Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1990, Page 26

Skinfaxi - 01.02.1990, Page 26
ixuðmngsBolti S Ný íþróttagrein á Islandi Hér á landi hefur rutt sér til rúms í orðsins fyllstu merkingu ný íþróttagrein. Hér er átt við ameríska fótboltann eða ruðningsbolta eins og margir nefna þessa íþróttagrein. I þessum pistli verður ruðningsboltinn kynntur og rætt við forvígismenn liða úr Garðabæ og Kópavogi, Daða Guðmundsson úr Garðabæ og þá Pál Magnússon og Ragnar Sveinsson hjá Breiðabliki í Kópavogi. Ruðningsbolti er spilaður á velli sem er 120 jardar að lengd eða 109,2 metrar. Breidd vallarins er 53 jardar eða 48,23 metrar. Leiktíminn er 4 x 15 mínútur. Algengur fjöldi liðsmanna er um 25 leikmenn, en ellefu eru inni á vellinum í einu. Kastað er upp á hvort liðið, A eða B fær að velja um að sparka eða að taka við boltanum. Til að koma boltanum áfram eru þrjár leiðir: Kasta boltanum, hlaupa meðboltannogsparkahonum. Sóknin má aðeins kasta boltanum áfram einu sinni í hverri tilraun, en það má alltaf rétta boltann eða kasta honum afturábak. Leikurinn byrjar þannig að vörnin A sparkar boltanum frá 35 metra línunni til liðs B þar sem sóknarmaður liðs B bíður eftir boltanum og hleypur með hann eins langt og hann kemst í átt að endamarki liðs A. Ef liði A tekst að fella hlaupara liðs B þá hefst nýr þáttur í leiknum, þar sem lið B reynir að fara næstu 10 metra í fjórum tilraunum. Þar sem leikmaður B fellur þar byrjar B sókn. Sókn B hefur fjórar tilraunir til að komast 10 metra. Ef henni tekst það ekki þá tekur liðið A boltann. Þó getur sókn B verið svo sniðug að sparka boltanum frá sér í síðustu tilrauninni og þannig torvelt liði A að komast að endamarkinu. Takist liði B að komast þessa 10 metra þá endurnýjast tilraunafjöldinn fyrir næstu 10 metra o. s. frv. þangað til skorað er. Takmarkið er að koma boltanum í endamark andstæðingsins. Um er að ræða snertimark (6 stig), vallarmark (3 stig), aukastig (1 stig) og sjálfsmark (2 stig). Snertimark er þegar sóknarliðinu tekst að fara með boltann inn á endasvæði andstæðingsins. Alltaf þegar lið hefur gert snertimark fær það tækifæri til að gera aukastig. Þá raða leikmenn sér upp þrjá metra frá endamarkslínu og mega sparka eða hlaupa með boltann, en fá aðeins eitt stig fyrir. (Oftast þegar skorað er snertimark þá fylgir aukastig með sem gerir samanlagt 7 stig.) V allarmark er sett þegar sóknarliðið sér fram á að það kemur ekki boltanum í endamarkið og ákveður að sparka Stöður leikmanna. Staða. Verkefni. Æskilegir eiginleikar. Stjórnandinn. Stjórnar sókninni. Ekki lágur, geta kastaö vel og þarf aö hafa góöa þekkingu á reglum. Hlaupari. Heypur, blokkar og grípur. Kraftur, hraöi og þyngd. Létthlaupari. Hleypur, blokkar og grípur. Kraftur. hraöi oq tækni. Útherji. Grípur og hleypur. Hraöi og tækni. Innherji. Blokkar og grípur. Kraftur, þyngd og tækni. Línumaður. Blokkar og fellir. Kraftur og þyngd. Línuvörður Fellir. Kraftur, hraöi og þyngd. Bakvörður Fellir. Kraftur og hraöi. Útvörður. Passar útherja og fellir. Hraöi og tækni 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.