Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 22
Ert þú á leið á Landsmót UMFÍ í sumar? Hvernig getur þú æft sjálfstætt? Þráinrt Hafsteinsson íþróttakennari á Laugaruatni skrifar. Alltaf er nokkur hluti þátttak- enda í frjálsíþróttakeppni Lands- mótanna, sem hefur hvorki æft mikiö, né reglulega, þegar til móts- ins kemur. Oftast er aðstæðum s. s. slæmu veðri,færð ogþjálfaraleysi um að kenna, ásamt framtaksleysi viðkomandi einstaklinga. Mörg héraðssambönd ráða sambands- þjálfara á sumrin sem hefja störf um mánaðamótin maí/júní. Þá er aðeins einn og hálfur mánuður til Landsmóts og því allt of seint að heíja æfingar þá. Hér hafa því verið settar á blað nokkrar almennar ráðleggingar til þeirra sem ekki hafa æft mikið fram að þessu en vilja nota þann tíma sem til stefnu er sem best, þ. e. frá byrjun apríl til Landsmóts og e. t.v. ekki síst þangað til sambands- þjálfarinn tekur til starfa. Tímabilsskipting Frá aprílbyrjun fram að Lands- móti eru fjórtán vikur. Setjum Lands-mótið sem lokamarkmið, þar sem árangurinn á að skila sér og tryggja viðkomandi raunhæft sæti í harðri keppni. Gott er að skipta undirbúningnum niður í þrjú megintímabil. Fyrstu 4-6 vikurnar kallast undirbúnings- tímabil, næstu 4-6 vikurnar þar á eftir kallast sérhæft undirbúnings- tímabil og síðustu 3-4 vikurnar kallast keppnistímabil. Undirbúningstímabilid A undirbúningstímabilinu ætti að leggja mesta áherslu á alhliða uppbyggingu líkamans með fjölbreyttum styrkjandi, liðkandi ogþolaukandiæfingum. Áherslan á tækniæfíngar er með minnsta móti, en tækniæfingar ættu að miðast við að lagfæra meiriháttar tæknigalla, en minni áhersla lögð á fíntæknina. Þetta tímabil ætti að nota til að undirbúa líkamann undir að geta tekist á við tækniæfingar, sprengikrafts- æfíngar og hraðaæfíngar í maí og júní þegar sambandsþjálfarinn hefur tekið til starfa. Með góðum undirbúningi fram að þeim tíma að þjálfarinn hefur störf, leggur þú grunninn að því að fá sem mest út úr þeirri tilsögn sem þjálfarinn veitir þér um tækni, hraða og sprengikraft. Spretthlauparar og stökkvarar ættu að leggja áherslu á alhliða kraftæfingar fyrir allan líkamann með lóðum eða annarri mótstöðu. Hlaupa rólega langhlaup og spretti á hægum hraða, en nokkuð marga. Millivegalengda- og lang- hlauparar ættu að leggja mest upp úr langhlaupum og löngum, en rólegum sprettum ásamt alhliða uppbyggingu líkamans með þrekæfingum. Magnið í kíló- metrum ætti að auka jafnt og þétt á þessu tímabili, en leggja minna upp úr hraðanum. Kastarar ættu að leggja mesta áherslu á alhliða uppbyggingu líkamans með kraftæfingum, með lóðum eða með annarri mótstöðu. Aðstaða til tækniæfinga í apríl og maí er yfirleitt einna skást fyrir kastara og því upplagt að kasta tvisvar til þrisvar í viku. Stuttir sprettir á afslöppuðum hraða ættu að fylgja með. Sérhæfða undirbúningstímabilið Frá miðjum maí og fram í miðjan júní mætti kalla sérhæft undirbúningstímabil. Atímabilinu sérhæfum við æfingarnar meira við þá grein eða greinar sem við ætlum að keppa í á Landsmótinu, en við gerðum á undirbúningstímabilinu, fyrstu4-6vikunum. Tækniæfingar ættu að vera miklar, áhersla á hraða og sprengikraft á að aukast verulega og æfingar sem líkjast því sem gerist í keppninni ættu að vera í fyrirrúmi. Spretthlauparar ættu að draga verulega úr langhlaupum og leggja þess meiri áherslu á sprettæfingar. Bæði langa og stutta spretti og því hraðari sem þeir eru styttri. Við- bragðsæfingar ættu að vera reglulegar t. d. úr rásblokkum. Hoppæfingar til að auka sprengi- kraft ættu að skipa veglegan sess á þessum tíma. Stökkvarar ættu að gera sömu breytingar og spretthlauparar hvað hlaupin varðar ásamt því að leggja mun meiri áherslu á tækniæfingar s.s. atrennuhlaup og uppstökks- æfingar. Hoppæfingar eru mjög mikilvægar á þessu tímabili eins og hjá spretthlaupurum. Millivegalengda- og langhlaup- arar ættu að halda þeim kíló- metraQölda sem þeir náðu á undirbúningstímabilinu, en mun hærra prósentuhlutfall kílómetr- anna sem hlaupnir eru, ættu að vera á þeim hraða sem kemur fyrir í keppni. Slíkum hraða verður ekki náð í stöðugu langhlaupi heldur sprettæfingum með hvíldum á milli. Hver sprettur ætti því að vera á þeim hraða eða hraðari en kemur fyrir í keppni í viðkomandi grein hjá viðkomandi einstaklingi. Kastarar ættu að leggja stóraukna áherslu á hr aða og tækni ásamt aukningu sprengikraftsins með hoppæfingum og hröðum lyftingaæfingum. tækniæfingar- nar ættu að miðast við að kasta með fullri atrennu og t. d. að venja sig á að gera gilt. 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.