Skinfaxi - 01.08.1989, Síða 31
voru þar með tæplega 30 klst. í lieild
hafa yfir 100 manns starfað í þessari
sjálfboðavinnu.
H úsið var vígl á 15 ára afrnæli Hattar
með veglegri vígsluhátíð. Við fengum
margar veglegar gjafir, t.d. gaf
kvenfélagið Bláklukkur okkur allan
borðbúnað í húsið. Húsið er ntikil
lyftistöng fyrir félagslífið hér, ekki
aðeins fyrir Hött heldur fá ntörg önnur
félög hér inni."
Emil telur þetta fyrirmyndarfram-
kvæmd fyrir félög og bæjarfélög af
svipaðri stærðargráðu, „...enda hafa
fjölmargirannars staðar að af landinu
spurst fyrir um húsið og hvernig að
þessu var staðið." IH
Yngri kynslóðin innan Hattar
tók einnig til hendinni við að
skapa húsið sitt. Hér eru það
Arnar. Jens og Hulda sem
mála og sparsla.
Gamall siður endurvakinn
Svörfimgar
kampakátir
eftir
Hríseyjaiferð
Að kvöldi hins 5. júlí sl. lagði hópur
knattspyrnumanna frá Umf. Þorsteini
Svörfuði í Svarfaðardal land undirfót
og var ferðinni heitið til Hríseyjar þar
sem leika átti við Umf. Narfa.
Samskipti þessara félaga á
knattspyrnuvellinum má rekja nokkur
ár aftur í tímann. Fyrst var leikið
árlega í 3 ár en síðan lagðist siðurinn
af í nokkur ár. A síðasta ári var
þráðurinn síðan tekinn upp að nýju.
Leikirnir hafa ávallt verið fjörugir
og mörg mörk verið skoruð. Fyrstu
tvö árin sigraði Narfi, fyrst 5-1 og svo
6-1, en þriðja árið vann síðan Þorsteinn
Svörfuður 9-0. A síðasta ári vann
síðan Narfi 6-2 þannig að leikmenn
Þorsteins Svörfuðar töldu sig eiga
harma að hefna.
Til Hríseyjarvarhaldiðmeðferjunni
Sævari og síðan tekið til við
sparkmenntina. Þó ferjuferðin væri
stutt og þægileg virtist svo sem
gestirnir hefðu fengið dágóðan
skammt af sjóriðu, staðan var
nefnilega orðin 4-0 fyrir heimamenn
áður en gestirnir uppgötvuðu að
leikurinn var byrjaður. Ettir þetta
jafnaðist leikurinn og þegar staðan
var orðin 6-4 fyrir heimamenn þá
pressuðu gestimir nokkuð. Uppskeran
varð þó rýr, skalli í stöng og tvö skot
naumlega framhjá voru markverðustu
færin. Undir lok leiksins vöknuðu
heimamenn til lífsins á ný og skoruðu
3 síðustu mörkin þannig að lokatölur
urðu 9-4 þeim í hag. Þetta verður að
telja nokkuð sanngjörn úrslit og
munurinn hefði hæglega getað verið
meiri því markvöfður Þorsteins
Svörfuðar átti góðan leik og varði
meðal annars vítaspyrnu.
Eftir leikinn tóku leikmenn Þorsteins
S vörfuðar næstu ferju til fastalandsins
og þrátt fyrir tapið var lundin létt og
menn voru bara staðráðnir í að gera
betur næst. Meira að segja rign-
ingarsuddinn sent var þetta kvöld
megnaði ekki að skemma skapið.
F.Þ.
Skinfaxi
31