Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.02.1990, Blaðsíða 16
Afrekaskrá UMFÍ í frjálsum íþróttum 1989 Við samanburð á afreka- skrám UMFÍ 1988 og 1989 kemur í ljós að framfarir eru litlar ef einhverjar. Fram- undan er hinsvegar betri tíð með blóm í haga, því margt efnilegt ungt fólk er að koma fram og mun vafalítið láta til sín taka á næstu árum. Þá fagna ég því að unnið er að betra mótafyrirkomulagi um land allt sem skilar sér í betri árangri hjá öllum sem á annað borð dvelja á Islandi á keppnistímabilinu. Nýr og glæsilegur íþróttavöllur í Mosfellsbæ er sérlega kær- kominn og seint verður stjórnvöldum í Mosfellsbæ fullþakkaður stórhugurinn. Karlar Spretthlaup Einhverra hluta vegna gengur okkur illa að eignast frambærilega spretthlaupara. Jón Arnar er heldur hægari en í fyrra, en þó lang bestur í 100 og 200 metrum. Gunnar Guðmundsson bætir sig jafnt og þétt í 400 metrunum. Vonandi koma nýir menn fram á sjónarsviðið í sumar. Gunnlaugur Skúlason, UMSS. Gunnar Guðmundsson, UÍA Millivegalengdahlaup. Brynjúlfur og Erlingur eru bestir en Guðmundur virðist hafa lagt skóna á hilluna. Arngrímur og Daníel bæta sig, en Friðrik Larsen átti við meiðsli að stríða en verður örugglega sterkur í sumar. Alla breidd vantar í millivegalengda- hlaupi. Fullkomin innanhúss- aðstaða gæti lyft þessum greinum á hærra plan. Langhlaup Arangur í langhlaupum virðist vera að skána hægt og bítandi, en breiddin er lítil, líkt og í milli- vegalengdunum. Mestum fram- förum tók Gunnlaugur Skúlason. Hann og Már hlaupa trúlega niður á 14:30 í sumar. Boðhlaup Boðhlaupin voru léleg að venju, en þó má ef til vill undanskilja 4x100 mhlaupHSKmanna. Efað líkum lætur verður árangur í boð- hlaupum mun betri í sumar, því flestir vilja mæta með góðar sveitir á Landsmót. Grindahlaup Arangur í stuttu grindinni hefur líklega aldrei verið betri. Athygli vekur að Hjörtur er á ný genginn í raðir ungmennafélaga. Tug- þrautarmennirnir Jón Arnar og Olafur virðast loksins vera að ná tökum á þessari lykilgrein. Fimm af sjö fyrstu mönnum eru tugþrautarmenn. I löngu grindinni er Egill langbestur, en tók ekki framforum. Arangur næstu manna verður að teljast slakur, enda keppa þeir ekki í greininni nema í „neyðar- tilvikum”, svo sem í bikarkeppni. Daníel er bestur í hindruninni, en þeirri grein er lítill gaumur gefmn hérlendis. Stökk Arangur í stökkgreinum er í heildina litið sorglegur. Flestir sem koma við sögu í hástökki, lang- stökki og stangarstökki eru tug- þrautarmenn. Aðrir svo sem Hjörtur Ragnarsson og Ólafur Þórarinsson virðast gæta þess vandlega að eyða ekki tíma sínum í æfingar. Sigurður Matthíasson, UMSE. 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.