Skinfaxi - 01.02.1990, Side 24
Ferðin sem ætlaði
aldrei að taka enda
Dagbók félaga Sunddeildar UMFB ífebrúar 1990
Föstudagur 9. feb.
Við ungmennafélagar í sunddeild
Ungmennafélags Bolungarvíkur
komum til Reykjavíkur í sól og blíðu 9.
febrúar s. 1. til að keppa á KR-móti í
sundi. Ferðinni var strax heitið í hús
Ungmennafélags Islands, Vesturhlíð,
að Oldugötu 14 þar sem allur hópurinn
19 manns átti að gista. Síðan lá leiðin
í Kringluna, þar sem hópurinn skoðaði
sig um og keypt var í matinn.
Laugardagur 10. feb.
Upphitun hófst í Sundhöll
Reykjavíkur kl. 8 árdegis og synt var
allan daginn til kl. 6 síðdegis þó með
smá hléum.
Sunnudagur 11. feb.
Upphitun hófst kl. 9 árdegis. Mótið
gekk vel og því lauk um kl. 6 síðdegis og
var þá komið leiðindaveður í Reykj avík.
Búið var að ákveða bíóferð um kvöldið,
en hætta varð við það vegna veðurs og
þess í stað arkað á Svörtu Pönnuna.
Allir klæddust snjóbuxum og snjógler-
augum, því við erum vön því hérna
fyrir vestan að þurfa að klæða okkur
vel á þessum árstíma.
Eftir að heim kom var nú aldeilis fjör
á Oldugötu 14 enda átti þetta að vera
síðasta kvöldið í Reykjavík. Spilað var
á gítar, sungið og dansað fram yfir
miðnætti, þá voru allir orðnir þreyttir
og spenntir að komast heim daginn
eftir.
Mánudagur 12. feb.
Hringt var út á flugvöll kl. 8 um
morguninn og athugað með flug. En
allt kom fyrir ekki og flugi var aflýst
réttumhádegið. Þávarekkiumannað
að ræða en rölta í bæinn og náttúrulega
í Kringluna. Þaðan fór hópurinn í
Sundhöll Reykjavíkur og þar var tekin
sundæfing. Um kvöldið fóru eldri
börnin í bíó, en hin yngri horfðu á
myndband og fengu poppkorn og kók.
Þriðjudagur 13. feb.
Liðið fór á fætur kl. 8 og hringt var á
flugvöllinn. Þar var sagt að mæting
ætti að vera kl 13:30.
Ja, viti menn, er á völlinn kom, var
ófært vestur og ferð því frestað og
24
frestað og frestað. Við sátum sem sé og
biðumogbiðumáflug-vellinum, envið
létum okkur ekki leiðast, gítarinn var
tekinn fram og spilað og sungið þar til
loks var búið að aflýsa flugi til Isafjarðar
um kl. 17, kvað þá við mikið húrra-
hróp. Krakkarnir tóku það nauð-
synlegasta úr töskunum, sokka fyrir
næsta dag og annað nauðsynjadót, en
farangurinn var skilinn eftir á
vellinum. Haldið var heim að Öldugötu
14 í strætó og auðvitað var lagið tekið
í vagninum, trimmað eftir endilöngu
Austur-stræti og lét hópurinn öllum
Lagið tekið á Lækjartorgi.
illum látum og við það komu í ljós
einstakir hæfileikar tveggja
sundmanna og eins þjálfarans, er þeir
fóru að breyta sér í apa og endur. Var
síðan hver frjáls ferða sinna þetta kvöld.
Miðvikudagur 14. feb.
Allan daginn var athugað með flugið
og vandlega hlustað á veðurspár.
Akváðu nú þrír fararstjórar að drífa
sig í smá snyrtingu svo börnin fengju
ekki alveg leið á þeim og komu þær
aftur til baka fínar og flottar, nýklipptar
og hreinar.
Nú brá hópurinn á það ráð að fara í
göngutúr og rápa í búðir. En eftir það
tóku börnin sína hefðbundnu
sundæfingu. Kvöldmatur var eldaður
einu sinni enn og eftir kvöldmat fór
liðið á söngæfingu í Hallgrímskirkju,
en þar var verið að æfa fyrir Arshátíð
Bolvíkinga 17. mars. Eftir
heimkomuna var spjallað fram á kvöld
við gamla Bolvíkinga sem komu í
heimsókn, en síðan lá leiðin ekkert
annað en í blessaðar kojurnar, sem
voru þó annars ágætar.
Fimmtudagur 15. feb.
Allir fóru áfætur kl. 8 ogpakkað var
niður enda allir orðnir þaulvanir því.
Út á flugvöll var haldið, en þá var orðið
ófært. Haldið var heim, síðan rölt í
bæinn, stoppað við augnlækingastofu í
Grjótaþorpinu, þar sem gamall
Bolvíkingur vinnur og fyrir hann
sungnir Bolvíkingasöngvar.
Liðið hélt niður á torg, syngjandi og
trallandi, en þar var kjörið tækifæri til
að afla fjár fyrir mat, því allar buddur
voru orðnar léttari og margar tómar.
Endurnar létu vel að heimsókn okkar
að tjörninni, þar sem við sungum og
hlupum boðhlaup á ísnum. Síðan var
rölt á næstu símstöð og athugað með
flug, ennþá var seinkun. Tekiðvarþað
ráð að fara með alla á Þjóðminjasafnið
og var það mjög gaman og fróðlegt. Við
SKINFAXI