Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 14
"Verðum að fá Kana Rætt við Kristján Ágústsson, körfuknattleiksmann. Kristján Ágústsson Bjartmars var þjálfari Umf. Snæfells s. 1. vetur og er það annað keppnistímabilið sem hann er í því hlutverki. Kristján er mjög leikreyndur körfuknattleiks- maður og var um tíma kjölfestan í landsliði Islands. Hann er fæddur og uppalinn "Hólmari" og fyrst var hann spurður að því hver hefðu verið fyrstu kynni hans af körfuknattleik. Sigurðui' Helgason var fyrsti íþróttakennari minn, mjög áhuga- samur og drífandi. Hann kenndi okkur undirstöðuatriðin í körfu- bolta, frjálsum íþróttum og fleiri greinum. Fljótlega valdi ég körfu- boltann og æfði eins mikið og ég gat. Eg setti upp körfu heima og æfði þar skot af miklum krafti. Seinna komu íþróttakennarar sem höfðu mikinn áhuga á þessari grein og Friðrik Guðmundsson var gífurlega áhugasamur og ýtti mjög undir áhuga hjá mér. Hann kom mér á æfingar hjá unglingalands- liðinu en það fékk reyndar engin verkefni þann vetur." Upp í I. deild Upp úr 1970 kom Einar Sigfússon hingað. Hann varð íslands- meistari með IR það ár, ef ég man rétt. Hann reif körfuboltann ansi vel upp. Þjálfaði sjálfur meistara- ílokk, en við fengum bragga til afnota sem við æfðum í og inn- réttuðum og lékum í honum tvo vetur. Þurftum að fá undanþágu til að leika þar og sum liðin neituðu að koma vestur. Við náðum að vinna okkur upp í I. deild, en það var áður en úrvaldsdeildin kom til. Við spiluðum þar í tvö ár. Fyrra árið sendum við HSK niður, en liðs- mönnum hafði mjög fækkað seinna árið og við féllum niður. Einar hafði töluverð áhrif á mig. Hann kenndi mér þessi "trikk" sem maður þarf að kunna í þessu ef maður ætlar að standa sig. Hann tók mig sérstaklega fyrir þegar hann sá að ég hafði mikinn á huga á þessu. Eg er honum þakklátur fyrir það, þó ég hafi ekki þakkað honum fyrir þetta þá. Byrjaði í meistaraflokki 15 ára Ég byrjaði að spila með Snæfelli 15 ára og lék með liðinu til 23 ára aldurs en þá flyst ég suður. Mér stóð til boða að fara til Njarðvíkur. Hilmar Hafsteinsson var búinn að útvega mér vinnu og húsnæði og það var mjög freistandi en mér stóð einnigtilboðaaðleikameðVal. Ég var allt sumarið að velta því fyrir mér hvort liðið ég ætti að velja. Valur varð fyrir valinu, aðallega vegna þess að margir kunningja minna voru þar. Einnig réði það miklu að konan fór í skóla í Reykjavík. Ég sá aldrei eftir því að velja Val, því hópurinn þar var mjög samstilltur. Ég hóf keppni með þeim 1976 og léksamfellttil 1984. Þáhættiégen byrjaði aftur um áramótin 1985- 1986 og lék út það tímabil. Ég reyndi svo að vera með í byrjun vetrar '87 en varð að hætta vegna meiðsla. Þetta var um 10 ára tímabil sem ég lék með Val. Við urðum Reykja- víkurmeistarar 1978 hársbreidd frá því að vinna Islandsmótið, en unnum þrefalt árið eftir. Hópurinn hélt vel saman til 1983 þegar okkur tókst aftur að vinna þrefalt. Þetta var mjög skemmtilegt lið og samstilltur hópur, topp-körfubolta- menn. Fyrsti landsleikurinn vid Finna Ég lék 64 landsleiki. Fyrsti leikur- inn var á móti Finnum í Polar Cup 1978. Ég byrjaði mjög vel, skoraði 12 stig í mínum fyrsta leik og mótið í heild kom vel út fyrir mig og ég tryggði sæti mitt í liðinu. Ég lék með landsliðinu í átta ár. Það var næstum því erfiðara að losna úr því en að komast í það. Mig minnir að síðasti leikurinn hafi verið við Dani á Polar Cup í Noregi 1984. Árin með landsliðinu eru ógleymanleg. Allir íþróttamenn með metnað stefna náttúrlega að því að komast í landslið í sinni grein og ég lék með mjög góðum körfuboltamönnum. Það er hart barist um tilverurétt sinn í landsliði, því það eru margir sem banka á dyrnar þar. Eftirminnilegasti leikmadurinn? Ég gerði aldrei upp á milli félaga minna í Val. Leikmennirnir voru vinir mínir innan vallar sem utan, en ég held að J ón Sigurðsson KR sé eftirminnilegastur af þeim leikmönnum sem spiluðu í lands- liðinu með mér. Það var gaman að leika með honum. Hann var skemmtilegur leikmaður. Einnig var fjöldi skemmtilegra stráka sem ég þurfti að kljást við um sæti í liðinu. Ég held að Jónas Jóhannesson Njarðvík hafi verið erfiðasti andstæðingurinn. Ég lenti 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.