Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 35
Körfuboltaknall á Egilsstöðum Fréttir frá UÍA Iþróttastarf á Austurlandi, á sam- bandssvæði UIA, er allgott, enda félögin fjölmörg með margar deildir og ráð hvert. Af helstu viðburðum á líðandi stund mætti nefna Skógargönguna, sem er hluti af íslandsgöngu SKI og fór hún fram í Egilsstaðaskógi 18. mars. Atta þátttakendur gengu 20 km, en nítján fóru 10-15 km trimmgöngu. íþróttafélagiðHöttur sá um framkvæmd göngunnar. I Neskaupsstað er áhugi mikill fyrir blakíþróttinni og áttu t.d. Bikarmeistarar Þróttar í Reykj avík fullt í fangi með að merja sigur á liði heimamanna fyrir stuttu, en blaklið Þróttar í Neskaupsstað er nú skipað ungum og efni- legum leik- mönnum sem lofa góðu fyrir framtíðina. Urslit í ein- stökum hrinum voru: 15 : 13, 13 : 15, 9 : 15 og 8 : 15. Körfuknattleiksrað UÍA stóð fyrir körfuboltaknalli á Egilsstöðum helgi eina í marsmánuði. Amerískirleikmenn úrvalsdeildarliðanna sýndu snilli sína í gamni og alvöru fyrir fullu húsi áhorfenda. Fyrirtæki keyptu miða og buðu öllum nemendum grunnskólans á knallið. Gestirnir komu á föstudag og heimsóttu þá Eiðaskóla, Eskifjörð og Egilsstaði, kynntu körfuboltann og stjórnuðu æfíngum á hverjum stað. Laugardeginum lauk með hljóm- sveitakeppni og dansleik í Valaskjálf á vegum körfuknatt- leiksráðs. Meistaramót UIA í frjálsum íþróttum innanhúss fara fram um hverja helgi á þessum tíma auk skíðamóta. Sunnudaginn 18. mars kepptu um 75 þátttakendur frá 9 félögum á innanhússmóti UIA í frjálsum íþróttum á Egilsstöðum. Andri Snær Sigurjónsson, Hetti setti UIA met í hástökki sveina 15- 17 ára, stökk hann 1,81 metra. Hér á eftir fara nöfn sigurvegara í einstökum greinum. Tvö íþróttafélög fatlaðra starfa á UÍA svæðinu þ. e. Iþróttafélagið Örvar á Egilsstöðum og Iþróttafélagið Viljinn á Seyðisfirði. Ágætt íþrótta- og félagsstarf er nú á vegum þessara félaga og samstarf þeirra á milli, en bæði áttu félögin fimm ára starfsafmæli í marsmánuði. Hermann Níelsson Lákamsræktar- stöð opnuð í Vík Fréttir frá USVS. Ungmennafélagið Drangur í Vík í Mýrdal opnaði um miðjan mars líkamsræktar- stöð að Víkurbraut 26, 2. hæð. Tækjabúnaður er nokkuð góður og aðstaða öll ágæt. Þar er lyftingabekkur með ýmsum aukahlutum til líkams- þjálfunar og ljósabekkur fyrir alla þá sem vilja fá lit á kroppinn. Kveikjan að þessu er meðal annars sú að félagið er 20 ára á þessu ári og einnig er fjárhagurinn mjög góður um þessar mundir. Iþróttaæfingar eru stundaðar í Pélagsheimilinu Leikskálum, en þar er mjöglítill salur ogekki löglegur völlur í neinni hópíþróttagrein. Húsið er samt mikið notað og má segja að það sé alltaf einhver hópur í salnum fimm daga vikunnar, frá kl. 17:00 á daginn til kl. 23:00 ákvöldin. Skíðadeild var stofnuð í félaginu á síðasta ári og var þá keypt notuð 300 metra toglyfta. Hún var sett upp á Sólheimajökli síðasta sumar, en núna eftir áramót hefur hún verið staðsett í svokölluðu Suðurvíkurtúni hjá Vík. Fyrsta skíðamótí Vík a. m. k. síðustu80 árin var haldið 19. mars. Þátttaka var góð og stjórn skíðadeildarinnar sem er skipuð áhugafólki á miklar þakkir skildar fyrir framtakið og þá miklu vinnu sem þau hafa innt af hendi. Frjálsíþróttaþjálfari hjá usvs Gengið var frá ráðningu þjálfara í vetur hjá USVS fyrir komandi keppnistímabil, heitirhann Stefán Jóhannsson. Margir frjálsíþróttamenn þekkja Stefán vegna starfa hans undanfarin ár og hefur hann þjálfað marga af okkar þekktustu frjálsíþróttamönnum. Skólamót USVS ogUSÚ, var haldið fyrir stuttu á því kepptu nemendur allra grunnskóla í Vestur- og Austur- Skaftafellssýslu. Þetta var geysilega skemmtilegt mót og þátttakendafjöldinn vel á annað hundrað krakkar. Þetta mót hefur bætt og aukið samskipti milli skólanna og lífgað upp á vetrarstarfið. Ungmennasambandið á einnig 20 ára afmæli á þessu ári og verður væntanlega gert eitth vað til þess að halda upp á það í sumar og næsta haust. Þó að þessi félög séu ung að árum er ungmennafélags- starfið rótgróið í sýslunni og var fyrsta félagið stofnað árið 1908, hét það Ungmennafélagið Garðarshólmi. Elsta starfandi félagið í dag er Ungmennafélagið Meðallendingur stofnað árið 1908. Páll Pétursson. 35 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.