. Þroskandi
vegna þess að hópurinn á sér sameiginlegt
markmið sem hann gerir sér fljótt ljóst að
næst ekki nema með mikilli samvinnu.
Ennfremur er í leiklistinni sífcllt vcrið að
fást við mannlega þætti, hlægilega,
sorglega og allt þar á milli og knýr því
þátttakendur til að skoða mannlífið á
opnari og víðsýnni hátt en hinn grái
hvunndagur býður upp á.
Skemmtilegt er þetta starf, því það knýr
hvern einstakling til að virkja
sköpunarþörf sína og leggja sig allan
fram, bæði til Iíkamaog sálar. Endaerþað
svo að ungmennafélagshreyfingin og
leiklisún hafa átt samleið frá upphafi
hreyfingarinnar hér á landi og leiklistar-
starfsemi innan hennar er stór þáttur af
leiklistarsögu okkar. Því vil ég hvetja
UMFÍ til þess að gangast fyrir rannsókn
og ritun á leiklistarstarfsemi ung-
mennafélaganna til þess að Ijóst verði hve
ríkan þátt hún á í mcnningarsögu
þjóðarinnar.
Ungmennafélögin og
menningar- og listalíf
framtíðarinnar
Ef við Iítum úl leiklistarstarfsemi innan
hreyfingarinnar er ljóst að hún er nú í
nokkuð föstum skorðum og kannski ekki
ástæða úl mikilla breyúnga þar á. Þó
fyndist mér rétt að UMFÍ leitaði eftir
nánara samstarfi við Bandalag íslenskra
leikfélaga um með hvaða hætti mætti
auðvelda einstökum félögum að sinna
leiklistarstarfi. Eins finnst mér úmabært
að athugaðir séu möguleikar á því að
tengja saman félagsmálanámskcið og
námskeið í framsögn og leikrænni
tjáningu.
Hvað aðrar listgreinar áhrærir, fyndist
mér rétt að ungmennafélögin á hverjum
stað leituðu eftir samvinnu við önnur
félagasamtök og skóla um með hvaða
hætti mætti stuðla að blómlegra menn-
ingar- og listalífi á hverjum stað.
í mínum huga erþað engin spurning að
nú á tímum rýrnandi byggðar samfíira
auknu framboði á afþreyingarefni og
tímamorðingjum ýmiss konar, fcr
hlutverk og ábyrgð ungmennafélags-
hreyfingarinnar í þessum efnum vaxandi
og lausnarorðið sem jafnan áður er
samvinna.
Arnór Benónýsson
Höfundur er leikari og fyrrver-
andi stjórnarmaður í UMFI.
38
Skinfaxi