Skinfaxi - 01.02.1990, Side 25
hringdum af safninu á flugvöllinn, en
þá var búið að aflýsa flugi.
Nú voru góð ráð dýr, engir peningar
í buddunum og engin matur til í alla
gogganna. Heim í Vesturhlíð var haldið
og okkur tekið vel. Mitt í eymdinni
Safnað fyrir mat.
hringir síminn og okkur berst matarboð
frá Mosfellsbæ. Allir struku um
magann aftilhugsuninni um að komast
í mat til heiðurshjóna sem eru nýflutt
frá Bolungarvík.
Eitt æfmtýrið enn.
Farið var með rútu frá Grensás og
allir hausarnir taldir og reyndust þeir
vera 19, en áður en á leiðarenda var
komið hafði fækkað um einn haus.
Eftir smá bið og hangs á
gangstéttinni kom vera hlaupandi út
úr myrkrinu og reyndist það vera haus
númer 19. Til
hjónanna komunm
við kl. 20 og var nú
hressilega tekið til
matar síns.
Ferðirnar urðu
margar að
matarborðinu,
1 a m b a 1 æ r i ,
kjúklingar og annað
tilheyrandi rann
niður í 19 svanga
maga. Þegar heim
var haldið um kl. 22
var ekkert eftir, ekki
einu sinni vængur af
kjúklingi. Viðtókum
Mosfellsleið til baka
og vagnstjórinn var
svo almennilegur að
keyra okkur alla leið
niður á Tryggvagötu. Við fórum að
sofa og ákveðið var að fara alla leið
heim daginn eftir.
Föstudagur 16. feb.
Vaknað var kl. 7 og hringt á völlinn.
Nú varð að hafa hraðann á því mæting
Þreyttar
á karlmannsleysinu
Fréttir frá HVÍ
Aðalfundur
Ungmennafélagsins
Grettis á Flateyri
Aðalfundur Grettis á Flateyri var
haldinn miðvikudaginn 14. mars.
Mæting á fundinn var góð og umræður
líflegar.
Undanfarin ár hefur stjórn félagsins
eingöngu verið skipuð konum og hafa
þær stjórnað af miklum myndarskap.
En þær voru orðnar þreyttar á
karlmannsleysinu og fengu þrjá
karlmenn til liðs við sig. Einar
Haraldsson tók við formennsku af
Rögnu Olafsdóttur, sem nú á sæti í
varastjórn. Guðmundur Finnbogason
tók við fjármálunum og Magni
Magnússon tók sæti í varastjórn.
Einnig kom Guðrún Pálsdóttir ný inn
í stjórn, sem meðstjórnandi. Bjóðum
við þetta fólk velkomið til leiks og
óskum því farsældar í starfi.
A fundinum var ákveðið að ráða
Magna Magnússon sem þjálfara næsta
sumar, mun hann þjálfa knattspyrnu
og frjálsar íþróttir, auk þess sem hann
verður með leikjanámskeið.
Mjög gott starf hefur verið unnið í
sundmálum Flateyringa og er þar nú
æft sund allan ársins hring í tveimur
deildum, efri deild og nýju deild. Það
er Jón Hjaltason sem sér um þjálfun
sundfólksins.
átti að vera kl. 8. Ekki tók nema 15
mínútur að vekja allt liðið, klæða sig,
pakka niður ogborða. Síðan var staflað
í bílana og ekið út á völl. Hörður
kvaddi okkur með þeim orðum að ef við
kæmum aftur, þá yrði okkur boðið í
mat, sem við þökkuðum kærlega fyrir,
en af því að við komumst heim þennan
dag ætlum við að eiga það inni þar til
næst.
Við settumst og biðum á vellinum,
en andlitið ætlaði að detta af liðinu
þegar tilkynnt var um smávægilega
seinkun, vegna þess að vél frá
Vestmannaeyjum seinkaði. A
leiðarenda komumst við þó fyrir rest.
Bestu kveðjur til allra sem eyddu
með okkur, þó þessari ágætu viku í
Reykjavík og sérstakar kveðjur og
þakkir til starfsfólks UMFÍ á Öldugötu
14 fyrir allt.
Sundkveðjur
Sunddeild UMFB, Bolungarvík.
Framkvæmdastj óri
tilHVÍ
Þórarinn Hannesson Iþróttakennari
hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
HVI og mun hann starfa hjá
sambandinu fram til haustsins. Hann
var áður framkvæmdastjóri HHF
sumarmánuðina '87 og '88.
Nokkur deyfð hefur verið yfir
starfsemi HVI undanfarin ár, þó svo að
öflugt starf hafi verið unnið hjá
einstökum félögum á svæðinu. Er það
von og vilji stjórnar sambandsins að
ráðning starfsmanns hleypi nýju lífi í
starfsemina og sé fyrsta skrefið í þá átt
að lyfta HVI upp úr þeim öldudal sem
það hefur verið í.
Þórarinn Hannesson.
SKINFAXI
25