Skinfaxi - 01.02.1990, Side 29
Nýr gervigrasvöllur
Glæsilegur 40 ára afmælisfagnaður Breiðabliks
Þann 12. febrúar s. 1. bauð Ung-
mennafélagið Breiðablik um 200
manns til hátíðarfundar í tilefni 40 ára
afmælis félagsins. Formaður Breiða-
bliks Logi Kristjánsson setti sam-
komuna, en veislustjóri var Gunnar
Steinn Pálsson. Sjaldan hefur
ókunnugurskemmtséreinsvel. Margir
ræðumenn fóru á kostum og sá ókunni
lifði sig inn í líf og starf félagsmanna
gegnumtíðina. Skólakór Kársness söng
undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur
og Ríó tríóið, sem kom fram undir
nafninu „Ríó Grande” söng og lék við
mikinn fógnuð. Einn af stofnendum
félagsins, Gestur Guðmundsson
heiðursfélagi, flutti hátíðarræðu og gaf
félaginu fallegan bikar sem árlega skal
veittur þeim félagsmanni sem ötulast
hefur unnið að félagsmálastörfum fyrir
Breiðablik. Afhending heiðursviður-
kenninga var tilkomumikil. Þrettán
meistaraflokksmenn og konur stóðu
heiðurs vörð í keppnisbúningum sínum
er formaður Breiðabliks, Logi
Kristjánsson, afhenti þrettán
félagmönnum barmmerki og
viðurkenningarskjöl fyrir frábært starf
í þágu Breiðabiiks. Gamalt og ötult
stuðningsfólk félagsins, þau Hulda
Pétursdóttir, Valdimar Kr. Valdi-
marsson og Guðmundur Oskarsson
fengu nafnbótina Heiðursblikar. I
barm þeirra var nælt gullmerki, skreytt
demanti í kyndli félagsmerkisins og
fengu þau einnig skrautritað
viðurkenningarskjal. I texta viður-
kenningarskjalsins sagði: „Stuðningur
þinn við Breiðablik og heilladrjúgt
félagsmálastarf hefur reynst ómetan-
legt. í þakklætisskyni hefur aðalstjórn
Breiðabliks gert þig að heiðursfélaga,
sæmt þig nafnbótinni „Heiðursbliki”
og þannig veitt þér æðstu viður-
kenningu félagsins fyrir framúr-
skarandi starfí þágu Breiðabliks.” Þrír
Breiðabliksmenn voru gerðir að
Gullblikum, þeir Jón Ingi Ragnarsson,
Grétar Kristjánsson og Steinar
Lúðvíksson. Jón Ingi og Grétar hafa
starfað fyrir knattspyrnudeildina og
unniðfyrir aðalstjórn, en Steinar hefur
unnið fyrir sund- og skíðadeild
Breiðabliks. Alls voru sjö sæmdir
nafnbótinni „Silfurbliki”. Þau
Guðmundur Þórðarson, Konráð
Kristinsson, Hafsteinn Jóhannesson,
Kristinn Jóhannesson, Bára Eiríks-
dóttir, Ester Jónsdóttir og Ármann J.
Lárusson. Félaginu bárust margar
góðar gjafir þetta kvöld frá hinum ýmsu
félagasamtökum og öðrum aðilum.
Breiðabliksmenn ætla ekki að láta
þar við sitja og fyrirhugað er að bjóða
öllpm bæjarbúum í kaffi þann 21. apríl
n. k. í íþróttahúsinu í Digranesi. Þar
mun mönnum einnig gefast kostur á
að sjá margskonar íþróttaviðburði og
skemmtiatriði allan daginn.
Þetta fertugasta afmælisár markar
á margan hátt þáttaskil í starfi
Ungmennafélagsins Breiðabliks í
Kópavogi. í haust er ráðgert að taka í
notkun nýj an gervigrasvöll á félgssvæði
Breiðabliks við Kópavogsvöll og fram-
undan er skóflustunga að félagsmiðstöð
og íþróttahúsi á sama stað. Þann 5.
apríl var undirritaður viðaukasamn-
ingur við áður gerðan samstarfssamn-
ing Kópavogsbæjar og Breiðabliks um
byggingu og rekstur íþróttahússins,
framlag UBK til byggingarinnar og
aðild félagsins að byggingar-
nefnd. Framkvæmdir eiga að
heíjast í byrjun árs 1992, en
húsið sem verður 6000 m2 að
stærð á að verða tilbúið og
fullfrágengið fyrir Heims-
meistarakeppnina í hand-
knattleik 1995. Húsið á án efa
eftir að bæta aðstöðu ung-
mennafélaga í Breiðablik og
verður hluti þess nýttur sem
félagsaðstaða UBK.
Hér í lokin birtum við ljóð
eftir gamlan ungmennafélaga,
Svein A. Sæmundsson, sem
hann færði félaginu á 40 ára
afmælinu. Sveinn tengdist
uppbyggingu Breiðabliks á
árum áður og tók m. a. þátt í
byggingu Félagheimilis
Kópavogs sem formaður
Framfarafélagsins.
Upphafþessa er að finna
í að nokkrir vildu kynna
að ungir menn með orku og vilja
aldrei neina hindrun skilja
Stefna á tindinn hserra hærra
heita að vinna meira stærra
aðalsmerki karla og kvenna
í keppni er að reyna nenna
að leggja jafnan allt sitt afl
í að vinna tvísýnt tafl
trúa á eigin orku og hug
ávallt sýna kjark og dug
enga truflun ekkert hik
svo uppúr standi Breiðablik
Heill sé þeim er hófu merki
haldist jafnan viljinn sterki
andinn sem að á að minna
á allt sem hér er þörf að sinna
treysta á eigin hug og hönd
halda strikið nema lönd
gleðjast yfir sigri í samtíð
sigla inn í glæsta framtíð.
Gullblikar Breiðabliks fyrir miðri mynd. Frá vinstri: Jón Ingi Ragnarsson, Grétar Kristjánsson
og Steinar Lúðvíksson.
SKINFAXI
29