Skinfaxi - 01.04.1988, Blaðsíða 35
Afmæli UMFÍ
akstur bannaður að nauðsynjalausu utan
vega og merktra slóða. Samt heimila
umferðarlög skráningu slíkra tækja, eins
og t.d. fjórhjóla. Hér verður að taka í
taumana áður en í mcira óefni kemur. Þar
þurfa ungmenna- og iþróttafélög að beita
áhrifum sínum.
Mengun af rusli og hávaða
Annar ógnarvaldur fyrir umhverfið er
mengun af margvíslegu lagi. Þar er ruslið
mcst áberandi og tengist m.a.
ferðamennsku og útilegum. Einnota
umbúðir auka á vandann og sá ósiður að
brjóta glerflöskur á víðavangi. Talsvert
hefur áunnist í að brey ta viðhorfi fólks og
bæla umgengni með fræðslu og áróðri.
Setja þarf reglur um einnota umbúðir og
koma á endurvinnslu á úrgangi.
Hávaðamengun er tilfinnanleg hérlcndis,
bæði innan dyra og utan. Vélsleðar eiga
t.d. ekki heima á útivistarsvæðum fyrir
skíðafólk. Hávær hljómflutningur er
truflandi og skaðlegur. Umferðarhávaði
hvimleiður og raskar ró manna. Uti í
náttúrunni þurfa hennar eigin raddir að
geta notið sín. Þess er að vænta að innan
skamms verði settar reglur til varnar gegn
hávaðamengun. Almenningsálitið þarf
að hjálpa til við að halda hávaðaí skefjum.
Auka þarf stuðning við
æskulýðsstarf
Afar brýnt er að samfélagið auki stuðning
við æskulýðs- og íþróttastarf í landinu.
Það er mjög óheppilegt að ungmenna- og
íþróttahreyfingin þurfi að halda sér uppi á
snöpum og með fjáröflun af úti-
samkomum, þar sem markmiðið er fyrst
og fremst að hala inn peninga.
í stað þess þyrfti að koma á skemmtunum
sem minna láta yfir sér og þar sem unglin-
garnir sjálfir leggja silt af mörkum sem
skapandi þátttakendur.
Sveitarfélög þyrftu að geta lagt meira til
æskulýðsstarfsemi, m.a. með launuðum
verkefnum til umhverfisbóta og fegrunar.
Á friðlýstum svæðum er verk að vinna
fyrir æskufólk, m.a. við gangstígagerð.
Til þess að það fari vel úr hendi þarf góða
verkstjórn og undirbúning, og allt kostar
það nokkurt fé.
Við skógrækt og uppgræðslu er einnig
verk að vinna og fátt er hollara æskufólki
en að eiga þar hlut að máli.
Hér hefur verið stiklað á fáeinum atriðum
varðandi tengsl æskufólks við umhverfi
og óbrotna náttúru. Á því sviði bíður
Ungmennafélags Islands mikið og
verðugt verkefni. Margt hefur þar verið
vel unnið í hálfrar aldar starfi félaganna.
Nú er að læra af reynslunni og laga
starfsemina að breyttum tímum.
Hjörleifur Guttormsson.
. ^ | Einkareikningur Landsbankans
1 er tékkareikningur sem tekur
öðrum framz Háir vextir, kostur á
I 1 yfirdráttarheimild, lániogmargvís-
legri greiðsluþjónustu. Reikningur sem er
saminn að þínum þörfum
í nútíð og framtíð.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Skinfaxi
35