Skinfaxi - 01.02.1990, Page 23
Keppnistímabilið
Keppnistímabilið er u. þ. b.
síðustu fjórar vikurnar fyrir
Landsmót og það á að nota til að
„æfa sig í að keppa” og bæta
árangurinn áður en tii Lands-
mótsins kemur. Læra á sjálfan sig
t.d. með því að finna út á smærri
mótunum hvað hentar þér sem
einstaklingiíkeppni. Hvaðáégað
hvíla mig mikið fyrir mót og
hvernig? Hvað á ég að borða fyrir
keppni og hve löngu áður? Hvað á
ég að gera dagana sem ég hvíli?
Hvað á ég að hugsa um í keppninni
til að ná sem bestum árangri?
Hvernig á ég að hita upp fyrir
keppnina? Þetta eru allt spurn-
ingar sem ætti að vera hægt að
svara eftir nokkur smærri mót og
er óþarfi að vera í vafa um þegar til
Landsmótsins kemur. Þáereinnig
mikilvægt að búa sig undir að keppa
við slæmar aðstæðurs. s. áblautum
velli og sleipum. Allra veðra getur
verið von þegar stóra stundin
rennur upp og þá ná þeir bestum
árangri sem eru við öllu búnir.
Sérhæfðar æfingar halda áfram á
keppnistímabilinu með enn meiri
áherslu á hraða, sprengikraft og
tækni. Millivegalengdahlauparar-
nir hlaupa færri kílómetra en mun
meira á keppnishraða eða hraðar.
Landsmótið sjálft
Þegar að Landsmótsvikunni
kemur verður ekkert unnið upp
með mikilli þjálfun. Hvíld á sál og
líkama er langmikilvægust síðustu
vikuna fyrir stórmótið. Þó er ekki
ráðlegt að umbylta æfingunum eða
þeim takti sem náðst hefur
undanfarna mánuði. A Lands-
mótsstað þarf að gera ráð fyrir ýmsu
s. s. að búa sig undir að borða í
mötuneyti, sofa í fl atsæng með öðru
keppnisfólki e. t. v. tuttugu til
þrjátíu manns í skólastofu.
Landsmótskeppnin sjálf er að
mörgu leyti frábrugðin öðrum
mótum og þá helst vegna ijölda
keppenda í hverri grein og hve
áhorfendur eru yfirleitt margir, oft
mörg þúsund. Farðu í keppnina
með ákveðið markmið og notaðu
ákveðnar aðferðir til að ná mark-
miðinu. Markmiðið gæti verið að
hlaupa á ákveðnum tíma í hlaupi,
ná að stökkva vissa vegalengd eða
kasta ákveðna lengd eða jafnvel að
ná ákveðnu sæti meðal keppenda.
Drifin með ljósavél úr bát
HSS fréttir
Mikill skíðaáhugi er nú á
Ströndum. Hvort sú vakning
starfar af miklum snjóalögum
síðustu vetur skal ósagt látið, en
víst er að æ fleiri Strandamenn
stunda þessa gullnu íþrótt sér til
ánægju og heilsubótar. Héraðs-
sambandið hefur unnið markvisst
að uppbyggingu skíðaíþróttarinnar
með ráðningu þjálfara og
endurvakið héraðsmót á skíðum.
Kennari sambandsins í vetur var
Bjarni Bjarnason og var hann að
störfum í fimm vikur. Skíðanám-
skeiðin voru haldin í tengslum við
grunnskólana í héraðinu, en þátt-
takendur voru bæði börn og full-
orðnir, um lðOmanns. Héraðsmót
á skíðum verður haldið nálægt
páskum.
Félagar í Ungmennafélaginu
Geisla á Hólmavík settu upp
togbraut í vetur. Hún er drifin með
ljósavél úr bát og gíruð niður með
niðurfærslugír úr frystihúsfæri-
bandi. Öll vinna við smíði og upp-
setningu var gefin og hæsti
kostnaðarliðurinn, togið í brautina
var keypt fyrir framlag Hólma-
víkurhrepps kr. 100.000.- Utlagður
kostnaður Umf. Geisla er um kr.
30.000,- Uppsetning brautarinnar
er bylting í skíðaaðstöðu á
Hólmavík og nágrenni. Brautin er
skoðuð og samþykkt af vinnu-
eftirliti ríkisins.
Ungmennafélagið Hvöt í
Kirkjubólshreppi varð 70 ára þann
20. mars. Afmælisins verður
minnst á ýmsan hátt á árinu.
Aðferðin gæti verið að hugsa um
eitt ákveðið tækniatriði í kastinu
eða stökkinu og láta ekkert trufla
sig frá að einbeita sér að því. Hjá
millilengdahlaupara gæti það verið
að halda vissum millitímum á
hvern hlaupinn hring eða halda
sig á vissu sæti eða góðri aðstöðu til
að ná að lokum því sæti sem stefnt
var að. Láttu ekkert aftra þér eða
sláþigútaflaginu. Þaðertþúsem
árangurinn veltur á og ekki verður
spurt að leikslokum hvort þú hefðir
getað meira eða hvort þú áttir mikið
inni. Gerðu eins og þú getur best.
Ef þú finnur að þú hefur náð því
marki þegar keppninni lýkur getur
þú vel við unað sama hvar í röðinni
þú verður.
Með ósk um gott gengi.
Þráinn Hafsteinsson.
Afmælisveisla verður í félags-
heimilinu Sævangi í apríllok.
Einnig vilj a Hvatarfélagar minnast
Heydalsárskólans, en hann var
stofnaður 1896 og var þá fyrsti
unglingaskóli í sveit á Islandi.
Hann var samkomustaður sveitar-
innar og fundarhús félagsmanna
Hvatar fram til 1957. En sú
afmælisgjöf sem félagar vilja gefa
sér og sinni sveit er að girða u. þ. b.
20 hektara af örfoka melum í miðri
sveit og sá þar Alaskalúpínu. Að
sjálfsögðu verður svo hið hefð-
bundna starf áfram og nú hafa verið
haldin fjögur spilakvöld frá
áramótum. Virðingarverðar til-
raunir til að slíta fólk frá imba-
kassanum og njóta samvista við
nágrannana.
Verið þið sæl að sinni.
Matthías Lýðsson
SKINFAXI
23