Skinfaxi - 01.02.1990, Qupperneq 5
Leiðari - Frá ritstjóra
Kæru lesendur, gleðilegt sumar.
„Skinfaxi heitir hann, og sól og sumar vill
hann breiða yfir land allt. Bera kveðju milli
Ungmennafélaganna. Og færa þeim fréttir af
starfi voru víðsvegar um land. Hann vill flytja
þeim hvatningarorð og leiðbeiningar um starf
þeirra.”
Þessi orð sem birtust í 1. tölublaði Skinfaxa
1909 eiga enn við. Það er nefnilega svo að þær
hugsjónir og þau markmið sem Ungmenna-
félagshreyfingin hefur haft að leiðarljósi, s. s.
þjóðrækni, umhverfismál, íþróttir, listir, frelsi
og skemmtanir eru enn baráttumál hreyfingar-
innar og reyndar mál sem varða alla landsmenn.
Ungmennafélagshreyfingin hefur staðið eins
og styrkur stofn "við þau" málefni sem skipta
okkur svo miklu. Því hvað er mikilvægara en að
líða vel, andlega sem líkamlega, en það gerum
við með ástundun íþrótta og samskiptum við
fólk. Við ræktum landið og bindumst böndum
um að sporna gegn mengun og spjöllum. Við
hvetjum Islendinga til að velja íslenska
framleiðslu og reynum að koma því á framfæri
hvers vegna það er æskilegt. Við finnum ótal
leiðir til að opna augu fólks fyrir því hvað er gott
og fagurt. Og ekki veitir af, því oft er örstutt í
ósætti og ósamlyndi yfir minnsta málefni, þar
sem menn hafa stundum ekki vandað orðavalið
og deilan snýst þá um orðin en ekki þann
ágreining sem var upphaf deilunnar.
Ungmennafélagshreyfingin, sem var stofnuð
1907, er enn við lýði með sömu markmið, en hún
fylgir straumi tímans, það eru leiðirnar til að
ná markmiðunum sem hafa breyst í samræmi
við breytt þjóðfélag. Ungmennafélagshreyfingin
er miklu meira en bara íþróttasamtök, ekkert
íþróttastarf þrífst án félagsstarfs, sem er
undirstaða allrar starfsemi.
Með þessum orðum hef ég reynt að gera grein
fyrir mikilvægi Ungmennafélagshreyfingar-
innar. Islendingar vinna mikið, álagið á okkur
og börnin okkar hlýtur
að vera mikið. Við
verðum að hafa tíma fyrir
okkur sjálf, annars
getum við engu áorkað
hvorki í starfi, né á öðrum vettvangi. Eiturlyf
streyma inn í landið ogleggja margar fjölskyldur
í rúst.
Svarið við margs konar vandamálum í
þjóðfélaginu er félagsstarf. Leiðirnar til að
forða sér frá álagi, sjúkdómum og eiturlyfum
eru fyrir hendi. Saman getum við barist gegn
gróðureyðingu, mengun og fjölmörgu sem bjátar
á.
Ég er nýtekin við starfi ritstjóra Skinfaxa af
Ingólfi Hjörleifssyni semhéltutan í nám. Stjórn
UMFI hefur ákveðið að haga útgáfumálum
hreyfingarinnar á þann hátt að gefin verða út
fjögur tölublöð Skinfaxa á ári hverju. Einnig
verður gefið út Fréttabréf UMFI, sem verður
sent til Héraðssambanda og ungmennafélaga,
en lesendur Skinfaxa geta óskað eftir að fá það
sent. 1. tölublað Skinfaxa 1990 er þéttsetið og
vonast ég til að lesendur geti fundið efni við sitt
hæfi og lært eitthvað af félögum sínum út um
allt land. Stundum hefur verið erfitt að fá
aðsent efni frá félögunum, en nú hafa menn
brugðist vel við, þannig að annað hefur þurft að
lúta í lægra haldi.
Frá því ég var lítil stelpa hefur mér alltaf þótt
vænt um Skinfaxa og ég vona að þeir unglingar
sem nú eru að vaxa úr grasi sjái skynsemi í því
að tileinka sér stefnumál Ungmennafélags-
hreyfingarinnar.
Bestu kveðjur og óskir um heillaríkt sumar.
Una María Óskarsdóttir.
Utgefandi: Ungmennafélag íslands. - Ritstjóri: Una María Óskarsdóttir. - Ábyrgðarmaður: Pálmi
Gíslason. - Ritnefnd: Ingimundur Ingimundarson, Guðmundur Gíslason, Gunnlaugur Aðalbjarnarson, Örn
Guðnason og Guðmundur G. Kristinsson. - Stjórn UMFÍ: Pálmi Gíslason, formaður, Þórir Haraldsson,
varaformaður, Þórir Jónsson, gjaldkeri og Sæmundur Runólfsson, ritari. Meðstjórnendur: Dóra
Gunnarsdóttir, Kristján Yngvason og Sigurbjörn Gunnarsson. Varastjórn: Magndís Alexandersdóttir,
Matthías Lýðsson, Flemming Jessen og Jóhann Ólafsson. Afgreiðsla Skinfaxa: Öldugata 14, Reykjavík, s:
91-12546. - Umbrot: Guðmundur Gíslason. - Prentun: Ísafoldarprentsmiðja h.f. - Pökkun: Vinnustofan
As. - Prófarkalestur: Málvísindastofnun Háskóla íslands. - Forsíða: Úrvalsdeildarlið Snæfells í
körfuknattleik.
Allar aðsendar greinar er birtast undir nafni eru á ábyrgð höfunda sjálfra og túlka ekki stefnu né skoðanir
blaðsins eða stjórnar UMFÍ.
SKINFAXI
5