Skinfaxi - 01.02.1990, Qupperneq 30
Ný fimleikagryfja hjá
Gerplu í Kópavogi
íþróttafélagið Gerpla var stofnað 25.
apríl 1971 og er því tæplega 19 ára. Sú
íþróttagrein sem ætíð hefur staðið
uppúr í starfi Gerplu eru fimleikar, en
áður voru einnig aðrar greinar
stundaðar, s.s. júdó, karate, borðtennis,
badminton ogfleiri. I dag eru fimleikar
eina íþróttagreinin sem er stunduð og
fimleikafólkið hjá Gerplu hefur sýnt
það og sannað að fimleikar eru vaxandi
íþróttagrein.
I öllum íþróttagreinum þarf að huga
að þörfum fjöldans sem og þörfum
þeirra einstaklinga sem skara fram úr
á hverjum tíma. Þessa meginreglu
hafa forráðamenn Iþróttafélagsins
Gerplu tileinkað sér.
Fimleikadeildin hefur lengi verðið
Jón Finnbogason.
fjölmennasta fimleikadeild landsins og
hefur haft forystu um áhaldafimleika
stúlkna.
Þegar komið er inn í hús Iþrótta-
félagsins Gerplu að Skemmuvegi 6 í
Kópavogi er það fyrsta sem tekið er
eftir hvað andrúmsloftið er jákvætt og
hvað litlu andlitin eru glöð á svipinn.
Það er greinilegt að mikil gróska og
áhugi ríkir innan félagsins.
Það hefur lengi verið baráttumál
forráðamanna Gerplu að bæta aðstöðu
félagsmanna til fimleikaiðkunar enn
frekar. Nú hefur sú barátta leitt til
þess að tekin hefur verið í notkun
viðbygging við íþróttahúsið sem rúmar
nýja fimleikagryfju, svæði fyrir áhöld,
upphitun og æfingar. Fimleikagryfja
er gryfja, sem fyllt er með svampi.
Gryijan kemur í stað lendingardýnu
og minnkar lendingin í svampinum
slysahættu mikið, sérstaklega þegar
æfð eru erfið atriði s.s. í hringjum, á
svifrá eða á tvíslá.
Bæjarráð Kópavogs heimilaði
viðbyggingu við íþróttahús Gerplu og
hefur stutt myndarlega við bakið á
félaginu. Bæjar- og sveitarstjórnar-
menn eru farnir að gera sér betur og
betur grein fyrir mikilvægi þess að
styðja vel við bakið á félagsstarfssemi
sem rekin er fyrir íbúana. Það er
hagur allra að félagslíf sé gott og að
börn, unglingar og fullorðnir hafi það
fyrir stafni sem er heilbrigt og skapar
sem mesta lífsfyllingu.
Hjá Gerplu æfa nú um 400-500 börn
og unglingar fimleika. Stúlkur eru
enn í meirihluta, en þáttur drengja fer
ört vaxandi. Þjálfun drengja er í
höndum Heimis J. Gunnarssonar,
íþróttakennara og fyrrverandi
Islandsmeistari í fimleikum og Karols
Czizmowski, sem er pólskur þjálfari og
fyrrverandi landsliðsmaður Pólverja í
fimleikum. Þj álfun stúlkna er í höndum
kínversku þjálfarana Ye Yi Da og Ma
Wen Juan. Þau voru bæði um árabil í
kínverska landsliðinu. Herra Ye Yi Da
var einn af landsliðsþjálfurum Kína
1974-1983 og frú Ma Wen Juan var
þjálfari í Hebei-fylki og hefur náð
góðum árangri sem þjálfari. Auk þeirra
starfa við þjálfun stúlkna íþrótta-
kennararnir Áslaug Dís Ásgeirsdóttir
og Elín Viðarsdóttir. Þá hafa 10
þjálfarar, sem lokið hafa lágmarks-
réttindum, séð um þjálfun.
Eignast Gerpla
fimleikagólf?
F ormaður Gerplu er Ingvar Árnason,
hann var nýlega sæmdur Starfsmerki
UMSK fyrir góð störf innan sam-
bandsins. Ingvar var tekinn tali og
fyrst spurður hvort fimleikagryfjan
gæfi ekki fimleikafólki í Gerplu byr
undir báða vængi.
„Gryfjan í viðbyggingunni gefur
okkur þá möguleika að við getum breytt
tímatöflunni í húsinu. Við getum látið
fimleikaáhöldin standa í nokkra daga
og hægt er að leigja salinn bæði um
helgar og í miðri viku.”
Ingvar sagði að það sem næst væri á
döfinni í uppbyggingu félagsins væri
að eignast sérstakt fjaðrandi fim-
leikagólf, sem er 12 X 12 metrar að
stærð. „Við eigum fimleikabraut sem
er 12 x 1,80 metrar, þar sem við getum
æft stökk, en ekki gólfæfingar í heild.
Gólfið þarf að vera fljótlegt að setja upp
og að taka saman. Við höfum gott pláss
Guömundur Þór Brynjólfsson.
fyrir svona gólf og einnig til að geyma
það. Ef við eignumst fimleikagólf og
höldum þjálfurunum okkar þá vil ég
leyfa mér að fullyrða að fá félög á
Norðurlöndum hafi jafn góða aðstöðu
og góða þjálfara. Þegar gólfið verður að
veruleika er tími það eina sem á vantar
til að við getum staðiðjafnfætis félögum
í grannlöndum okkar.”
Fá börn á leikskólum í Kópavogi
aðstöðu til að leika sér í Iþróttahúsi
Gerplu?
Sú hugmynd hefur komið upp hjá
ykkur að koma af stað samstarfi milli
Kópavogsbæjar og íþróttafélagsins
Gerplu, hvernig er þetta samstarf
hugsað?
„Við höfðum hugsað okkur að
samstarfið væri fólgið í því að börn úr
leikskólum bæjarins fengju aðstöðu hjá
Gerplu til líkamlegrar þjálfunar eða
öllu heldur líkamlegrar útrásar. Börn
hafa mikla hreyfiþörf og geta einnig
þurft að fá útrás fyrir ýmis hegðunar-
vandamál. Við sendum bæjaryfir-
völdum bréf þar sem við buðum fram
aðstöðu okkar.
Fóstrur eða fóstrar kæmu með
börnin, íþróttakennari frá Gerplu yrði
leiðbeinandi og unnið yrði saman eftir
ákveðnu skipulagi.”
30
SKINFAXl