Skinfaxi - 01.04.1988, Page 15
Landsliðsþj álfari
FRI
Ráðgefandi eftirlitsmaöur
í tilcfni umræðna og harðra dcilna scm
urðu fyrir nokkru um landsliðs-
þjálfaramál Frjálsíþróttasambands
Islands, sneri Skinfaxi sér til formanns
sambandsins, Ágústs Ásgeirssonar, og
spurði hann nokkurra spuminga sem fóru
fyrir ofan garð og ncðan í fyrrncfndum
blaðadeilum.
Á síðasta vori var tekin upp sú nýbreytni
innan FRÍ að ráðnir voru svonefndir
landsþjálfarar í spjótkasti og hlaupagre-
inum og gilti sú ráðning síðasta sumar,
fram til 1. október. Ágúst var fyrst
spurður um reynsluna af þessari tilhögun
{)jálfaramála.
“Þetta kom nokkuð snögglega til og
meðal annars vegna beiðna frá
frjálsi'þróttafólkinu. Landsþjálfararnir
voru hugsaðir scm nokkurs konar
eftirlitsþjálfarar.
Þetta reyndist nokkuð vel, ef eitthvað
var þá var þetta kannski full mikil vinna
fyrir viðkomandi þjálfara. Þetta var
nokkuð sem bættist ofan á önnur verkefni
þeirra.
En þctta er samt sem áður stcfnan hjá
okkur. Þ.e. að leggja meiri áherslu cn áður
á })jálfaramálin. Það voru til að mynda
scndir þrír þjálfarar með sex
íþróttamönnum á Hcimsmeistarainólið í
frjálsíþróttum í Róm síðastliðið haust og
þóui takast mjög vel. Það hefur lönguin
loðað við sumt frjálsíþróttafólk hérlendis
að það teldi sig ekki þurfa á þjálfara að
halda á stórmót en þarna sannaðist hið
gagnstæða.
Hugmynd stjórnar FRÍ er sú að
Landsliðsþjálfarinn verði eins konar
“eftirlitsþjálfari”, fylgist með unglinga-
landsliði auk karla- og kvennalandsliðs.
Honum vcrður heimilt að fá mcnn sér lil
aðstoðar sem taki jafnvel að sér ákvcðnar
greinar. Og mér þykir ekki ólfklegt að þar
vcrði um að ræða þá sem verið hafa
landsþjálfarar og aðrir bestu þjálfarar
landsins. Þá er einnig gert ráð fyrir að
hann komi inn á A og B stigs námskeið og
Ágúst Ásgeirsson. "Allir berum við
hag frjálsíþróttanna... fyrir brjósti."
veiti tilsögn og fræðslu. Einnig má hugsa
sér að hann fari í heimsóknir á mörg þau
svæði út um land þar sem nú er einna
mestur uppgangur í frjálsum í])róttum.”
-Það má þá vera ljóst að hér erekki mjög
mótað starf á fcrð sem Guðmundur er að
taka að sér.
“Það cr okkur vel ljóst. En þclta cr í
fyrsta sinn sem ráðinn er landsliðsþjálfari
hér á landi mcð þessum hælti og við
viljum ekki fara að byggja fyrir fram
eitthvert kcrfi sem stenst síðan ekki. Við
viljum að því leyti spila þetta nokkuð eftir
hendinni. Hans verksvið verður því fyrst
og fremst að sjá um úrvalshópana í
ráðgefandi hlutvcrki.”
-En má ekki búast við að samband við
marga frjálsíjiróttaþjálfara verði nokkuð
erfitt á næstunni, í ljósi þeirra umræðna
sem voru í blöðum í kjölfar ráðningar
Guðmundar scm landsliðsþjálfara?
“Ég á nú von á að tíminn græði þau sár
sem þama hafa opnast. Allir bcrum við
hag frjálsí{)róttanna hér á landi fyrir
brjósti. Þú áu líkast til við Englendinginn
sem Þráinn Hafsteinsson ncfndi í
blaðaviðtali. Ég þckki til þessa manns.
Hann er mjög fær maður en okkur fannst
rétt að það væri valinn íslendingur í þetta
starf. Nú, mér þykir ekki óeðlilegt að
Guðmundur snúi sér til þeirra manna sem
við höfum nefnt hér að framan auk fleira
fólks. Það má telja upp svo marga, Gun-
narPál Jóakimsson, Helgu Alfreðsdóttur,
Maríu Guðnadóttur og þannig má áfram
telja.”
-Nú hcfur mörgum orðið tíðrætt um
frjálsíþróttamót hér á Reykjavíkur-
svæðinu og hvers vegna þau séu ætíð
svona illa sótt.
“Það er rétt að frjálsíþróttamótin hafa
ekki vcrið afskaplega vel sótt undanfarin
ár. Það þarf auðvitað að vanda betur til
þeirra en gert hefur verið og kynna þau
betur í fjölmiðlum. Þá er nauðsynlegt, til
þess að ná upp áhuga fólks, að halda tvö til
þrjú stórmót á sumri og tryggja þá að allt
okkar besta fólk mæti. Þróunin hefur
nefnilega verið sú að okkar besta
frjálsíþróttafólk hefur verið erlendis við
nám og æfingar og hefur þá gengið í
gegnum stranga þjálfunar- og
keppnisáætlun og álag. Þetta fólk hefur
því oft verið {ireytt og ófúst að taka þátt í
stórmóti þegar það kemur heim.
Ég get nefnt mót 18. júní sem við erum
að vinna að. Við höfum oft verið með 17.
júní mót í Laugardalnum en nú er orðið
svo mikið um að vera á þeim degi að
okkur {)ótti heppilegra að hafa það daginn
eftir. Við stefnum að því að fá fræga
íþróttamenn í kastgreinum, til dæmis í
spjótkasti og kringlukasti, og erum í
samstarfi við Véstein Hafsteinsson og
Einar V ilhjálmsson um það en þeir eru nú
erlendis við æfingar.
íslandsmeistaramólið er viku eftir 18.
júní mótið og við ætlum því meiri reisn nú
en oft áður. Það var samþykkt á síðasta
Frjálsíþróttaþingi að frjálsíþróttafólk sem
stefndi á landsliðið yrði að taka þátt í
þessu móti til að eiga möguleika. Það
verða að vera gildar afsakanir til að það fái
frí.."
Skinfaxi
15