Skinfaxi - 01.02.1990, Síða 27
boltanum á milli markstanganna.
Vallarmark er oft sett þegar lið sér
fram á að það nái ekki að komast 10
metra í sínum fjórum tilraunum og er
það nálægt endasvæði hins liðsins að
sparkarinn drífi í markið.
Sjálfsmark getur átt sér stað þegar
leikmaður er felldur í sínu eigin
endamarki og ef hlaupari bókstaflega
hleypur í sitt eigið enda-mark.
V örnin r ey nir að sj álfsögðu að stöðva
sóknina og notar til þess sín eigin kerfi,
en vörnin byggist mikið á því að
varnarmennirnir geti lesið út hvað
sóknin er að gera og stöðvað þá þannig.
Vörnin getur krækt sér í tvö
sjálfsmarksstig með því að fella
manninn með boltann í endamarki
hans.
Sóknarlínumenn reyna sitt á hvað
að gera holur fyrir hlaupara liðsins í
vörnina eða að passa að enginn komist
nálægt stjórnandanum meðan hann
reynir að kasta. Þetta gera þeir með
því að blokka.
Með því að blokka er átt við það að
ýtt sé á mann til að koma í veg fyrir að
hann komist að manninum með
boltann. Sóknarmenn blokka ef þeir
eru ekki með boltann. Leikmenn nota
ótakmarkaðan kraft sinn til að blokka
og mega þess vegna henda sér á næsta
mann (ekki fyrir neðan mitti), en verða
samt að fara eftir ákveðnum reglum
t.d. má ekki halda manni fostum með
höndum eða fótum.
Leiknum er skipt niður í fjóra
leikfjórðunga og er hver þeirra fimmtán
mínútur. I hálfleik er tíu mínútna hlé.
Hvort lið hefur rétt á þrem leikhléum
í hvorum hálfleik.
Það lið sem hefur flest samanlögð
stig sigrar.
Leikmaður í fullum skrúða
Æfingaaðstaða fyrir
Landsmót.
Höfum góða æfingaaðstöðu til leigu. Sundlaug, íþróttahús,
gufubað, ljósabekkur, eldunaraðstaða og svefnpokapláss.
Allt í einu húsi.
Verið velkomin.
Félagsheimilið Þinghamar Varmalandi Borgarfirði,
sími 93-51280.
SKINFAXI
27