Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1989, Side 11

Skinfaxi - 01.08.1989, Side 11
sér, held ég. Við vorum fimm íþessari ferð. En nú eru orðnir 15 manns í þessum hópi. Þessi 15mannahópur er ekki sérstaklega valinn. 1 honum eru þeir sem hafa áhuga á því að vera með.” Fjallaferðir -Eitt af því sem Jón Arnar er að „þvælast” í eru fjallaferðir, á snjósleðum og jeppum. Er það ekki rétt að Jón hafi verið einn þeirra sent týndist uppi á Lyngdalsheiði í vetur í vitlausu veðri? „Jú, það errétt. Þetta var ífréttum í vetur að það hefðu týnst fjórir á Lyngdalsheiðinni. Þetta varð geysi mikil leit. Þetta voru einir 36 tímar sem enginn vissi neitt. Hjá okkur átti þetta að verða létt ferð, tveggja tíma skottúr. Það varð nú eitthvað annað. Málið var það að sleðarnir biluðu. Þeirvoru samtgangfæriren svolentum við í feikna veðri, byl og snjókontu. Við þekktum staðhætti kannski ekki nógu vel en héldunt nú samt áfram. Við sáum íjall sem við töldum okkur þekkja, ókum af stað og ætluðum að miða okkur við það. Svo kom bara í ljós að þetta var Herðubreið”, segir Jón Arnar og hlær. Við vorum svo komnirinn undirLangjökul þegarvið fundumst. Þá vorum við búnir að keyra í næstum einn stóran hring. En þetta eru svo ofboðslegar vegalengdir þegar ntaður er uppi á hálendi á snjósleðum. En viðvorum vel klæddir og varð aldrei neitt kalt þannig að sent betur fer lauk þessu farsællega.” Spenna, hraöi og fjör -Og hvað er það sem dregur Jón Arnar í svona ævintýri? „Ævintýrið. Þetta er ævintýra- mennska og ég hef gaman af þessu. Holl útivera, spenna, hraði og fjör. Svo er það draumurinn að eignast jeppa. En það verður nú ekki á næstunni.” -Þeirsem gagnrýna jeppastandið segjast ekki skilja í því hvernig menn nenna að liggja undir jeppa úti í skúr í þrjá mánuði, fara svo á fjöll og brjóta hásingu eða eitthvað álíka í fyrstu á. Og svo næsta mánuð inni í skúr. Hverju svarar þú þessu? „Það er gaman að vesenast í þessu. Jóm á Meistarmótinu íjúlíásamt HSKfólki, þeim Ingibjörgu ívarsdóttur, og Práni Hafsteinssyni.....Þráinn hefur aðstoðað mig mikið og verið mín stoð og stytta." Jón að velja sér spjót.....þetta er mikil tœknigrein og þess vegna er gaman að glíma við hana." einfalt mál. Þetta er spurning um spennu. Þegar maður er kominn út í torfærur er maður að bjóða einhverju byrginn, ögra einhverju. Sjá hvað er hægt að komast.” -Jón segir eina sögu af því þegar félagarnir fóru í eina ferðina upp í Landmannalaugar. „Við vorum í einni brekkunni þegar bíllinn valt. Hann fór einar fjórareða fimm velturog endaði niðri í gjótu. Á hvolfi. Svona er þetta, spenna, alltaf eitthvað óvænt. Maður þarf að reyna eitthvað sem enginn hefur gert áður. Þetta er eins og í sportinu. -Aftur að þrautinni. Jón tór átta sinnum út í fyrra og það er nokkuð mikil breyting frá því sem hann var vanur. Norðurlandameistaramót unglinga i' tugþraut 1988 í byrjun júlí var fyrsta stóra mótið sem Jón fór á erlendis. Hann gerði sér lítið fyrirog varð Norðurlandameistari, en lætur lítið yfir þessum árangri. Mikil reynsla „Svo var það Heimsmeistaramót unglinga í Kanada. Þar var ég á góðri leið þegarég meiddist í stönginni. Ég sá frant á góða bætingu frá Norðurlandamótinu en það varð ekki. En fy rst og fremst er þetta mikil reynsla sem ég hef verið svo heppinn að öðlast. Til dærnis að hafa þúsundir af áhorfendum í kringum sig að hvetja. Þetta var mjög skemmtileg reynsla. Svona lagað gerist ekki hér á landi, það er víst alveg öruggt. En nú er bara að byggja á þessari reynslu og æfa og bæta sig. í ljósi þess árangurs sem ég hef náð án þess að stunda æfingar af einhverju viti finnst mér ekkert óeðlilegt að stefna á Olympíuleikana í Barcelona 1993. Það verður gantan.” 1H Skinfaxi 11

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.