Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 6
Hugmyndabanki Ef þið hafið góðar hugmyndir um efni á Barnasíðu Skinfaxa þá vil ég biðja ykkur að senda mér þær. Eg ætla að geyma hugmyndirnar og setja þær í Humyndabanka Barnasíðunnar og taka svo e. t. v. eina og eina hugmynd í hvert sinn til að nota á Barnasíðunni. Getraun Halló krakkar ég heiti U na María og er kölluð Una Mæja. Þessi síða í Skinfaxa er síðan ykkar. A Barnasíðu Skinfaxa verður penna- vinaþáttur, getraun, vísnaþáttur og svo smásagnasamkeppni. Heilræði Barnasíðunnar er: Hafðu hvern hlut á sínum stað og ætlaðu þér hverju starfi ákveðna stund. Pennavinaþáttur Ef þið sendið mér nafnið ykkar og heimilisfang þá getið þið eignast pennavini frá Hrísey, Grímsey, Heimaey eða bara frá Kolbeinsey og Surtsey ha, ha, ha. E. t. v. verður einhver fluttur þangað um næstu aldamót. Vísnaþáttur Mér þætti gaman að fá vísur frá ykkur, þær þurfa ekki að vera með stuðlum og höfuðstöfum, en gaman væri ef pabbi eða mamma, afi eða amma hjálpuðu ykkur svolítið. Styrktarlínur Stykkishólmur Vöruhúsið Hólmkjör Borgarbraut 1 Bensínstöðin uið Aðalgötu Borgarfjörður Mjólkursamlag Borgfirðinga í þessu blaði hefst getrauna- keppni, þið svarið getrauninni og sendið svörin. Getaunin er í tveimur hlutum, fyrri hlutinn verður birtur nú og síðari hlutinn birtist í 2. tbl. Skinfaxa 1990. Verðlaun fyrir rétt svör verða svo afhent á 20. Landsmóti UMFÍ í Mosfellsbæ 12.-15. júlí í sumar. Það er vel þess virði að vera með. Smásagnasamkeppni Smásagnasamkeppnin fer þannig fram að þið sendið mér skemmtilegar sögur, skáldsögur eða sannar sögur. Sögurnar mega ekki vera of langar, því þetta er smásagnasamkeppni. Höfundar bestu samásagnanna fá verðlaun sem afhent verða á Landsmótinu í Mosfellsbæ. Svoverðalíkanokkrar þær bestu birtar á Barnasíðu Skinfaxa. Ég hlakka til að fá bréfin frá ykkur, pennavinabréf, getrauna- bréf, vísur, smásögur og hug- myndir um efni á Barnasíðu Skinfaxa. Bestu kveðjur, Una Mæja. GETRAUN 1. í hvaða boltaíþrótt keppti Samúel Örn Erlingsson, útvarpsmaður, landsleiki? 2. Hver er leikjahæsti íslenski landsliðsmaðurinn í körfuknattleik karla? 3. Hvar var síðasta Landsmót UMFI haldið? 4. Hvar eru Andrésar andarleikarnir á skíðum haldnir? 5. Hverjir eru núverandi heimsmeistarar í handknattleik karla? Ungmenna- og íþróttafélög Munið að við gefum ykkur að minnsta kosti 5% afslátt allt árið 1990. Hringið og fáið myndalista. ALF/ J\T II F 720 BORGARFIRÐI EYSTRI • 97-29977 6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.